Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 17
Ri
trý
nt
e
fn
i
17
Af himnum
og húð
– Stutt yfirlit yfir tvær
alvarlegar sýkingar.
Í þessari grein verður
fjallað stuttlega um tvær
óskyldar en alvarlegar
sýkingar, heila himnubólgu
af völdum bakt ería (e.
bacterial menin gitis) og
drep myndandi fells bólgu
(e. necrotizing fasciitis).
Mikil vægt er fyrir alla
lækna nema að þekkja og
kunna góð skil á birtingar mynd og með ferð heila-
himnu bólgu og drep mynd andi fells bólgu vegna
alvar leika þeirra. Um fjöllun þessi er einkum ætluð
læknanemum sem eru að stíga sín fyrstu skref í
klínísku námi.
Heilahimnubólga af völdum
baktería
Hvað er heilahimnubólga?
Heilahimnubólga er sjúkdómsástand sem orsakast
af veirum, bakteríum, sveppum, lyfjum eða fyrir
til stuð lan ónæmiskerfisins1. Hér verður fjallað
sérstaklega um heilahimnubólgu af völdum
baktería. Bólga mynd ast í heila himnum vegna
samspils mein valdandi þátta bakt eríunnar og
undir liggjandi ónæmis- og/eða erfðafræðilegra
eiginleika einstaklingsins2. Í flest um tilfell um er
sýkingin blóð borin. Mein gerð heila himnu bólgu,
sjúkdómsmynd og fylgikvillar eru taldir að miklu
leyti tilkomnir vegna eðlilegrar en óheppilegrar
bólgu svörunar í líkamanum3.
Hvaða bakteríur valda heilahimnubólgu?
Algengustu orsakavaldar heilahimnubólgu eru
Strepto coccus pneumoniae (pneumókokkar), Neisseria
menin gitidis (meningókokkar), Haemophilus influ
enzae af hjúpgerð B, Escherichia coli, Listeria
mono cytogenes og streptókokkar af flokki B (e.
group B streptococci, GBS)3-6. Vert er þó að hafa
í huga að undir ákveðnum kringum stæðum
geta flestar bakeríur valdið heila himnu bólgu.
Mænuvökva hjáveita og aðrar aðgerðir á heila eru
til dæmis vel þekktir áhættuþættir fyrir heila-
himnu bólgu af völdum Staphylo coccus aureus3.
Rannsóknir hafa sýnt að orsök heilahimnubólgu
er mis munandi þegar þýðinu er skipt upp í
aldurshópa2-6. Þetta er mikilvægt og hjálplegt að
hafa í huga þegar raunvís sýklalyfjameðferð er valin.
Gróflega má skipta þýðinu upp í þrjá aldursflokka
með tilliti til meinvaldandi baktería:
• ≤ 50 daga: GBS, E. coli og L. monocytogenes.
• > 50 daga - 50 ára: Meningókokkar,
pneumókokkar og H. influenzae af hjúpgerð B.
• > 50 ára: Pneumókokkar, meningókokkar,
Gram-neikvæðir stafir og L. monocytogenes3.
Tíðni heilahimnubólgu af völdum pneumókokka,
meningó kokka og H. influenzae hefur breyst
hratt á undan förnum áratugum þökk sé tilkomu
bóluefna4-7. Árið 1986 orsakaði H. influenzae af gerð
B 45% allra tilvika af samfélags heilahimnubólgu í
Bandaríkjunum en í kjölfar bólu setninga sem hófust
árið 1990 hafði heildar fjöldi tilfella lækkað um 94%
árið 19967. Bólu setningar hófust árið 1989 á Íslandi
og í samantekt á heilahimnu bólgu í börnum, sem
náði til ársins 2010, greindist einungis eitt tilfelli af
H. influenzae af hjúpgerð B eftir árið 19905.
Hverjir fá heilahimnubólgu?
Sýkingar eru tilkomnar vegna samspils ónæmiskerfis
einstaklingsins, sýklabyrði meinvaldandi bakteríu og
umhverfis2. Flest tilfelli af bakteríuheilahimnubólgu
greinast í börnum og öldruðum7. Þetta er talið vera
vegna óþroskaðs ónæmiskerfis í börnum og svo
hnignunar í ónæmiskerfi aldraðra2,3. Ónæmisbæling
vegna lyfja, undirliggjandi sjúkdóma eða fyrri
miltistaka eru mikilvægir áhættuþættir8.
Talið er algengast að heilahimnubólga vegna baktería
sé blóðborin og getur verið fylgikvilli annarra
sýkinga svo sem lungnabólgu og hjartaþelsbólgu
Davíð Ólafsson
sjötta árs læknanemi 2015-2016
Leiðbeinandi: Sigurður Guðmundsson
sérfræðingur í almennum lyflækningum og
smitsjúkdómalækningum.