Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 48
46 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024
Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti hann
Fyrsta meginþemað nefnist Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti
hann og eru greind fjögur undirþemu: Liða- og vöðvaverkir hurfu,
Hvíldist loksins á næturnar, Dásamlegt að stunda kynlíf aftur og
Hafði loksins orku í lífið.
Fyrsta undirþemað Liða- og vöðvaverkir hurfu lýsir þeirri breytingu
sem þátttakendur upplifðu að hafa endurheimt sinn líkama.
Þátttakendur héldu að þeir væru komnir með gigt og áttu erfitt
með standa upp úr stól eða sófa. Hanna lýsti líkamlegri líðan
fyrir töku hormóna: „Ég var með rosalega liðaverki og stirðleika.
Einkenni sem ég hafði aldrei verið með. En eftir inntöku hormóna
þá hættu þessi einkenni.“
Annað undirþema ber yfirskriftina Hvíldist loksins á næturnar.
Flestir þátttakendur áttu það sameiginlegt að leita sér aðstoðar
hjá heimilislækni eða kvensjúkdómalækni vegna svefnvandamála.
Þær áttu það sameiginlegt að vakna upp á nóttunni eða vöknuðu
of snemma og gátu ekki sofnað aftur. Eftir hormónatöku þá
breyttist svefninn til hins betra hjá þeim öllum. Ingunn sagði: „Það
var bara strax þvílíkur munur. Þegar ég var búin að taka þetta í tvo
daga þá fór bara svefninn að skána um leið.“
Þriðja undirþema nefnist Dásamlegt að stunda kynlíf aftur. Í
viðtölum kom fram hjá næstum öllum þátttakendum að þær
upplifðu skerta kynlöngun fyrir töku hormóna. Þátttakendur
töluðu um tíðar þvagfærasýkingar, sveppasýkingar, þurrk og
sprungur í leggöngum fyrir töku hormóna. Helga lýsti vel hvernig
kynlífslöngun hjá henni var fyrir töku hormóna: „Svo bara engin
kynlöngun. Hefði verið til í að gera margt annað heldur en að stunda
kynlíf. Bara fara út og grafa skurð.“ Aðrar ræddu um að skortur á
kynlöngun leiddi til að makinn tók því sem höfnun sem leiddi til
samviskubits konunnar. Þátttakendur töluðu um mikilvægi þess
að hafa opna umræðu um breytingaskeið og kynlíf í sambandinu
því það leiði til aukins skilnings maka. En eftir töku hormóna þegar
vandamál tengt kynfærum var ekki lengur til staðar og þeim fór að
líða betur líkamlega og andlega þá jókst kynlöngun. Hanna sagði:
„Ég fór að fá meiri kynhvöt þegar ég byrjaði á estrógelinu.“
Mér fannst ég verða aftur ég sjálf: Reynsla kvenna af notkun hormónauppbótarmeðferðar á breytingaskeiði
Mynd 2. Heildargreiningarlíkan.
Lífið endurskoðað
Hugað að heilsunni
Vanda valið hvað
ég set orkuna í
Aukið þor að prófa
nýja hluti
Liða- og
vöðvaverkir hurfu Hvílist loksins á næturnar
Hafði loksins orku í lífið
Dásamlegt að stunda kynlíf aur
Meiri innri ró
Aukin nenna
Heilaþokan fór
Aukið sjálfsöryggi
Fagfólkið seint að grípa inní
Margir mánuðir sem fara til spillis
Þarf að auka fræðslu
Þekking
heilbrigðisstarfsmanna
Að viðurkenna
vanda
skjólstæðings
Endurheimti
ánægjuna af því
að vera í tengslum
við fólkið mitt
Endurheimti
tengslanetið
Eirsjá að
tímanum
sem ég
missti
Virk hlustun
og samskipti
Þetta
þroskar
mann
Líkaminn varð
aur eins og ég
þekkti hann
Það
kveiknaði
aur á mér
Félagslegu
tengslin
byggð upp
Mér fannst ég
verða aur
ég sjálf
Tafla 1. Tólf meginþrep rannsóknarferils Vancouver-
skólans í fyrirbærafræði
Þrep í rannsóknar-
ferlinu Lýsing á þrepum Það sem gert var
í þessari rannsókn
Þrep 1
Val á samræðufélögum
Þátttakendur valdir
sem hafa dæmigerða og
ódæmigerða reynslu af
fyrirbærinu
Tekin voru viðtöl við
12 konur sem uppfylla
skilyrði fyrir þátttöku.
