Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 82

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 82
Ritrýnd grein | Peer review Eftirfylgni og árangur meðferðar hjá fólki með sykursýki gerð 2 innan tveggja sykursýkismóttaka á heilsugæslustöðvum ÚTDRÁTTUR Tilgangur Hjúkrunarstýrðum móttökum einstaklinga með sykursýki innan heilsu- gæslunnar fjölgar þar sem unnið er eftir alþjóðlegum viðmiðum. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina árangur eftirfylgni hjúkrunarstýrðrar sykur- sýkismóttöku innan heilsugæslu og bera saman við alþjóðleg viðmið. Ásamt því að rannsaka lyfjanotkun og veitta þjónustu. Aðferð Megindleg afturvirk ferilrannsókn framkvæmd innan heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) Fjallabyggðar og Dalvíkur. Úrtakið voru skjólstæðingar sykursýkismóttöku frá ársbyrjun 2019 til loka árs 2020 sem höfðu tvær (mæling 1 og 2) langtímablóðsykursmælingar (HbA1c gildi), með a.m.k. sex mánaða millibili. Lýsandi og ályktunar tölfræði var notuð og mæligildi hópsins borin saman við alþjóðleg viðmið. Niðurstöður Við upphaf rannsóknar var meðalaldur þátttakenda (n=88) 66,1 (±12,68) ár og hlutfall karla 58%. Sjúkdómslengd var á bilinu 1-21 ár. Við mælingu 2 var meðal HbA1c gildið 47,8 mmól/mól (±14,9). Allir þátttakendur tóku lyf að staðaldri. Flestir tóku blóðsykurslækkandi lyf (93,2%) og tæplega helmingur (44,3%) tók Glucagon-like peptide-1 agonista (GLP-1). Alls tóku 80,7% þátttakenda blóðþrýstingslækkandi lyf og um helmingur tók blóðfitulækkandi lyf. Algengustu fylgikvillar voru hjartasjúkdómar (84,1%). HbA1c gildi (p=0,049), líkamsþyngdarstuðull (p=0,013), og slagbilsþrýstingur (p=0,040) lækkaði í mælingu 2. Við mælingu 2 var í 72,7% tilfella alþjóðlegum viðmiðum náð í HbA1c gildi en einungis 32% þátttakenda náðu viðmiðum með líkamsþyngdarstuðul við sömu mælingu. Ályktun Meirihluti þátttakenda náði alþjóðlegum viðmiðum í mæligildum. Reglubundið eftirlit, mæting í sykursýkismóttöku og samvinna við skjólstæðinga bar því árangur. Þetta sýnir klínískt mikilvægi þess að hafa hjúkrunarstýrðar sykursýkismóttökur innan heilsugæslunnar. Sykursýkismóttakan virðist vinna eftir alþjóðlegum viðmiðum sem mælt er með að unnið sé eftir. Lykilorð Sykursýkismóttaka, heilsugæsla, alþjóðleg viðmið, afturvirk ferilrannsókn. HAGNÝTING RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein? Nýjungar: Rannsóknin staðfestir árangur af eftirfylgd og þjónustu hjúkrunarstýrðrar sykursýkismóttöku innan heilsugæslu á Íslandi. Hagnýting: Niðurstöðurnar gefa hjúkrunarfræðingum tækifæri til að efla þjónustu og/eða halda áfram að vinna með það sem reynist vel. Þekking: Þekking skapast á árangri meðferðar sem hjúkrunarfræðingar stýra innan heilsugæslunnar á Íslandi. Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Niðurstöður rannsóknarinnar ættu að hvetja hjúkrunarfræðinga til að sinna áfram því faglega starfi sem á sér stað innan sykursýkismóttöku og hvetja til teymisvinnu þvert á fagið. doi: 10.33112/th.100.2.2

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.