Læknaneminn - 01.04.2016, Page 99

Læknaneminn - 01.04.2016, Page 99
Fr óð le ik ur Sk em m tie fn i o g pi stl ar 99 House of God (Samuel Shem) Ef þú vilt aukastig frá Tómasi Guðbjarts eða Kjartani Örvar þá skaltu lesa þessa bók fyrir fjórða árið en líklega er best að lesa hana þegar þú hefur reynt sjúkrahúslífið á eigin skinni. House of God er skáldsaga sem byggir á reynslu sérnámslæknis á bandarísku sjúkrahúsi í kringum 1970. Mörg af hugtökunum úr bókinni hafa orðið klassísk meðal lækna, svo sem GOMER og  „orthopedic height“ sem vísar til hversu hátt þú þurfir að stilla rúm sjúklings til að hann brjóti bein, færist yfir á bæklun og hætti að vera þitt vandamál. Hvenær er best að lesa? - Eftir 4. ár. Do No Harm (Henry Marsh) Fyrir þá sem stefna á skurðlækningar mæli ég með því að lesa Do No Harm eftir Bretann Henry Marsh. Bókin byggir á tilfellum úr hans starfi og veitir innsýn í hans líf. Hann lýsir hugsunum sínum og áhyggjum, afrekum sínum og ósigrum. Þetta er heiðarleg frásögn af lífi heilaskurðlæknis, mjög áhugaverð bók. Hvenær er best að lesa? - Á kírúrgíunni. Being Mortal: Medicine and what matters in the end (Atul Gawande) Gawande er almennur skurðlæknir, prófessor við Harvard og ofurmaður. Being Mortal er hans fjórða bók auk þess sem hann hefur skrifað áhugaverðar greinar í The New Yorker. Being Mortal fjallar um ellina, elliheimili, dauðann og hvenær læknar geta gert mest gagn með því að gera ekki neitt. Gawande tekst að gera öldrunarlækningar spennandi og fær mann til að hugsa á nýjan hátt. Skyldulesning fyrir alla sem hafa einhvern tímann hitt gamalt fólk. Hvenær er best að lesa? - Á medisín / öldrun. The Boy Who Was Raised as a Dog (Bruce Perry) Bók sem sameinar uppeldi barna, vanrækslu, geðlæknisfræði og taugalíffræði í gegnum frásagnir af skelfilegum atburðum og aðstæðum nokkurra barna sem hafa verið sjúklingar barnageðlæknisins Bruce Perry. Dr. Perry fjallar um mikilvægi þess að börn myndi eðlileg tengsl í æsku og þær afleiðingar sem vanræksla, hvort sem hún er vegna illsku eða vanþekkingar, getur haft á líkamlega og andlega heilsu barna. Hvenær er best að lesa? - Á geðinu / barna, jafnvel fyrr. Okkar uppástungur Hvað segja sérfræðingarnir? Ebba Margrét Magnúsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir Öddubækurnar (Jenna og Hreiðar Stefánsson) Í bernsku las ég allar Öddubækurnar oftar en einu sinni og hef kennt börnum mínum að meta þær. Fósturfaðir Öddu er læknir í héraði og lýsing á starfi hans heillaði mig sem barn. Adda gerist síðan hjúkrunarkona og giftist lækni í síðustu bókinni og ljóminn yfir því hefur örugglega haft sitt að segja. Sólon Íslandus (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Á menntaskólaárum las ég Sólon Íslandus eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi en ljóðin hans lærði ég að elska í bernsku þegar amma söng Til eru fræ og Dalakofann við húsverkin. Sólon Íslandus er um Sölva Helgason sem var listamaður og ferðaðist um sveitir landsins og var vissulega sérstakur.  Sem lækni kenndi þessi saga mér að meta allt litróf mannsins og það að sjá eiginleika fólks sem er stundum á jaðrinum eins og sagt er. Leitin að tilgangi lífsins (Viktor E. Frankl) Þetta er bók sem allir ættu að lesa hvort sem þeir stunda læknisfræði eða ekki. Ásgeir Haraldsson barnalæknir Blogg Ragnars Þórissonar (caringbridge. org/visit/ragnar) Ragnar Þórisson var frændi minn. Sem unglingur greindist hann með hvítblæði. Hann lést af völdum sjúkdómsins þann 12. febrúar 2016, tæplega 28 ára gamall. Ragnar skrifaði mjög merkilegt blogg í mörg ár þar sem hann fjallaði um sjúkdóminn og meðferðina, fólkið í kring um sig, gleði og sorg, lífið og tilveruna. Hann skrifaði af ótrúlegri dýpt, skynsemi og yfirvegun. Skrif hans hafa aukið skilning minn á lífinu. Ég held að skrif Ragnars frænda míns hafi gert mig að betri lækni. Kardemommubærinn (Thorbjörn Egner, í þýðingu Huldu Valtýsdóttur) Þessi bók og leikritið eru á sama hátt og Dýrin í Hálsaskógi frábær lesning. Þegar ég var krakki upplifði ég hvað þessi verk voru skemmtileg, jákvæð og uppbyggileg. Seinna áttaði ég mig einnig á hugmyndafræðinni og heimsspekinni. Inn við beinið erum við jú öll ágæt og meira að segja ræningjar geta orðið heiðarlegt fólk. Ég held að þessar bækur hafi ekki haft nein bein áhrif á mig sem lækni, þarna er enginn veikur og menn og dýr bara almennt kát! En bækurnar eru skemmtilegar með góðan boðskap og eru brunnur tilvitnana og „ég skal strax og alveg á stundinni fara að hugsa málið“. Himnaríki og helvíti (Jón Kalman Stefánsson) Þessi bók ásamt þeim tveimur sem fylgdu á eftir í þessum þríleik, Harmur englanna og Hjarta mannsins, virkuðu á mig mjög sterkt. Sagan er afar vel skrifuð, manni verður nánast kalt við að lesa veðurlýsingarnar. Mögulega tengist það því að ég þekki umhverfið svolítið og einhvern veginn lifði mig sterkt inn í söguna. Það sem stendur upp úr er römm barátta við náttúruna, lífið, umhverfið og stundum sjálfan sig. Klínískt nef Útilokið blóðsykurfall hjá öllum sem grunaðir eru um heilablóðfall; lágur blóðsykur getur valdið hliðlægum taugaeinkennum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.