Mímir - 01.11.1986, Qupperneq 23

Mímir - 01.11.1986, Qupperneq 23
Gunnar Þorsteinn Halldórsson: Smásaga i Prologus Það er sagt að tímarnir breytist og mennirnir með og það er ekki satt. Að minnsta kosti ekki í litlu plássi við sjó vestur á Nesi. Þar breytist ekki neitt. Nema nokkur yfirgefin hús og bílhræ sem sligast undan vetrarveðrum, ögn álappalegri ár frá ári. Húsin kannski einni rúðu aumari og hurð fallin af bílflaki, en ryðrauðan söm og jöfn. Það tekur enginn eftir þessu í náttúrufegurðinni. Og mennirnir breytast ekkert. Þeir eldast vit- anlega og deyja, en það koma nýir í þeirra stað og eins. Alveg eins. Þeir ganga ávallt sömu leið til vinnu sinnar, enda ekki nema ein gata og liggur að höfninni; það er fegursta höfn landsins því hún er gerð úr klettadröngum og stöpum, og frystihúsið eiginlega bara klettur. Þar liggja trillur við bryggju síðdegis. Og krían tekur á móti gestum og lætur jafnan í ljósi vanþóknun sína á þeim. Það er ekki hægt að segja að nokkur búi þarna nema nokkrir einsetukarlar. Enda varla unnt að búa þar. En það er heldur ekki hægt að slíta sig þaðan. Þess vegna kemur fólk ár hvert að vori með líf í kofa sína og situr fram að hausti. Fólk hvaðanæva að sem líklega finnur þarna frið. Eða kemur það kannski til að finna nálægð jökulsins — hann er svo skemmtilega falinn bak við rauðgrátt fell og ekki nema örskotsgangur norður eftir ströndinni þá blasir hann við augum? Hvítur. Það er sannur jökull. Jökli hefur verið lýst á íslensku. Fólk kemur að vori. Og vinnur til að byrja með við sjósókn, en þegar líða tekur á sumar þá fækkar róðrum; þá heldur aðgerðarleysi uppi lífi og anda, og fólk hverfur inní kyrrláta tilveru náttúrufegurðar og kemst ekki burt, en bíður hvers kvölds í næði. Þá er náttbirtan fegurst af því að hún er dimm, og næturroði á himni. Og fólk læðist úr húsi á nóttum og gleðst, en sumir setjast á stein og horfa í roðann yfir svartri jörð og bláum fjöllum. Og þá geta menn ekki annað en hugsað til liðinna ára, og þeir minnast einskis nema þess sem er bjart einsog náttleysan; brátt hvarflar hugurinn að líðandi stund og komandi tíma og menn eru sáttir við sitt; loks dettur þeim í hug dauðinn, því enginn getur horft í litfagra eilífð án þess að hugsa um dauðann, og til að kvíða honum ekki trúa menn á guð og annað líf. Slík er fegurðin. II Kynning Ég hef aldrei skilið hvern fjandann Logi var að kúldrast þarna aleinn í hússkrifli sínu árið um kring. Hér er svo margt sem gefur lífi mínu gildi, sagði hann mér eitt sinn einkennilegum rómi; skelfing var það honum líkt. En ég skildi það ekki. Engu frekar en útskýringar hans á því sem hann kallaði erótík náttúrunnar; um áhrifamátt þess sem maður þráir að sjá en fær ekki séð. Og þegar hann fór öllum þessum einkennilegu orð- um um jökulinn sem hið fullkomna kven- mannsbrjóst þá tók ég að efast um andlega heilsu hans eitt andartak. En aðeins andartak. Með hliðsjón af því að hann hafði hvorugt séð um árabil lét ég af þeirri hugsun í einni svipan. Og ég virti hann fyrir mér. Og áttaði mig loks á 23

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.