Læknaneminn - 01.04.2016, Page 8

Læknaneminn - 01.04.2016, Page 8
Á vö rp o g an ná la r 8 verkferlum. Þau markmið, auk reynslusagna og annarra upplýsinga má finna á heimasíðu okkar, imsic.org. Skiptinám Sumarið 2015 fóru níu íslenskir læknanemar til Indónesíu, Ítalíu, Danmerkur, Noregs, Möltu og Bandaríkjanna. Að sama skapi tók um við á móti nemum frá Austurríki, Síle, Danmörku, Finnlandi, Gana, Hollandi, Indónesíu, Ítalíu, Kanada, Slóvakíu, Svíþjóð, Tævan og Þýskalandi. Húsnæðismál Grundvallaratriði þess að geta haldið út skiptum sem þessum er að geta tekið á móti og hýst erlenda læknanema. Áður fyrr hafði Alþjóðanefnd afnot af húsnæði við Kleppsspítala og sum arið 2014 fengum við þar inni aftur. Það tókst fyrir tilstilli mikillar elju fyrrum nefndar meðlima og mikils stuð- nings frá Guðmundi Sævari Sævarssyni, deildar stjóra á geðsviði og fleirum. Án þessa væri ekki hægt að halda starfseminni úti og eru þeim færðar góðar þakkir fyrir. Félagslíf Sumarið 2015 var afar líflegt og tókst okkur að halda úti öflugu félagslífi fyrir skiptinemana og okkur sjálf með góðri hjálp frá öflugum tengiliðum. Í júlí var farin helgarferð á Snæfellsnes og dagsferð þar sem meðal annars var farið í hellaskoðun. Í ágúst var farin helgarferð til Vestmannaeyja og keyrt um Suðurlandið og var einnig farin dagsferð um gullna hringinn. Eins voru haldin tvö alþjóðakvöld þar sem allir buðu upp á mat og drykk frá sínu heimalandi. Til viðbótar við vikuleg bjórkvöld voru skiptinemarnir einnig duglegir að fara í sund, fara í mat með tengiliðunum og ferðast á eigin vegum. Ráðstefnur og erlent samstarf Í ágúst 2015 sendi Alþjóðanefnd þrjá fulltrúa á AM í Möltu, þau Aðalheiði Elínu Lárusdóttur, Árna Johnsen og Bjarna Rúnar Jónasson og með í för var einnig fulltrúi frá Lýðheilsufélaginu, Íris Kristinsdóttir. Þar voru skiptasamningar fyrir næsta starfsár gerðir, mynduð ný tengsl og tekið þátt í almennri dagskrá. Í október 2015 sendi Alþjóðanefnd svo sex fulltrúa á FINO í Noregi þar sem meginstef ráðstefnunnar voru nýju Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og þar var Sæmundur Rögnvaldsson, formaður FL, með í för. Undan farin ár hefur sú umræða aukist að önnur læknanemafélög á Íslandi eigi að taka meiri þátt í alþjóðlegu samstarfi á vegum IFMSA. Alþjóðanefnd fagnar því framtaki og vill hvetja öll sín samstarfsfélög áfram á þessari braut. Fyrir hvert samstarfsfélag er tilsvarandi svið innan IFMSA þar sem hægt er að láta til sín taka. Gott fyrsta skref er að senda fulltrúa á alþjóðlegar ráðstefnur, skapa sér tengiliði og taka þátt í starfseminni. Framhaldið Komandi sumar stefnir í metþátttöku íslenskra læknanema í starfinu en fyrirhugað er að 19 einstaklingar sæki skiptinám í mánaðartímabil víðs vegar um heiminn. Þetta ber vitni um hvernig þessu starfi hefur vaxið ásmegin og áhuginn verið að aukast undanfarin ár. Við höfum verið svo heppin að fá gott fólk ár eftir ár, stjórnarmenn, tengi liði og aðra, sem hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu Alþjóðanefndar. Það er mikill heiður að hafa fengið að vinna með öllu þessu frábæra fólki. Enn eitt viðburðaríkt ár Full trúa ráðs að baki. Dag- skrá vetrarins er orðin nokk uð stöð luð enda