Mímir - 01.11.1986, Page 41

Mímir - 01.11.1986, Page 41
Davíð Erlingsson: Þegar barnið komst í brók Raus í tilefni af fyrsta spori Mímis fyrir 25 árum. Ég held það sé bezt þetta verði fá orð, annars er hætt við öldungstauti um, að engu fari fram í raun og veru. Allt í einu skaut Guðvarði upp. Það var fyrir mörgum mánuðum, og ég lofaði honum ein- hverju í tilefni af þessu, því arna að Mímir er rétt að verða aldarfjórðungs gamall, nú á líku méli og háskólinn verður þriggja aldarfjórðunga gamall. Það er furðu lítill aldursmunur, þegar um er hugsað. Báðir heldur skammt á veg komnir. Það er þó óneitanlegt, að háskólinn hefur á síðasta þriðjungnum, tilvistarskeiði Mímis, tekið töluverðum breytingum, og til- hlaup varð til enn meiri breytinga en nokkuð hefur getað orðið úr ennþá. Það var á áttunda tugnum aldarinnar sem þetta bjartsýnistilhlaup varð. Með fjölgun nemenda kom fjölgun kennara og námsskipulagsbreytingar ofan í grunn, og stofnanirnar sem reyna að leiða gott af sér í sæmilegum og gagnlegum bókum, o.s.frv. Nú reyna kennarar að tala við nemendur í öllu starfi eftir því sem þeir hafa getu til, en ekki bara til þeirra í kennslustundum, sem reyndar voru bara fyrir fyrirlestra og það oft í alveg bókstaf- legum skilningi. Þá var það, ásamt áhuganum, þrái og þrautseigja sem einkum skildu milli feigs og ófeigs við námið, eða eigum við að segja prófin. Þeir sem höfðu „þraut og bið að þruma við“ höfðu það af. En nú eru litlar einingar sem fólk tínir upp líkt og ber, og það er þrátt fyrir allt um talsvert val að ræða, en það var ekki fyrir 30-25 árum, þegar við Aðalsteinn Davíðsson og Páll Bjarnason vorum í ritnefnd saman til að hleypa þessu blaði af stokkunum. Nú finnst mér eða minnir mig það hafi orðið hlutskipti mitt í þessari ritnefnd, sem ég held að hafi verið ágæt ritnefnd eftir atvikum, að vera mest í sjálfu stokkabramboltinu, það er að segja símtölum og hlaupum frá Garði yfir í Þingholt að aðsetri Jesúprents (Prentsmiðju Jóns Helga- sonar) til að reyna að kreista barnið út um burð- arliðinn. Ég hef eflaust tekið mér það allt miklu þyngra en ástæða var til. Yngri kynslóðir hafa lært betur að lifa, hvað slíkt snertir. Barnið komst út og í brók sem hefur enzt því til þessa. Ódýra og auðframkvæmanlega kápu- lausnin sem varð til í milli okkar Hadda (Hallgríms) Tryggva frá Akureyri, er eiginlega enn á blaðinu, þótt breytt sé, og annað form blaðsins er líka að mestu óbreytt. Brotið er það sama og setningin í tvo dálka. „Ritnefndin væntir þess, að það form, sem blaðinu hefur verið valið, reynist heppilegt“, stendur í lokum aðfararorða á bls. 3 í 1. tbl., með svofelldri skólakommusetningu. Ritnefndinni sýnist hafa orðið að ósk sinni. Um efnisföng til blaðsins man ég það, að ég efaðist aldrei um að þau gætu orðið meiri en næg. Hins vegar voru á mér einhverjar vöflur í upphafi um, hvort ekki væru í rauninni nógir vettvangar til í landinu fyrir það sem menn vildu koma á framfæri. Auðvitað mátti vel líta þannig á, en það varð ofan á fyrir mér, hve heppilegt mundi vera fyrir nemendur að hafa þennan sérstaka vettvang. Það hefur líka sýnt sig. í blaðinu hefur komið fjöldi merkilegra ritgerða, sem vafamál er, hvort hefðu komið út á öðrum stöðum, auk þess sem bramboltið við að búa til 41

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.