Mímir - 01.11.1986, Side 54

Mímir - 01.11.1986, Side 54
menntun fullgilds vísindamanns sé lokið með kandidats- eða meistaraprófi heldur þarf að tryggja þeim, sem sýna mesta hæfileika og dugnað, aðstöðu til að sinna rannsóknum áfram, helst að einhverju leyti undir handleiðslu reyndari manna. Þeir sem leggja inn á slíka braut eiga vart kost á öðrum stuðningi en fjárveiting- um úr Vísindasjóði. Þær hafa stutt margan vel en geta ekki jafnast á við rannsóknastyrki um ákveðið árabil sem víða tíðkast og eiga að nægja til að mönnum gefist kostur á að ljúka rann- sóknaverkefnum sem geti veitt þeim hæfi til sjálfstæðra vísindastarfa. Illt er til þess að vita að rannsóknastofnanir heimspekideildar skuli ekki hafa bolmagn til að leysa þennan vanda. Þær hafa unnið gott starf með tilstyrk lítilla fjárveit- inga og þyrftu að eflast að mun. Þjóðmálaskörungar íslenskir láta stundum svo um mælt á hátíðlegum stundum að við Há- skóla íslands eigi að vera miðstöð og háborg norrænna fræða í heiminum. Má mikið vera ef slík orð hafa ekki fallið á þessu afmælisári þótt þau hafi ekki borist til mín austur um haf. Þetta er falleg ósk og allt gott um hana að segja ef skilningur fylgir á því sem til þarf að hún geti ræst. Nú er það raunar svo að við hljótum að fagna því íslendingar ef rannsóknir á fornum menningararfi okkar eru reknar af skörungs- skap víðar um heiminn og okkur má vera fullur sómi að taka þátt í því starfi sem fullgildur þátt- takandi þótt ekki fáist úr því skorið eins og í íþróttakeppni að okkur beri gullverðlaun, enda gæti þá svo farið að hinir metnaðarfullu yrðu fyrir vonbrigðum. En til þess að sameiginlegur draumur íslenskra fræðimanna og íslenskra stjórnmálamanna megi rætast þurfa báðir að gera sér grein fyrir því sem til þarf. íslenskir fræðimenn þurfa að rækja þá skyldu sína að stuðla að því að vísindalegar rannsóknir og niðurstöður megi koma almennu skóla- og menningarstarfi í landinu að gagni og þannig styrkja menningarlíf þjóðarinnar og skilning hennar á menningu sinni. íslenskir stjórnmála- menn verða að skilja að þeim ber að hlúa að vísindalegri menntun og vísindalegum rann- sóknum, þótt það kosti nokkurt fé. Óslóarháskóla í sept. 1986 Frá afmælisnefnd Mímís Auk þessa blaðs hefur afmælisnefnd Mímis haft sitthvað á prjónunum. Annað meginverkefni hennar hefur verið að gangast fyrir fyrirlestrahaldi. Fyrstur reið á vaðið Sverrir Tómasson, cand.mag., með fyrirlestur sem nefndist Fyrsta málfrœðirítgerðin og íslensk menntun á 12. öld. Fyrirlesturinn var haldinn 4. október s.l. í Odda að viðstöddu fjölmenni. Næsta fyrirlestur flutti Ásdís Egilsdóttir, cand.mag., sem hún nefndiHandrit Margrétarsögu og notkunþeirra við fœðingar- hjálp. Um 50 manns komu í Odda 1. nóvember s.l. til að hlýða áÁsdísi. Þriðja fyrirlesturinn flutti svo Gísli Sigurðsson, M.Phil. í Odda 15. nóvember s.l. Nefndist fyrirlesturinn Gelísk áhrif á íslenska sagnahefð tilforna. Um 70 manns komu. Er það samdóma álit þeirra, er viðstaddir voru, að erindin hafi verið góð og allir farið fróðari af vettvangi. Afmælisnefndin er viss um að framhaldið verði eins en enn eru eftir a.m.k. sex fyrirlestrar. 4. desember n.k. mun Helga Kress, dósent, halda fyrirlestur sem hún nefnir Kvennahefð í íslenskri lýrik. Eftir áramót munu svo eftirfarandi flytja fyrirlestra á vegum Mímis: Guðrún Bjartmarsdóttir, cand.mag., Sigurður Konráðsson, cand.mag., Margrét Jónsdótir, cand.mag., Halldór Guðmunds- son, mag.art., og Ámi Sigurjónsson, fil.dr. Hugsanlega munu fleiri flytja fyrirlestra en það er ekki ákveðið. Allir þessir fyrirlestrar verða auglýstir nánar síðar. Þriðja meginverkefni afmælisnefndar er afmælisfagnaður. Ákveðið hefur verið að halda rann- sóknaræfingu Félags íslenskra fræða, Mímis og Félags sagnfræðinema og afmælishóf Mímis saman 13. desember n.k. (sjá auglýsingu annars staðar í blaðinu). Afmælisnefnd vonar að sem flestir núverandi og fyrrverandi Mímisliðar sjái sér fært að mæta og fagna afmælisbarninu. 54

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.