Konurnar voru valdar
með tilgangsaúrtaki
Þrep 2
Undirbúningur hugans
(áður en umræður
hefjast)
Rannsakandi ígrundar
fyrirframgefnar hug-
myndir og leggur þær
meðvitaðar til hliðar
Rannsakandinn leitast
við að ígrunda fyrir-
framgefnar hugmyndir
og leggur þær til hliðar
Þrep 3
Þátttaka í samræðum
(gagnasöfnun)
Tekin eru eitt til tvö
viðtöl við hvern þátt-
takanda þar til mettun
er komin á gögnin
Tekið var eitt viðtal við
12 þátttakendur
Þrep 4
Skerpt vitund varðandi
hugmyndir og hugtök
Gagnasöfnun og
gagnagreining er unnin
samhliða
Gagnasöfnun og
gagnagreining var unnin
samhliða. Hugmyndum
var komið í orð. Hlustað,
lesið og ígrundað
Þrep 5
Þemagreining
Viðtöl lesin endurtekið
yfir og lykilsetningar
fundnar og greindar
merkingar þeirra. Greint
niður í meginþemu og
undirþemu
Viðtöl voru lesin
nokkrum sinnum yfir og
stöðugt ígrundað hver
rauði þráðurinn var í
viðtali hvers og eins.
Greint var í meginþemu
og undirþemu
Þrep 6
Smíða greiningarlíkan
fyrir hvern þátttakanda
Heildarmynd af reynslu
einstaklings er skoðuð.
Dregin eru fram
meginþemu af sögu
hvers einstaklings og
útbúið greiningarlíkan
þar sem aðalatriðin eru
sett fram
Rannsóknargögn um
hvern þátttakanda voru
ígrunduð og smíðað eins-
taklings greiningarlíkan
úr öllum þemum (megin-
og undirþemum varðan-
di þann þátttakanda
Þrep 7
Staðfesting á hverju
greiningarlíkani
Hvert greiningarlíkan
er ákveðin túlkun rann-
sakandans. Þátttakandi
er fenginn til að staðfesta
greiningarlíkanið
Rætt var við 11 þátttak-
endur og staðfesting
fengin frá þeim varðandi
þeirra greiningarlíkan.
Samræður og sameigin-
leg ígrundun
Þrep 8
Heildargreiningarlíkan
var smíðað úr öllum
greiningarlíkönunum
(fyrir hvern þátttak-
anda)
Rannsakandi leitast til að
átta sig á heildar-
myndinni á fyrirbærinu.
Reynir að átta sig á hver
er sameiginleg reynsla
og hver er frábrugðin.
Sett er upp heildagrein-
ingarlíkan fyrir alla
þátttakendur
Rannsakandi reyndi að
átta sig á heildar-
myndinni af fyrirbærinu
sjálfu (meginniðurstöður
rannsóknarinnar).
Öll einstaklingsgrein-
ingarlíkön voru borin
saman og smíðað eitt
greiningarlíkan
Þrep 9
Heildargreiningar-
líkanið borið saman
við rannsóknargögnin
(staðfesting 2)
Rituðu viðtölin og
heildargreiningarlíkanið
er borið saman af rann-
sakanda
Viðtölin lesin aftur og
borin saman við heildar-
greiningarlíkanið
Þrep 10
Að velja rannsókninni
heiti sem lýsir niður-
stöðum í örstuttu máli
Sett er fram niðurstaða
um fyrirbærið af rann-
sakanda í mjög stuttu
máli sem verður yfir-
þema rannsóknarinnar
Niðurstaða
rannsóknarinnar í fyrir-
bærafræði var:
Mér fannst ég verða aftur
ég sjálf
Þrep 11
Staðfesting á heildar-
greiningarlíkani og
yfirþema með ein-
hverjum þátttakendum
(staðfesting 3)
Þar sem heildargrein-
ingarlíkan byggir á
túlkun rannsakandans.
Staðfesting er fengin
af þessari túlkun hjá
þátttakendum
Heildargreiningarlíkanið
var kynnt 11 þátttaken-
dum og kannað hvort
þeir séu samþykkir því
Þrep 12
Niðurstöður rann-
sóknarinnar skrifaðar
niður þannig að raddir
þátttakenda heyrist
Niðurstöður rannsóknar
skrifaðar upp. Beinar
tilvitnanir eru í orð allra
þátttakenda úr viðtölu-
num til að rödd þeirra fái
að heyrast
Niðurstöður skrifaðar
upp með hjálp heildar-
greiningarlíkansins,
vitnað í þátttakendur
jafnóðum svo rödd þeirra
heyrist