Læknaneminn - 01.04.2016, Page 98
Fr
óð
le
ik
ur
Sk
em
m
tie
fn
i o
g
pi
stl
ar
98
Inngangur
Sérfræðingarnir, sérstaklega þeir sem
eldri eru, hneykslast gjarnan á lækna -
nemum í dag yfir því hversu lítið þeir
lesa af kennslubókum. „Þegar ég var
læknanemi las ég Harrison’s þrisvar“
sagði ónefndur sér fræðingur1 í fyrirlestri
og hristi höfuðið. Glærur, kennslu-
myndbönd, FOAM og internetið hafa
tekið við af doðröntunum.
Undirritaðir hafa þó uppgötvað að
bækur geta kennt manni ýmislegt um
lífið og læknisfræði. Þá erum við ekki
að tala Harrison og Guyton heldur allar
bækurnar sem enginn setti á leslistann á
Uglu. Þetta eru bækur sem við lesum til
þess að kynnast hugmyndum annarra,
öðlast nýja sýn á læknisfræðina eða
einfaldlega til þess að minna okkur á
hvers vegna í ósköpunum við skráðum
okkur í þetta djöfullega langa nám.
Hérna munum við að fjalla um bækur
sem við mælum með að læknanemar
lesi, ekki til þess að hækka einkunnir
heldur til þess að minna okkur á hvað
læknastarfið snýst í raun og veru um.
En af hverju ættuð þið að þiggja ráð
frá einhverjum læknanemum? Líkt og
góðum nemum sæmir þá fengum við
konsúlt frá sérfræðingum á mismunandi
deildum Landspítalans. Valið var
algjör lega opið og eru uppástungurnar
allt frá barnabókum yfir í bækur um
mataræði og faraldsfræði.
Vonandi komum við endurnærðir á
Landspítalann í haust með höfuðið
stútfullt af nýjum hugmyndum. Flest
eigum við nefnilega nóg af stundum
aflögu til lestrar ef vel er að gáð. Það er
hægt að lesa uppí rúmi fyrir svefninn
(virkar betur en zopiclone), þegar
maður situr í strætó eða jafnvel að hlusta
á hljóðbók á meðan maður hengir upp
þvottinn. Svo passa lestölvur líka vel í
vasann á hvítu sloppunum og þá ertu
aldrei meira en kaffibolla frá huggulegri
stund á LSH.
Gleðilegan lestur.
Að lesa það sem enginn
sagði þér að lesa
Steinn Thoroddsen Halldórsson
Steinþór Árni Marteinsson
fimmta árs læknanemar 2015-2016 og áhugamenn um bækur
1. Steinn Jónsson, Björn Rúnar
Lúðvíksson, munnleg heimild (2015)