Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 40
Ri
trý
nt
e
fn
i
40
Inngangur
Í eftirfarandi umfjöllun
verður leitast við að varpa
ljósi á nokkra algenga
húð sjúkdóma; barnaexem,
þrymla bólur, vörtur
og frauðvörtur. Fjallað
verður um orsakir þeirra,
grein ingu og möguleg
meðferðarúrræði.
Barnaexem
Barnaexem (e. atopic
eczema, atopic dermatitis)
er langvarandi bólgu-
sjúkdómur í húð sem
einkennist fyrst og fremst af
þurrki og hrjúfum, rauðum
húðbreytingum. Oftast kemur sjúkdómurinn fram
á fyrsta aldursári en hann getur komið fram á
hvaða aldri sem er, þó oftast fyrir tvítugt1. Algengi
sjúkdómsins er mjög breytilegt milli landa en talið
er að hann hrjái allt að fimmtung íbúa í hinum
vestræna heimi2. Talsverð aukning hefur orðið á
algengi barnaexems á síðastliðnum 30-40 árum.
Samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar,
International Study of Astma and Allergies in
Childhood (ISAAC), virðist þó algengi barnaexems
í aldurshópnum 13-14 ára hafa náð hámarki og
jafnvel lækkað í mörgum löndum sem áður höfðu
hátt nýgengi, svo sem í Bretlandi og Nýja-Sjálandi.
Á öðrum svæðum hefur algengið aukist, ekki síst í
þróunarlöndum3.
Barnaexem er algengt heilsufarsvandamál sem
getur haft mikil áhrif á lífsgæði einstaklingsins sem
á í hlut. Því getur til að mynda fylgt mikill kláði og
jafnvel svefnörðugleikar en ekki síst léleg sjálfsmynd
og óöryggi í félagslegum samskiptum. Einnig
getur barnaexem valdið álagi á fjölskyldu, fjarveru
umönnunaraðila frá vinnu og umtalsverðum
fjárútlátum1,2,4.
Greining barnaexems byggir alfarið á sögu og
skoðun. Dæmigerð einkenni bráðs exems eru
kláði, þurr húð og illa afmarkaðir roðaflekkir sem
oft innihalda litlar, rauðbleikar bólur (e. papules)
eða jafnvel blöðrur sem vessar úr (mynd 1). Hjá
ungbörnum er algengast að húðbreytingarnar
séu í andliti og á réttihlið útlima en hjá eldri
einstaklingum eru þær oftast í húðfellingum, svo
sem olnbogabótum og hnésbótum. Oft sést tvöföld
húðfelling undir augum, svokallaðar Dennie-
Morgan línur, sem orsakast af bjúg í húðinni.
Langvinnt exem einkennist oft af klórförum og
stundum þykknun húðar (e. lichenification)1,2,5.
Húð einstaklinga með barnaexem er mót tæki-
legri fyrir ýmsum sýkingum, einna helst af völdum
Staphylococcus aureus. Börnum og unglingum
Nokkur algeng
húðvandamál
Yfirlitsgrein um orsakir, greiningu
og möguleg meðferðarúrræði
Anna Mjöll Matthíasdóttir
fimmta árs læknanemi 2015-2016
Eyrún Arna Kristinsdóttir
fimmta árs læknanemi 2015-2016
Jón Hjaltalín Ólafsson
sérfræðilæknir