Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 9
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
9
Við í Kennslu- og fræðslu-
málanefnd (KF) höfum átt
ágætis ár eins og venju-
lega. Við stóðum fyrir
nokk rum vel heppnuðum
at burð um og stóðum
okk ar vakt sem full trúar
nem enda í kennslu ráði
og deildar ráði en fram undan í deild inni
er eitt stærsta mál síð ustu ára, fyrir huguð
fjölg un lækna nema úr 48 á ári í 60.
Árlegi sérnámsfundurinn var á sínum stað
með aðeins breyttu þema. Áður var áhersla
á að velja milli Bandaríkjanna og Svíþjóðar
þeg ar kom að sérfræðinámi og mættu því einn
lyflæknir og einn skurðlæknir frá hvoru landi
ásamt 1-2 öðrum sérfræðingum. Í ár var
áhersla lögð á fleiri sérgreinar og voru því
fengnir sérfræðingar úr fleiri greinum og
jók það fjölbreytni fundarins. Mætingin var
góð og kynningarnar enn betri. Kynning á
United States Medical Licensing Examination
(USMLE) og umsóknarferlinu um sérfræði-
nám í Bandaríkjunum var haldin sér í staðinn
fyrir að vera hluti af sérnámsfundinum.
Árlegur hjartahlustunarfræðslufundur var
einnig á sínum stað með hefðbundnu sniði
og heppnaðist vel. Holsjárkeppnin var líkt og
sérnámsfundurinn með breyttu sniði, þrautin
var flóknari en áður og þannig reyndi meira
á samvinnu og voru verðlaun veitt eftir því.
Þátttakan hefði mátt vera betri en allir sem
tóku þátt skemmtu sér konunglega. Oddur
Björnsson og Daníel Arnarson á fimmta ári
sigruðu. Engin stórslysaæfing var í ár þar sem
hún er haldin annað hvert ár en hún verður
væntanlega á sínum stað á næsta ári.
Til undirbúnings fyrir umræðuna í deildinni
um fjölgun læknanema höfum við í KF,
í sam starfi við stjórn Félags læknanema, lagt
könnun fyrir nemendur og haldið vinnufund
með læknanemum. Við nemendur eigum
sæti í vinnuhópum deildarinnar vegna þessa
máls og munu niðurstöður vinnufundarins og
könnunarinnar nýtast vel í þeim umræðum.
Vegna fyrirhugaðar fjölgunar stendur til að
endurskoða námið í heild sinni og er það
kjörið tækifæri fyrir okkur að koma okkar
sjónarmiðum á framfæri hvort sem verður svo
af þessari fjölgun eða ekki.
Í kennsluráði höfum við beitt okkur fyrir
nokkrum málum, til dæmis upptökum
á fyrir lestrum, prófsýningum, betri kennslu-
könnunum, að fá aðgang að Uptodate aftur,
losna við ólífræna efnafræði, hugsanlega fá inn
vísindalæsisáfanga á fyrsta ár í staðinn og að
losna við eða breyta algjörlega þverfræðilega
áfanganum á fimmta ári. Þá héldum við
okkar eigin kennslukönnun um þverfræðilega
áfangann þar sem mikil óánægja með hann
kom í ljós.
Framundan er nýtt ár með nýjum verk efnum.
Við munum halda áfram að koma sjónar-
miðum nem enda á fram færi í nefndum og
ráð um deild arinnar, sérstak lega í væntan-
legri endur skipulagningu vegna hugsanlegrar
fjölg unar lækna nema, og væntanlega halda
alla þá við burði sem við erum vön að halda.
Starfsárið 2015-2016 var
við burðaríkt að vanda hjá
Lýðheilsufélagi læknanema.
