Edda - 01.06.1958, Page 28
Ásmundur Guðmundsson,
biskup íslands:
Samstarf að kristindómsmálum
Asmundur Guðmundsson.
I.
Þegar ritstjóri þessa tímarits bað mig um
grein í það, varð mér þegar ljóst, að ég ætti að
slcrifa um samstarf með Islendingum austan
hafs og vestan að kristindómsmálum — leit-
ast við að lýsa því, eins og ég hefi kynnzt því,
ef eitthvað mætti af því læra.
Ungur fékk ég köllun til prestsskapar frá
Vatnasöfnuðum í Saskatchewan í Kanada og
þjónaði þar fjórum söfnuðum 1912—1914.
Söfnuðirnir voru áhugasamir um að geyma
Irúararfsins að heiman, einkum unni gamla
íólkið mjög sálmum Hallgríms og Jónsbók.
Guðsþjónustur voru ágætlega sóttar, einkum
af einum söfnuðinum, enda voru þar flestallir
í söngflokki. Koni það jafnvel fyrir ósjaldan,
að hvert mannsbarn var við guðsþjónustuna.
Unga fólkið unni íslandi ekki síður en eldri
kynslóðin. Því var ísland landið helga, og tók
það oft svo til orða: „Heima á íslandi.“ Það
talaði yfirleitt vel móðurmál sitt og vildi Vanda
það. Þess vegna tók það fagnandi kennslu í ís-
lenzku við unglingaskóla og las þar af mikl-
um áhuga og góðum skilningi ljóð Einars
Benediktssonar. Með sama hætti stundaði það
nám í kristnum fræðum fyrir fermingu.
Mánaðartíma starfaði ég vestur undir
Klettafjöllum, lengst í Markerville í grennd
v’ið heimili Stephans G. Stephanssonar. Hann
var lifandi dæmi þess, hve alda vestur-íslenzkr-
ar menningar getur risið hátt, dæmi, sem aldrei
rná gleymast, heldur á að benda komandi kyn-
slóðum.
II.
A þessurn árum voru liörð átök niilli gam-
allar guðfræði svonefndrar og nýrrar og ollu
klofningi Kirkjufélagsins vestra. Ilafði Þór-
hallur biskup sterka löngun til þess að fara
vestur og reyna að korna í veg fyrir hann, en
heilsan leyfði honum það ekki. Þótti mörgum
grátlegt, að kirkjuleiðtogarnir miklu, séra Jón
26
E D D A