Mímir - 01.11.1986, Page 3

Mímir - 01.11.1986, Page 3
MÍMIR BLAÐ FÉLAGS STÚDENTA í ÍSLENSKUM FRÆÐUM 34 25. árg. — 2. tbl. - nóvember - 1986 Ritnefnd: Guðrún lngólfsdóttir Guðvarður Már Gunnlaugsson (áb.) Sigríður Steinbjörnsdóttir Prenthúsið s.f. Umblaðið Ágætu lesendur! Þessi Mímir, sem þiö hafið nú í höndunum, er afmælisblað Mímis gefið út í tilefni af fjörutíu ára afmæli félagsins 11. desember 1986. Afmælisnefnd Mímis ákvað að gefa út blað af þessu tilefni en tók jafnframt þá ákvörðun að hafa það með öðru sniði en venjulega. Merkisafmæli er næg ástæða til að breyta út af venjunni. M.a. var skipt um forsíðu en síðustu fimmtán tölublöð hafa verið með sömu forsíðuna. Afmælisnefnd vonar að lesendum líki vel þetta nýja andlit Mímis. Mímir birtir venjulega sýnishorn af fræðaiðju nemenda en nú var tekin sú stefna að birta sýnishom af skáldskap núverandi og fyrrverandi Mímisliða. Leitað var til fjölmargra skálda sem höfðu eytt einhverjum árum með Mími og níu þeirra áttu í fómm sínum óbirt efni. Önnur áttu ekkert sem þau vildu birta. Það skal tekið fram að ekki var leitað til allra skálda sem hafa verið í íslensku (eða norrænu) enda átti aldrei að gefa neina heildarmynd af skáldskap Mímisliða, heldur einungis sýnishom. Afmælisnefnd þakkar skáldum Mímis þann heiður sem þau sýna blaðinu og félaginu. Annað meginefni blaðsins eru minningarþættir eftir fjóra núverandi og fyrrverandi Mímisliða þar sem þeir minnast ára sinna í íslensku. Einnig þeim ber að þakka fyrir að sinna Mími. Auk þessa réði afmælisnefndin Auði G. Magnúsdóttur og Sigurð Hróarsson til að skrifa sögu félagsins, Véstein Ólason til að taka saman yfirlit yfir þróun greinarinnar og fræðanna og Elínu Bám Magnúsdóttur til að taka viðtal fyrir blaðið. Öll eiga þau þakkir skildar fyrir vel unnin störf og ekki síður viðmælandi Elínar, Vigdís Grímsdóttir. Afmælisnefndin þakkar einnig ljósmyndumnum, Frey Þormóðssyni og Kristjáni G. Arngrímssyni, fyrir þeirra störf, Önnu Cynthiu Leplar fyrir að teikna nýja forsíðu og starfsfólki Prenthússins fyrir góð samskipti. Síðast en ekki síst ber að þakka menntamálaráðherra og Málvísindastofnun Háskóla íslands sem styrktu útgáfu þessa afmælisblaðs myndarlega. Þrátt fyrir þetta afmælisblað er það ætlun Mímis að Mímir 35 komi út í vor. 3

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.