Læknaneminn - 01.04.2016, Page 77
Fr
óð
le
ik
ur
77
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Náman léttir
þér lífið
Kynntu þér allt um Námuna
á landsbankinn.is/naman
» 2 fyrir 1 í bíó
» LÍN-ráðgjöf
» Tölvukaupalán
» Fríar færslur
» Aukakrónur
» Námsstyrkir
Segja má að öll lyf geti
bæði haft já kvæð og nei-
kvæð áhrif. Þau geta
minn k að ein kenni þess
sjúk dóms sem verið er að
með höndla eða læknað við-
komandi sjúk dóms ástand,
en geta jafn framt valdið
mis miklum óþæg indum
fyrir þann sem notar þau
og jafnvel haft skað leg áhrif. Þessi nei kvæðu áhrif
eru kölluð auka verkanir. Mark mið lyfja meðferðar
er ávallt að tryggja sem bestan árangur með ferðar
með eins fáum og mein litlum auka verkunum og
kostur er. Lyfja yfirvöld veita ekki leyfi til að selja
tiltekið lyf nema sýnt þyki að verkun þess á sjúk-
dóminn (ávinningur) vegi þyngra en mögulegar
aukaverkanir (áhætta).
Þegar sótt er um markaðsleyfi fyrir ný lyf hafa þau
aðeins verið notuð af takmörkuðum hópum fólks í
rannsóknum. Þó að vel sé fylgst með þeim sem taka
þátt í þessum rann sóknum er ávallt viðbúið að nýjar
og jafnvel óvæntar upp lýsingar um áhrif lyfsins
komi fram eftir að notkun og sala lyfsins hefur
verið heimiluð og fjöldi og fjölbreytileiki þeirra sem
nota lyfið eykst. Þetta geta bæði verið upplýsingar
um jákvæð og neikvæð áhrif. Þess vegna fylgjast
bæði markaðs leyfis hafar og lyfja yfir völd með öllum
upp lýs ingum um ávinn ing og áhættu. Ef eitthvað
óvænt kemur fram varðandi þessa þætti gæti þurft
að bregðast við því, til dæmis með því að breyta
ráð leggingum um notkun lyfsins til að lágmarka
áhættu fyrir sjúklinga.
Til að tryggja öryggi sjúk linga eins og best verður
á kosið er mikil vægt að heilbrigðis starfsfólk sem
kemur að lyfja meðferð og ein staklingar sem nota lyf
(eða um önnunar aðilar þeirra) taki einnig þátt í þessu
sam fellda eftir liti (lyfjagát). Mikil vægur þáttur í
þessu sambandi er að tilkynna lyfjayfirvöldum þegar
grunur er um aukaverkanir af völdum lyfja.
Lyfjastofnun telur að á Íslandi sé þörf á auk inni
vakningu hvað varðar mikilvægi þess að tilkynna
um auka verkanir. Allt árið 2015 bárust stofnun inni
alls 105 tilkynningar, ein ungis átta þeirra vörð uðu
auka verkanir sem flokkast sem alvar legar. Verulega
hafði fækkað til kynningum frá árinu áður en þá
voru þær 260, þar af 20 alvarlegar. Þetta kemur fram
í ársskýrslu Lyfja stofnunar fyrir árið 2015.
Stofnunin hvetur alla til að til kynna um aukaverkanir
sem þeir verða áskynja og leggja þannig hönd á plóg
við að auka öryggi við notkun lyfja.
Á heimasíðu Lyfjastofnunar er að finna leiðbeiningar
og vefeyðublað sem fylla skal út þegar tilkynnt er
um aukaverkun lyfs.
Sjá nánar á www.lyfjastofnun.is/Lyfjagat/.
Um mikilvægi
aukaverkana
tilkynninga
Jana Rós Reynisdóttir
deildarstjóri upplýsinga deildar hjá Lyfjastofnun
Ræktið ekki þvag hjá sjúklingi með þvaglegg þó þvag sé
gruggugt eða illa lyktandi. Allt þvagleggsþvag mengast af
bakteríum. Forðist sýklalyfjagjöf í slíkum tilvikum nema
óyggjandi klínísk einkenni sýkingar séu til staðar.
Greinið ekki þvagfærasýkingu í sjúklingi með
mögulega nýrnasýkingu með þvagstrimli
eingöngu, fáið smásjárskoðun gerða, og
ræktun þvags að sjálfsögðu.
Klínískt nef