Mímir - 01.11.1986, Page 40

Mímir - 01.11.1986, Page 40
nú. Ef til vill gæti þetta blað orðið einn af þeim tengiliðum sem í raun og veru vantar milli ís- lenskra fræða í háskólanum og alls almennings í landinu, en þess konar lífrænum tengslum hefur lítið verið sinnt. Að vísu hafa stúdentar í íslensk- um fræðum sýnt lofsvert framtak með því að senda einn prófessor sinn á þing, en það þarf að gera meira. T.d. er kominn tími til að málvís- indamenn deildarinnar átti sig á því að íslenska er ennþá töluð hér á landi og að kannske væri ekki alveg þarflaust að reyna að fylgjast á vís- indalegan hátt með þróun nútímamáls. En raun- ar er sama hvar drepið er niður í íslenskum fræðum: verkefnin eru ótæmandi. Sögulegar heimildir liggja órannsakaðar og óútgefnar. Bókmenntir síðari alda eru að litlu leyti útgefnar og að miklu leyti órannsakaðar. íslensk málsaga hefur aldrei verið skrifuð, nema sem „meira eða minna samtíningslegar og handahófskenndar athugasemdir um stafsetningu og mál á ein- stökum handritum,“ svo að ég leyfi mér að vitna í orð Hreins Benediktssonar. Þetta stafar vitan- lega einkum af mannfæð, en að öðru leyti af peningaskorti. En í þriðja lagi er áhugaleysi um að kenna. Islenskufræðingar hafa vel vitað af skinnbókum þeim sem geymdar hafa verið í söfnum í Danmörku og Svíþjóð, en virðast hins vegar hafa gleymt að mestu þeim fjársjóðum sem eru varðveittir í handritadeild Landsbóka- safns og skjalabögglum Þjóðskjalasafns. Ég veit ekki hvort farið er að kynna stúdentum þessi söfn og hvað þau hafa að geyma; það var ekki gert á minni tíð. En ég held að það hljóti að verða eitt aðalverkefni Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum, að verða eins konar prófess- or við deildina, sem tekur að sér að sinna því sem aðrir prófessorar gleyma eða hafa ekki áhuga á eða nenna ekki að sinna eða komast ekki yfir að sinna af einhverjum orsökum. Það er nú einu sinni svo, ef skólanám á að bera verulegan ár- angur, að þá verður nemandinn að vera sinn eigin kennari að miklu leyti; hann getur aldrei komið til kennarans eins og bíll að bensíndælu og látið fylla á sig fyrirhafnarlaust. En nú er ég farinn að prédika, ræðan farin að verða í stíl mannkynsfræðara og spakvitringa og best að hætta áður en hún fer að líkjast Reykjavíkur- bréfum Morgunblaðsins meira en orðið er, og er þá ekki annað fyrir en að óska þessu félagi langra lífdaga og vona að það eigi eftir að vinna mörg afrek á ókomnum árum. T.d. væri gott ef því tækist að draga dálítið úr einstrengingslegri og mér liggur við að segja ofstækisfullri próftrú sem mér virðist hafa grafið um sig hjá prófessor- um við háskólann á síðustu árum og er miklu meiri nú en áður var. Og læt ég svo máli mínu lokið og óska ykkur gleðilegrar hátíðar. 40

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.