Mímir - 01.11.1986, Page 30

Mímir - 01.11.1986, Page 30
Thor Vilhjálmsson: Úr svítu Sólin skín á milli trjánna; geislar í löngum rákum sem sá sér út undan trjánum og zebrastrika skógarstíginn: þar sem þið gangið. Hver voruð þið? Þið sem voruð tvær mann- eskjur í þessum skógi heyrðuð skrjáfa í þögn- inni, meðan kvistir og greinar brotnuðu undir fótunum. Þetta haust. En svo var kominn vetur. Snjórinn er harður, glitlaus. Það var spölur á milli þeirra á göngunni, maðurinn gekk á undan, hún var nokkur skref á eftir, og horfði á bak mannsins. Það marraði undan fótunum á hjarninu. Niður trjágöngin. En hvað allt var eyðilegt í lauflausum skóginum: Milli svörtu trjánna hl jóðu; hér voru þau ekki svört einsog þau höfðu verið frá glugganum, þegar hann beið þess hvort hún myndi koma. Ekkert laufblað var eftir til að falla framar á götu þeirra. Stígurinn bugðaðist hallann gegnum skóginn. En hvað leiðin er stutt sem þau eru svo lengi að fara; þau eru bara strax komin á leiðarenda. Ó-hó. Ó-hó-hó. Var það svona sem heyrðist í konunni þegar stillingin brast skyndilega, og gráturinn kom einsog frelsandi náðarkraftur til að sprengja fargið. Hún grét þangað til hún fann það var vetur úti, og sá út um gluggann að það var ekki farið að snjóa aftur. Yfir hvítu landinu með litum. Yfir marglitum húsum voru blágrá ský; og fjallshlíðin hvarf með sínu máttuga letri. Viltu mér eitthvað? sagði maðurinn þegar hann kom inn, og sá konuna sitja við gluggann. Hún þagði með lokk af hári milli tannanna, beit fast í hann; snerti hann svo með tungunni, með tennurnar saman. En hann sagði: hvað? Hún svaraði öngu, og vissi að hann stóð fyrir aftan hana, og horfði líka út. Það var eins og taugar hennar herptust í vörn; líkt og áður hefðu þær verið þræðir sem liggja allt í kringum hana; út um gluggann, og niður eftir húsinu; eftir gólfinu, og upp í ljósakrónur og niður úr þeim. Nú dró hún þetta allt að sér, og var í einum hnút, og fann hvernig hún varð hörð og köld: Snertu mig ekki. En þegar hann stóð bara svona og kom ekki við hana, þá raknaði smám saman úr hnútnum; það slaknaði á spennunni: Þreytt og aftur þreytt, til hvers er maður að vakna? Til hvers er maður? Hvaðan komum við, hvert erum við að fara? Nú var eins og allt væri auðn. Og auðnin var langur vegur; auðnin rennur inn í sjálfa sig: einsog stafur úr misgildum bambúshólkum sem ganga hver inn í annan. Og þú ert stödd inni í þrengsta af þessum sívalningum. Auðnin, það var einsog hægt væri að draga hana sundur, og þrengja henni saman, þó var hún bara auðn. Hún vissi að maðurinn færði sig, og vildi ekki líta við til að sjá hann sitja á stólnum með háa bakinu. Hann sat fremst á brúninni, og studdi olnbog- um á hnén, og horfði á finngálknin á gólfinu. Á gólfteppinu. Þau höfðu langar bognar klær, og allar úti; margklofna tungu langt fram úr hvasstennum hvofti; lymsku í svip; og allir part- arnir teygðust bylgjóttir, einsog mjóar fána- veifur þandar af vindi, og langur halinn líka með 30

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.