Í ágúst slóst undirrituð í
för með fulltrúum Alþjóða-
nefndar á ágúst þing alþjóð-
legu læknanema sam tak anna IFMSA. Þetta
var í fyrsta skipti sem fulltrúi frá Lýðheilsu-
félaginu sótti þingið en vonandi ekki það
síðasta. Á ágústþinginu var fundað daginn
út og inn um lýðheilsutengd málefni og
listi yfir verkefni sem væri gaman að sinna
hér lengdist hratt, enda af mörgu að taka
þegar lýðheilsa er annars vegar. Í vetur
var lýðheilsufélögum í Evrópu úthlutað
vinafélagi. Við fengum Möltu sem okkar
vinafélag og höfum verið í miklum og góðum
samskiptum við þau. Lærdómsrík og gefandi
þátttaka í SCOPH, lýðheilsugrein IFMSA,
setti spor sitt á starfsárið 2015-2016 og við
hlökkum til að halda henni áfram.
Venju samkvæmt var Bangsaspítalinn haldinn
í október. Í ár var spítalinn í fyrsta skipti
opinn í tvo daga, vegna aukinna vinsælda
síðustu ár. Vinsældirnar létu ekki á sér standa
en um 1200 börn mættu með bangsana sína
á Bangsaspítalann. Bangsalæknarnir voru við
öllu búnir en þeir bólusettu bangsa, gipsuðu
brotna fætur og læknuðu göt í hjörtum.
Bangsalæknar létu sig heldur ekki vanta á
Fjölskyldudag Stúdentaráðs Háskóla Íslands
á Háskólatorgi í október. Í byrjun nóvember
var Bangsaspítalinn svo opinn á Selfossi
en það er orðinn fastur liður í dagskrá
Lýðheilsufélagsins. Á síðasta starfsári var
tilraunaverkefnið Bangsavaktin, sem felur í
sér heimsóknir bangsalækna á leikskóla, sett
á laggirnar. Bangsavaktin var einnig starfandi
í vetur, við góðar undirtektir, og stefnum við
á að halda þessu verkefni áfram á næsta ári.
Í upphafi nýs árs var geðheilsa læknanema
í brennidepli og er ljóst að geðheilsa er málefni
sem læknanemar láta sig varða. Engilbert
Sigurðsson ræddi við læknanema um efnið
á fjölsóttum fræðslu- og umræðufundi. Þetta
verkefni er dæmi um hugmynd sem fæddist
vegna þátttöku Lýðheilsufélagsins í IFMSA,
en geðheilsa læknanema hefur verið mikið
í umræðunni innan lýðheilsuhluta þess.
Blóðgjafamánuður Háskóla Íslands var hald-
inn í mars. Nemendur og starfsfólk Há-
skólans var hvatt til að gefa blóð og var
efnt til keppni milli nemendafélaga um
flestar blóðgjafir. Naglar, félag Umhverfis-
og Byggingarverkfræðinema báru sigur úr
býtum með hlutfallslega flestar blóðgjafir, en
læknanemar létu ekki sitt eftir liggja og voru
með flestar blóðgjafir í heildina. Pósturinn gaf
Göngum saman, félagi sem styrkir grunn-
rannsóknir á brjóstakrabbameini, 500 krónur
fyrir hverja blóðgjöf.
Í mars stóð Lýðheilsufélagið einnig fyrir
blóðtöku seminari fyrir læknanema. Var það
tvískipt í ár, líkt og í fyrra, þar sem fyrri
dagurinn var ætlaður fyrsta og annars ár
nemum en sá seinni annars árs nemum og
upp úr. Á blóðtökuseminarinu fengu lækna-
nemar tækifæri til að æfa sig í blóðtöku og
upp setningu æða leggja og að fræðast um
blóð ræktanir, blóð gös, lyfja gjafir og mikil vægi
góðs hand þvottar. Þetta eru atriði sem munu
vonandi nýtast preklínískum læknanemum
vel í sumar störfum á hjúkrunarheimilum og
auðvelda fyrstu skrefin í klíník.
Lýðheilsufélag læknanema þakkar fyrir gott
og skemmtilegt starfsár!
Kennslu - og
fræðslu mála-
nefnd
Lýðheilsufélag
læknanema
Aðalsteinn Hjörleifsson
formaður Kennslu- og
fræðslumálanefndar
Íris Kristinsdóttir
formaður Lýðheilsufélags læknanema