Læknaneminn - 01.04.2016, Blaðsíða 125
Fr
óð
le
ik
ur
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
stl
ar
125
nokkrir lykilsjúkdómar (til dæmis hjartabilun
og sykursýki) notaðir til að skýra lykilferla
lífefna- og lífeðlisfræðinnar. Í lok einnar
málstofu var haldin spurningakeppni en í lok
síðustu málstofunnar var umræðufundur um
efnaskipti etanóls og í kjölfarið haldin verkleg
æfing á bar í miðbænum.
Alls voru 33 nemar á fimmta og sjötta ári
sem tóku þátt og mikill metnaður var lagður
í kennsluna. Ég fékk að sitja inni með annars
árs nemunum og það var alveg ótrúlega
skemmtilegt að sjá hvernig kennarar leituðu
nýrra leiða til að gera námsefnið skemmtilegt
og áhugavert. Sömuleiðis var gaman að sjá hvað
annars árs nemarnir voru móttækilegir fyrir
kennslunni. Þau hlustuðu af áfergju, spurðu
góðra spurninga og voru mjög áhugasöm og
jákvæð, meira að segja þegar gleymdist að
redda mat þegar kennsla stóð í eitt skipti til
hálf átta.
Í lok verkefnisins var haldin könnun, bæði
meðal nema og kennara og í ljós kom
gríðarleg ánægja með verkefnið. Allir þeir
sem svöruðu vildu hafa þessa kennslu sem
hluta af námskeiðunum og augljóst af
svörum að verkefnið hafi bæði aukið áhuga
og þekkingu á lífefna- og lífeðlisfræði
(mynd 1 og 2). Nemendur voru líka mjög
ánægðir með kennarana (mynd 3) sem sjálfir
voru mjög ánægðir með að hafa tekið þátt.
Kennurum fannst þeir læra nýja hluti (mynd
4) og upplifðu að þau hefðu sjálf viljað fá svona
kennslu (mynd 5). Öll vildu þau taka þátt
í svona kennslu aftur. Alls fékk námskeiðið
meðaleinkunnina 9,13 sem ætti nú að teljast
frekar góð meðaleinkunn.
Niðurlag
Það er ljóst að þessi tilraun til að koma klín-
ískum læknanemum að kennslu grunn nema
hafi gengið vel. Kannanirnar sýna mikla
ánægju nemenda og kennara. Forstöðumenn
nám skeiðanna og kennslustjóri læknadeildar
komu og fengu að vera með í kennslunni og
þau hafa verið mjög jákvæð í garð verkefnisins.
Nú er því stefnt að því að koma svona kennslu
formlega inn í læknanámið, jafnvel á næsta
ári. Kennarar úr öðrum námskeiðum hafa
einnig lýst yfir áhuga og í febrúar voru nokkrir
fimmta árs nemar sem kenndu umræðutíma
í frumulíffræði við góða raun. Vonandi er
þetta byrjunin á spennandi breytingum sem
gætu haft mikil og jákvæð áhrif á kennslu við
læknadeild. Við sem stóðum að verkefninu
erum mjög stolt af því og ótrúlega þakklát
öllum þeim sem komu að. Það verður
spennandi að sjá hvernig þessi hugmynd
þróast á næstu árum og við hlökkum mikið til
að vera virkir þátttakendur í þeirri þróun.
Hvað var gott?
„Námskeiðið gaf mér innsýn í tilgang námsefnisins. Kennurum tókst
á skemmtilegan og skilvirkan hátt að brúa bilið milli grunnnáms og
klínísks náms sem varð til þess að áhugi minn á námsefninu og metnaður
fyrir námskeiðunum jókst. Tímalengdin var hæfileg og kennararnir
voru opnir fyrir spurningum og jákvæðir gagnvart námsefninu sem var
hvetjandi þegar kom að lærdómi.“
„Það var frábært hvað við fengum að taka þátt í þessu með því að vera
spurð spurninga, við þurftum klárlega að vera með puttann á púlsinum
sem var mjög skemmtilegt. Maður kann víst meira en maður heldur.
Kennararnir voru allir mjög flottir og hæfir og komu sínu til skila.“
Hvað hefði getað farið betur?
„Efnistök kennara mættu vera betur niðurnjörvuð og skipulögð, sumir
svolítið of víðtækir.“
„Passa upp á tímastjórn svo allir séu búnir á sama tíma fyrir næstu
málstofu. Ef það er löng stöð þá stilla hinar eftir þeirri stöð svo tíminn
fari ekki út um allt.“
11
6
1
2
16
Kennslan jók
áhuga minn
á efninu
17
2
14
5
16
3
Svör nema Svör kennara
Athugasemdir nema
Mynd 1:
Mynd 2:
Mynd 3:
Mynd 4:
Mynd 5: