Mímir - 01.11.1986, Side 5

Mímir - 01.11.1986, Side 5
Auður G. Magnúsdóttir og Sigurður Hróarsson: „Stolt stúdenta í íslenskum fræðum“ Þagalt og hugalt skyli þjóðans barn og vígdjarft vera; glaður og reifur skyldi gumna hver, uns sinn bíður bana. (Úr Hávamálum) Við tímamót er góður og gegn siður að líta yfir farinn veg og lifa upp gamlar minningar. Þrátt fyrir allt eru minningarnar sá bankareikningur sem ber hæstu vextina. Því er ekki hægt að láta hjá líða þetta tækifæri til að grufla í fortíð Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum. Hinn 11. desember eru liðin heil fjörutíu ár síðan Finnbogi Guðmundsson og félagar hans í íslenskum fræðum við Háskóla íslands blésu í horn og boðuðu til stofnfundar þessa merka fé- lagsskapar. Það er mikill skaði að elstu fundar- gerðir félagsins skuli nú vera týndar og tröllum gefnar, ómetanlegar heimildir. En þar sem Mímir á stórafmæli, og þar með allir gamlir og nýir Mímisliðar, langar okkur til að fletta fram og aftur í gömlum fundagerðarbókum, þó ekki væri nema til að kynda undir eld minninganna. „Glötuðu árin“ látum við Aðalstein Davíðsson bæta upp, en hann skrifaði „Drög að sögu Mímis“ á tvítugsafmæli félagsins. Með þeirri rit- un segist Aðalsteinn vonast til að vekja áhuga stúdenta á „félagsstarfsemi í íslenzkudeild“. Að hans mati bar auðvitað að efla félagsskapinn vegna þess að Mímir hefur undanfarin ár verið stolt stúdenta í íslenskum fræðum, félag með sinn sérstaka svip, ólíkt öllum öðrum félögum innan háskólans. Stofnfundur Mímis var haldinn í setustofu Nýja- garðs að kvöldi miðvikudagsins 11. desember 1946, og komu 17 manns á fundinn. Þar er fé- laginu opinberlega gefið nafn, lög þess ákveðin og giltu þau lög með litlum breytingum til 1961. í lögunum er kveðið á um markmið Mímis: a) að vinna að hvers konar hagsmunamálum norrænunema, b) að vera málfunda og skemmtifélag. Þá var að sjálfsögðu gengið til kosninga í stjórn nýburans, og hlutu alls 13 manns atkvæði. Úrslit urðu þau að Finnbogi Guðmundsson hlaut 14 atkvæði, Hermann Pálsson 9 og Gunn- ar Finnbogason 6 atkvæði. Mynduðu þessir menn því fyrstu stjórn Mímis. Að loknum venjulegum fundarstörfum var flutt ýmislegt skemmtiefni, og hélst sú venja fram til 1954 að enda hvem fund á einhver ju af léttara taginu, til dæmis vom flutt frumsamin ljóð og sögur. Samkvæmt þeim sem gerst þekkja sögu þessara upphaLára félagsins fóm nú í hönd dag- ar víns og rósa. Mímir varð öflugur og lét sér snemma fátt óviðkomandi. Aðalsteinn Davíðs- son segir frá þessu: Félagslíf innan deildarinnar virðist hafa verið í himnalagi, deildin fór í ferðalög og gaf prófessor- um gjafir milli þess, sem hún þrætti við þá um kennsluaðferðir, námsefni, kennslustundir og próf. Jafnframt þessu kom Mímir fram í félagslífi stúdenta almennt, gerir tillögur um hitt og þetta, tekur þátt í norrænu stúdentamóti, mótmælir leikfimiskyldu stúdenta, en styður hins vegar andlegar menntir. Uppúr 1950 fer hins vegar að dofna vemlega yfir félagsskapnum, og hefur árið 1953 verið 5

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.