engin ástæða til að breyta því sem vel gengur. Veturinn byrjaði með ný- nema ferð þar sem nýir læknanemar hafa tækifæri til að kynnast starfinu og hver öðrum, stundum næstum því of vel. Næsti liður í skemmtanalífinu er svokölluð Spiritusvígsla læknanema þar sem nýnemar eru boðnir velkomnir í deildina, kynntir fyrir eldri nemendum og gert góðlátlegt grín að þeim í leiðinni með myndbandi úr nýnemaferðinni. Þrátt fyrir að spírinn heyri sögunni til er þetta vanalega mjög skemmtilegt kvöld. Vísindaferðadagskrá vetrarins hefur verið mjög þétt og fjölbreytt og höfum við heimsótt ýmis fyrirtæki sem tengjast náminu okkar beint, til dæmis Neyðarlínuna, Kerecis, Sif Cosmetics og Lyfju, en einnig fyrirtæki sem eru ótengd læknisfræði sem þó eru flest mjög áhugaverð. Hið geysivinsæla Halloweenpartý var haldið í fjórða skipti í ár þann 30. október á Hendrix í Grafarvogi. Þar komu saman lækna-, hjúkrunar fræði- og sjúkraþjálfunarnemar eftir búningavísindaferð í Arion banka. Eftir mikið glens og mikið gaman voru veitt verð- laun fyrir þrjá bestu búningana. Þar af var einn læknanemi, Kjartan Þórsson, sem mætti í heimatilbúnum búning og gekk hann undir nafninu „The Snake Whistler“. Í nóvember voru stelpu- og stráka- vísindaferðirnar haldnar með pompi og prakt. Stelpurnar fóru í frábæra vísindaferð í Geysi á Skólavörðustíg en strákarnir í Dáleiðslu- skóla Íslands. Þetta eru alltaf vel heppnuð kvöld og var sérstaklega vel tekið á móti okkur í þess um áhugaverðu fyrirtækjum. Farið var í skíðaferð lækna- og hjúkrunarfræði- nema í janúar og var þessi ferð að venju skemmtileg blanda af partýstandi og skíða- mennsku. Vísindaferðir voru bæði á föstu- deginum og laugardeginum en einnig bauðst fólki að fara í Hlíðarfjall bæði laugardag og sunnudag. Frábær ferð í alla staði! Fótboltamót læknanema er orðið að árvissum viðburði og gaman að sjá að læknanemar kunna fleira en að lesa bækur og drekka bjór. Fjórða árið vann karlaflokkinn eftir gífurlega spenn andi úrslitaleik. Í kvennaflokki voru best ar fyrsta árs stelpurnar en þær voru jafnframt eina stelpuliðið og kepptu því við öll strákaliðin og gáfu þeim lítið eftir. Árshátíðin var haldin í Vodafone höllinni þetta árið. Band-AIDS tryllti lýðinn eftir dýr indis hlaðborð og var dansað fram á rauða nótt! Snillingarnir á þriðja ári báru sigur úr býtum í myndbandakeppni læknanema og fengu Lúkasinn að launum. Síðast en ekki síst voru læknaleikarnir haldnir 22. apríl síðastliðinn og kom fyrsta árið sterkt inn og var það lið þeirra, Hi-C sem unnu læknaleikana þetta árið. Ég verð að segja að það hafa verið algjör forréttindi að fá að skipuleggja félagslíf fyrir jafn hresst og virkt fólk og læknanema og von andi heldur það áfram næstu árin. Ég vil nota tækifærið til að þakka kollegum mínum í Fulltrúaráði, Sigrúnu Jónsdóttur og Oddnýju Rún Karlsdóttur á fyrsta ári, Hrafni Hlíðdal og Signýju Rut Kristjánsdóttur á öðru ári, Valgerði Bjarnadóttur á fjórða ári, Finnboga Ómarssyni á fimmta ári og Láru Ósk Eggertsdóttur Claessen á sjötta ári fyrir skemmtilegt samstarf, góða skipulagningu og vel heppnað skítamix. Fulltrúa ráð Anna Guðlaug Gunnarsdóttir formaður Fulltrúaráðs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.