Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 104
Fr
óð
le
ik
ur
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
stl
ar
104
Guðmundur Þorgeirsson
Hlustpípan mín er framleidd af Hewlett
Packard og er af gerðinni Rappaport-
Sprague. Þetta er kostagripur sem ég
eignaðist á miðju sumri 1981. Síðan
er reyndar búið að endurnýja bjöllu,
himnu og báðar gúmmíslöngurnar
sem tengja haus hlustpípunnar við
eyrna stykkin. Þótt þannig séu aðeins
hausinn og eyrnastykkin
eftir af gripnum góða frá
1981 höfum við, undirritaður
og hlustpípan, tengst
tryggðaböndum og setjum
ekki fyrir okkur smáatriði.
Ekkert áhald eða tæki hefur
verið lengur í minni eigu og
ekkert hef ég notað meira
og að sjálfsögðu hefur ekkert
komist í snertingu við fleiri
sjúklinga. Ekki hef ég tölu
á þeim fjölda sjúkdóms-
greininga þar sem hlustpípan
hefur komið við sögu. Hins
vegar man ég glöggt eftir
öðru hjarta hljóði í konu um fertugt
sem kvartaði um vaxandi mæði við
áreynslu og hjartsláttar óreglu. Hún
hafði mjúkt, annarrar gráðu, tígullaga
útstreymisóhljóð í slagbili sem heyrðist
best yfir lungnaslagæðarlokunni, en
að auki hafði hún annað hjartahljóð
sem var vítt klofið og breyttist ekki
við öndun (e. fixed splitting). Þar með
lá greiningin fyrir: op í gáttaskilvegg
hjartans eða ASD (e. atrial septal defect).
Eftir staðfestingu greiningar með við-
eigandi rann sóknum gekkst hún undir
skurð aðgerð þar sem gatinu var lokað
og er þar með úr sögu þessari.
Önnur eftirminnileg hlustun með
hlust pípunni góðu leiddi fram lágtíðni
drunur í hlébili (e. diastolic rumble),
ótvíræð iðu köst frá þröngri mítur loku,
afleiðing gigt sóttarskemmda í æsku.
Eftir að Bjarni Torfason hafði skipt um
lokuna tók við margra áratuga prýðileg
heilsa og gjöfult starf í frystihúsi úti
á landi. Sjald gæfu tilfellin eru alltaf
minnis stæðust en varla líður sá dagur
í lífi hjarta læknis að hlust pípan hjálpi
ekki til við greiningu eða mat á ósæðar-
loku þrengslum, mítur leka, hjarta bilun,
gollurs húss bólgu, há þrýstingi, þrengsl-
um í stórum slagæðum, og svo má lengi
telja. Hjartalæknar barna hafa einnig
langan lista sem mótast af
fjölbreyti legum með fæddum
hjarta göllum sem er heillandi
svið og ekki síður mikil vægt.
Og þá eru ótalin þau not sem
fást af hlust pípunni við grein-
ingu lungna sjúkdóma, mat
á þarma hreyfingum og fleira.
Hlustpípan sem greiningar-
tæki á tvegg ja alda afmæli á
þessu ári og er enn í notkun
nánast allra lækna, hvar
sem er í veröldinni og hvert
sem verksvið þeirra annars
er. Sá kunni franski læknir
René-Théophile Hyacinthe Laennec
fær heiðurinn af því að hanna fyrstu
hlustpípuna árið 1816. Fyrst notaði
hann einfalda pappírsörk sem rúllað var
upp í sívalning og annar endinn lagður
við brjóst sjúklings í þeim háttvísa
tilgangi að læknirinn þyrfti ekki að
leggja eyrað milliliðalaust að brjósti
Hlustpípan mín
„Fyrst notaði hann einfalda
pappírsörk sem rúllað var upp
í sívalning og annar endinn
lagður við brjóst sjúklings
í þeim háttvísa tilgangi að
læknirinn þyrfti ekki að leggja
eyrað milliliðalaust að brjósti
sjúklingsins, einkum þegar
konur áttu í hlut.“