Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 7
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
7
Annálar
ekki nemenda. Sérstaklega þótti okkur halla
á nema í grunnnámi. Sem dæmi var ekkert
kveðið á um breytingar á kennsluháttum
eða kennsluformi við háskólann. Stjórn
FL skilaði því séráliti og ég fór á fund með
rektor HÍ, stúdentaráði og fleirum þar sem
athugasemdum FL voru gerð skil. Í kjölfarið
voru gerðar breytingar á stefnu HÍ en
fullmótuð og nýútgefin stefna inniheldur nú
talsvert af þeim hugmyndum sem við settum
fram í okkar athugasemdum. Athugasemdir
FL má nálgast í heild sinni á laeknanemar.is.
Til viðbótar við þessi stóru og verðugu verkefni
höfum við í stjórn einnig unnið að minni
verkefnum. Kökuboð stjórnar var til dæmis
haldið á vordögum þar sem félagsmönnum
FL var boðið í kaffi og kökur heim til mín.
Þar var skeggrætt um hin ýmsu málefni
sem snúa að læknanemum yfir vægast sagt
fermingarlegum veitingum. Hjartadagurinn
var haldinn í fyrsta skipti en hann er
samstarfsverkefni stjórnar FL, Kennslu- og
fræðslumálanefndar og IcePharma. Um er að
ræða viðburð fyrir klíníska læknanema með
gagnvirkri og tilraunakenndri kennslu um
hjartasjúkdóma á undan sérstöku hjartapartýi
á vegum FL. Sjálfsalar voru einnig settir upp
í æknagarði en þegar Háma lokar á daginn
og yfir sumartímann hefur verið fátt um fína
drætti hvað varðar mat og drykk í Læknagarði.
Skólaárið 2015-2016 er búið að vera frábært
ár. Ég hef fengið að vinna með mörgum
klárum og skemmtilegum læknanemum
sem hafa magnaðan drifkraft. Það hafa verið
forréttindi að fá að vera formaður FL, kynnast
ykkur og fá að vera í forsvari fyrir þennan
frábæra hópa af efnilegu fólki. Ég er ykkur
öllum afar þakk látur fyrir allt það sem við
höfum gert og áorkað saman. Sérstaklega vil
ég þó þakka þeim sem hafa verið með mér
í stjórninni: Sólveigu Bjarnadóttur, Rögnu
Sigurðar dóttur, Jóhönnu Brynjarsdóttur,
Valgerði Bjarnadóttur og Kjartani Loga
Ágústssyni. Í þeim hef ég ekki bara fundið
frábært samstarfsfólk heldur líka góða og
innilega vináttu sem ég veit að mun endast
okkur lífið. En nú er klukkan orðin margt
og ég er orðinn meyr. Takk fyrir frábært ár.
Sjáumst í vísó á næsta ári.
Hvað er IMSIC?
Alþjóðanefnd lækna-
nema (e. Icelandic Med
ical Stud ents Inter national
Comm ittee, IMSIC) er
aðildar félag að alþjóða -
félaga samtökum lækna-
nema (e. Inter national
Fede ration of Medical Students Associ ations,
IFMSA). IFMSA saman stendur af yfir 127
aðildar félögum og tengir saman 1,3 milljónir
læknanema um heim allan. Starfsemi
IFMSA fer fram á sex meginsviðum: klínísk
nemendaskipti, lýðheilsa, kyn fræðsla, læknis-
fræðimenntun, rannsóknartengd nem-
enda skipti og mann réttindi. Einnig fer
fram mikil vinna við að ræða, semja og gefa
út álykt anir um málefni líðandi stundar í
heiminum. Alþjóðanefnd hefur verið fulltrúi
í samtökunum frá 1957 eða í tæp 60 ár og
við höfum starfað á vettvangi klínískra
nemendaskipta. Þau hafa verið mikið
stunduð af íslenskum læknanemum og gefa
kost á að kynnast nýju heilbrigðiskerfi og
lifnaðarháttum fjarri heimahögum. Slíkt
getur verið afar þroskandi reynsla og sett nám
og vinnu hér heima fyrir í nýtt samhengi.
Einnig höfum við verið málsvarar læknanema
við Háskóla Íslands á alþjóðaráðstefnum og
jafnan sent fulltrúa ár hvert á bæði samnorræna
ráðstefnu (e. Federation of International
Nordic Students Organizations) og aðalfund
IFMSA sem kallast ágústfundur (e. August
meeting, AM).
Starfsemin
Helsta starfsemi Alþjóðanefndar fer fram
yfir sumartímann við það að halda úti skipti-
náminu fyrir erlenda skiptinema hérlendis.
Yfir vetrarmánuðina fer þó einnig fram vinnu-
frekt umsóknarferli sem mest er á könnu inn-
og útskiptastjóra. Í ár settum við okkur einnig
markmið fyrir starfsárið sem við erum mjög
stolt af til þess að skerpa á áherslu atriðum og
Alþjóða nefnd
Hannes Halldórsson
formaður Alþjóðanefndar
Stjórn Alþjóðanefndar 2015-2016. Efri röð frá vinstri: Einar Friðriksson, Bjarni Rúnar Jónasson,
Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir, Hannes Halldórsson, Árný Jóhannesdóttir. Neðri röð frá vinstri: Linda Björk
Kristinsdóttir, Stella Rún Guðmundsdóttir, Árni Johnsen, Herdís Hergeirsdóttir. Á mynd vantar Jóhönnu
Vigdísi Ríkharðsdóttur og Helgu Þórunni Óttarsdóttur.
2015 2016