Mímir - 01.11.1986, Síða 49

Mímir - 01.11.1986, Síða 49
Vésteinn Ólason: íslensk íslands fræði í Háskóla 1911-1986 Þegar Háskóli íslands var stofnaður voru í heimspekisdeildinni (eins og þá var skrifað) tvær kennarastöður á sviði íslenskra fræða: önnur í íslenskri tungu og menningarsögu, hin í sögu íslands. Árið 1986 eru í heimspekideild a.m.k. 17 stöður á þessu sviði og auk þess starfa innan háskólans eða í tengslum við hann stofnanir með a.m.k. hátt á annan tug fastráðinna starfsmanna við rannsóknastörf. Hér er vitaskuld um mikla fjölgun að ræða, þótt hún haldist naumast í hendur við fjölgun annarra starfsmanna í há- skólanum. Ástæða er til að velta fyrir sér á tímamótum hvaða hlutverk þessum fræðum hafi verið ætlað af þeim sem settu Háskóla íslands á stofn og fyrstir veittu honum og þessu fræða- starfi forstöðu, hvernig viðhorfin til fræðanna hafi breyst í tímanna rás og hvernig tekist hafi að hrinda hugsjónum í framkvæmd. Það liggur í hlutarins eðli að í svo stuttu máli verður aðeins stiklað á stóru. Fyrsti rektor Háskóla íslands var Björn M. Ólsen, prófessor í íslenskri tungu og menning- arsögu. Þegar hann setti háskólann í fyrsta sinn hélt hann merka ræðu sem oft hefur verið vitnað til og eðlilegt er að telja hina bestu heimild um hverjum augum hann og væntanlega fleiri litu á hlutverk Háskólans og á stöðu fræða sinna og hlutverk. Þegar tillit er til þess tekið, að Háskóli íslands var stofnaður á þeim árum er frelsishugur ís- lendinga og þjóðernishyggja voru sem áköfust, er það athyglisvert hve rík tilfinning kemur fram í ræðu rektors fyrir hinu alþjóðlega eðli fræða og vísinda og hve mikla áherslu hann leggur á víðsýni og alþjóðleg tengsl: Vjer höfum ástæðu til að vona, að háskólinn verði með tímanum gróðrarstöð nýs mentalífs hjá þjóð vorri, og sjá allir hve ómetanlegt gagn það getur orðið fyrir menning vora og þjóðerni að hafa slíka stofnun hjer innanlands. Meira að segja viljum vjer vona, að háskólinn geti, þegar stundir líða, lagt sinn litla skerf til heimsmenningarinnar, numið ný lönd í ríki vísindanna, í samvinnu við aðra háskóla. Háskóli vor verður að nota sjer það samband, sem er á milli allra háskóla heimsins, einkum með því að styrkja unga efnilega náms- menn til að fara til annara háskóla að afloknu námi hjer. Annars er hætt við, að sjóndeildarhringur þeirra verði þröngur og að háskóli vor, einkum meðan hann er ófullkominn, verði að nokkurs konar kínverskum múr, sem byrgi fyrir útsýnina til alheimsmenningarinnar. Árbók Háskóla íslands 1911-1912, bls. 13 Björn M. Ólsen hefur, eins og sjálfsagt aðrir á þeim tíma, litið á hin íslensku fræði sem megin- viðfangsefni heimspekideildar ásviði kennslu og þó einkum rannsókna. En honum var samt full- ljóst að þau voru ekki og máttu ekki verða ein- angruð frá öðrum fræðum: Vjer megum ekki gera oss neinar gyllingar eða þykjast hafa himin höndum tekið, þó að vjer höfum fengið mentastofnun með háskólanafni. Því aðeins getum vjer gert oss vonir um að laga smátt og smátt það, sem áfátt er, ef vjer sjálf- ir lokum ekki augunum fyrir því, sem á brestur. Og oss brestur bæði mikið og mart . . . Þeir sem vita, hve nauðsynlegt það er fyrir hvern mann, sem vill læra íslensku til nokkurrar hlítar, að 49

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.