Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 35
Viðtal 33Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Meistaranám í gjörgæsluhjúkrun eftir meistaranám í verkefnastjórnun „Ég fattaði það eiginlega ekki fyrr en ég kynntist núverandi manni mínum hvað ég er mikill nörd. Ég var alltaf að gera grín að honum, hvað hann væri mikill nörd, en svo benti hann mér á að ég er líka algjör nörd. Mér finnst ótrúlega gaman að læra og það liggur vel fyrir mér. Þegar ég byrjaði á gjörgæslunni vorið 2020 voru hjúkrunarfræðingar á deildinni í sérskipulögðu meistaranámi í gjörgæsluhjúkrun. Ég varð strax mjög spennt fyrir þessu námi og sá mér leik á borði að með því að fara í þetta nám myndi ég komast mjög hratt inn í sérþekkingu í gjörgæsluhjúkrun. Mér finnst nefnilega ekki nóg að vita bara nokkurn veginn hvað ég er að gera, ég vil vita nákvæmlega hvað ég er að gera. Ég hafði lokið meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) árið 2015 en ákvað haustið 2021 að sækja um þetta M.S.-nám og komst inn. Í náminu hélt ég áfram að vinna með heilasírita. Mér fannst ég ekki hafa lesið alveg nógu margar greinar um heilasírita,“ segir Sjöfn á léttu nótunum. „Það hafa auðvitað orðið þvílíkar framfarir á síðastliðnum 20 árum. En þetta voru hundruð greina sem komu í ljós við heimildaleit. Í raun er búið að setja niður leiðbeiningar um að það eigi að nota heilasírita hjá ákveðnum sjúklingum á gjörgæslu,“ segir Sjöfn sem talar vel um meistaranámið. „Náminu lauk ég svo vorið 2023 og hefur það reynst mér frábært veganesti. Maður verður miklu öruggari með þennan þekkingargrunn á bak við fagið. Maður lærir að hafa kjark til að efast um aðferðir og meðferðir. Svo var auðvitað ómetanlegt að verða samferða góðum hópi af samnemendum. Í kjölfar námsins hóf ég sér- fræðinám í hjúkrun hjá Landspítala og vonast til að verða sérfræðingur í hjúkrun gjörgæslusjúklinga. Hluti af því er að innleiða notkun á heilasírita með af meiri festu en áður.“ Aldrei of seint að sinna klínískri hjúkrun aftur „Sumum fannst ég vera taka skref niður á við að fara sinna beinni sjúklingavinnu aftur. Mér finnst hins vegar ég vera vinna við það sem mig langar mest að gera, að hjúkra sjúklingum. Að því leyti þvældist meistaranámið aðeins fyrir mér. Mig langaði að oft að vera í vinnunni en ekki í skólanum. Mig langar ekkert annað en að hjúkra. Þetta er rosalega krefjandi starf en mjög gefandi. Ég hugsa næstum því á hverri vakt hversu skemmtilegt mér finnist að starfa á gjörgæslunni. Auðvitað er þetta erfitt á köflum en við sjáum langoftast góðan árangur af starfi okkar og erum dugleg að hjálpa hvert öðru í gegnum erfiðar aðstæður,“ segir Sjöfn full af innblæstri og ástríða hennar fyrir starfinu skín í gegn. „Mér fannst mjög leiðinlegt að þurfa að fara úr þessu starfi á sínum tíma en aðstæður voru bara þannig að ég gat ekki verið í vaktavinnu. Í öll önnur störf var ég alltaf ráðin vegna þess að ég var hjúkrunarfræðingur að undanskildu starfinu í ferðaþjónustunni. Hjúkrunarnámið opnar svo margar dyr á ýmsum sviðum. Hjúkrunarfræðingar njóta almennt trausts og eru eftirsótt vinnuafl. Ég er ánægð með starfsferilinn og að hafa prófað að vinna annars staðar en á Landspítala. Það gott að fara í burtu og öðlast fjölbreyttari reynslu og víðari sýn,“ segir Sjöfn sem er laus við eftirsjá þó að hún hafi verið lengi að snúa aftur til baka í hjúkrun. „Ég held ég væri ekki sama manneskja ef ég hefði ekki prófað hin störfin. Það getur verið gott að fara og prófa nýja hluti en þegar maður kemur aftur er alltaf tekið vel á móti manni. Þetta er algjörlega draumastarfið mitt.“ Sjöfn í garðinum heima.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.