Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 4
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
4
Talan 67 er ekki merkileg tala. Hún er 19.
prímtalan, fjöldi fella í júdó og er hluti af
titli kvikmyndarinnar Operación 67 en hún
fjallar um glímukappa (e. wrestler) sem
reynir að koma í veg fyrir að svikarar leggi
efnahag Mexíkó í rúst. Þessar staðreyndir
um töluna 67 verða seint taldar áhugaverðar
og eflaust eru margir sem myndu segja að
67 sé minnst uppáhalds talan þeirra. Útgáfa
þessa blaðs kemur þó til með að breyta
þessu því nú hefur þú, lesandi góður, opnað
67. árgang Læknanemans. Unnið hefur verið hörðum höndum
að blaðinu í ár en að þessari miklu og góðu vinnu stóð fjöldi
framúr skarandi greinahöfunda og ritrýna, grafískur hönnuður og
6 manna ritstjórn.
Ritstjórn
Ritstjórn Læknanemans í ár varð í raun til vegna bugunar ónefnds
formanns Félags læknanema. Fimmta árs læknanemar voru komnir
saman á ölhúsi í miðbæ Reykjavíkur að fagna áfanga sem undirritaður
man ekki lengur hver var. Þetta var nóvemberkvöld árið 2015 og í
rökkvuðu horni staðarins sat þessi bugaði formaður. Nokkrir vinir
hans setjast hjá honum og spyrja hvað sé að angra hann. Daufur í
bragði og áhyggjufullur segir hann að vandamálið sé að enginn vilji
ritstýra næsta árgangi Læknanemans. Hann óttaðist að hann þyrfti
að gera það sjálfur. Bugun hans leiddi til samkenndar. Samkenndin
leiddi til þess að vinir hans fylltust eldmóði og ákváðu að binda enda
á bugunina. Þeir mynduðu teymi og úr varð ritstjórn Læknanemans
2016 en hún samanstendur af 6 læknanemum sem hafa undanfarna
mánuði lagt einkalíf og annan óþarfa á hilluna til að blaðið geti orðið
sem veglegast og skemmtilegast.
Vinna ritstjórnarinnar væri þó gagnslaus ef ekki væri fyrir læknanema
á þriðja ári. Fjármögnun blaðsins byggir á þrotlausri leit þeirra að
aðilum er vilja greiða fyrir auglýsingapláss á síðum blaðsins. Þessir
fyrirmyndarlæknanemar eiga skilið sérstakar þakkir.
Ritstjórn naut einnig dyggrar aðstoðar Engilberts Sigurðssonar, Karls
Andersen og Einars Stefáns Björnssonar. Þeir eru faglegir ritstjórar
Læknanemans og hafa veitt ristjórninni góð ráð og handleiðslu. Innsýn
þeirra í heim vísindatímarita er ómissandi enda er Læknaneminn, líkt
og önnur vísindatímarit, uppfullt af áreiðanlegum fróðleik.
Fræðsla
Læknaneminn er og hefur lengi verið mjög eigulegt tímarit með
hagnýtum upplýsingum sem nýtast vel í námi og starfi læknanema
og unglækna. Á undanförnum árum hefur sífellt meira verið
lagt í fræðilegan hluta blaðsins og er Læknaneminn í dag fimm
stiga vísindatímarit sem viðurkennt er af Háskóla Íslands. Þessa
viðurkenningu fær blaðið meðal annars fyrir að innihalda fimm greinar
sem ritrýndar eru af sérfræðingum í viðfangsefni þeirra. Í ár eru fimm
fræði- og yfirlitsgreinar og fjórar tilfellisgreinar í Læknanemanum.
Hver grein var ritrýnd af 2-3 sérfræðingum og hvert tilfelli af einum
sérfræðingi og fá þeir sérstakar þakkir fyrir vinnuframlag sitt.
Blaðið inniheldur sömuleiðis nóg af óritrýndum fróðleiksgreinum
sem eru ýmist skrifaðar af sérfræðingum í viðfangsefninu eða unnar í
samráði við þá. Vert er að nefna að markmið ritstjórnar var að fræðsluefni
blaðsins myndi varða eins margar sérgreinar læknavísindanna og
mögulegt væri svo fróðleikurinn höfði til nema á öllum árum. Því má
finna í blaðinu viðfangsefni sem koma að sérgreinum sem eru bæði
kenndar á klínísku og pre-klínísku námsárunum við læknadeild. Það
er þó engum læknanemum hollt að lesa einungis námsefnið og því
inniheldur blaðið nóg af ýmsu afþreyingar- og skemmtiefni.
Skemmtun
Síðasti hluti blaðsins í ár er helgaður skemmtiefni. Má þar finna
til dæmis stórskemmtilegar ljósmyndir frá hverjum árgangi
læknadeildar. Sömuleiðis reyndum við eftir bestu getu að hafa góðar
ljósmyndir með öllum greinum. Má þar sérstaklega nefna tvær
greinar er varða hlustunarpípuna en hún á einmitt stórafmæli í ár.
Rannsóknarblaðamaður ritstjórnarinnar á stóran hlut í annarri þeirra
og komst sömuleiðis, eftir mikla vinnu, að leyndardómum ýmissa
hluta í eigu sérfræðinga. Ritstjórn þurfti þó að finna blaðamann utan
ritstjórnar til að rannsaka falinn gest á árshátíðarljósmynd fimmta
árs læknanema en sá óskaði eftir að vera ónafngreindur. Annað
sem blaðið býður upp á eru ráðleggingar um lesefni sem eru ekki
námsbækur, ferðasögur læknanema til Indónesíu, Möltu og Ísafjarðar,
myndgreiningargáta, krossgáta, geðlækningaspil og margt fleira.
Allar þessar greinar hafa sett bros á vör ritstjórnar og munu að öllum
líkindum gleðja lesendur líka þegar blaðið kemur út.
Við vonum að Læknanemi ársins 2016 muni nýtast læknanemum
og læknum til fræðslu og skemmtunar um komandi ár en hann er
fyrirtakslesning í frestunaráráttu hvunndagsins þegar námsefnið
safnast upp. Gerð tímaritsins var erfitt ferðalag en að því loknu eru
ritstjórnarmeðlimir þroskaðri og betur búnir undir læknisfræðilega
framtíð. Sumir myndu jafnvel segja að heimurinn væri betri staður
við útgáfu blaðsins enda hefur talan 67 öðlast nýtt líf og nýjan tilgang.
Undirritaður telur það líklegt en þorir þó ekki að fullyrða það. Við í
ritstjórn erum mjög stolt af þessu blaði og viljum þakka kærlega öllum
þeim sem að því komu. Flettið, lesið og njótið.
Ávarp ritstjórnar
Arnljótur Björn Halldórsson
ritstjóri Læknanemans 2016