Læknaneminn - 01.04.2016, Side 100

Læknaneminn - 01.04.2016, Side 100
Fr óð le ik ur Sk em m tie fn i o g pi stl ar 100 Axel F. Sigurðsson hjartalæknir The Lost Art of Healing - Practicing Compassion in Medicine (Bernard Lown) Bernard Lown starfaði lengst af við hjartalækningar í Boston. Eitt af þekktustu afrekum hans var hönnun fyrsta hjartarafstuðtækisins. Þá fékk hann einnig friðarverðlaun Nóbels árið 1985 fyrir baráttu sína gegn framleiðslu kjarnavopna. Lown gerði sér alla tíð grein fyrir að læknisstarfið snérist um að sinna sjúklingum, ekki sjúkdómum. Í hans huga voru mannleg samskipti jafn mikilvæg og nýjasta tækni og vísindi. Í „The Lost Art of Healing“ segir Lown frá samskiptum sínum við kollega og sjúklinga á löngum ferli. Þessar frásagnir tengir hann fræðilegri umfjöllun um algeng einkenni og vandamál sem læknar þurfa gjarnan að fást við. Innsæi hans og sýn á læknissstarfið og þekking á mannlegu eðli gera lestur þessarrar bókar að einstakri upplifun. „The Lost Art of Healing“ er dæmi um bók sem ég opna og fletti gjarnan aftur og aftur. Hollari lesningu fyrir lækna sem eru að hefja sinn starfsferil get ég vart hugsað mér. The Art and Science of Low Carbohydrate Living (Jeff S. Volek, Stephen D. Finney) Læknar læra jafnan lítið um næringarfræði í sínu grunnnámi. Flestir átta þeir sig þó á mikilvægi mataræðis þegar kemur að heilbrigði og forvörnum. Ég las ofangreinda bók eftir að hafa um nokkurt skeið gert mér grein fyrir að þekking mín á mataræði og næringu var harla lítilfjörleg. Bandaríkjamennirnir Volek og Phinney, sá fyrrnefndi næringarfræðingur og sá síðarnefndi læknir, hafa stundað rannsóknir á áhrifum mataræðis á efnaskipti og sjúkdóma um áratuga skeið. Höfundarnir velta fyrir sér ástæðum versnandi heilsu Vesturlandabúa, sérstaklega vaxandi tíðni offitu og sykursýki. Þeir eru afar gagnrýnir á ýmis gildandi viðhorf um tengsl mataræðis og heilsu. Hvort þeim Volek og Phinney tekst í bók sinni að sannfæra lesendur um ágæti lágkolvetnamataræðis er aukaatriði. Það sem þeim tekst hins vegar frábærlega er að útskýra grunnatriði um mataræði, efnaskipti og tengslin við langvinna lífsstílssjúkdóma eins og efnaskiptavillu, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma. Látið titilinn ekki villa ykkur sýn. Leitin að tilgangi lífsins (Viktor E. Frankl) Á sunnudögum verður mér stundum hugsað til austurríska geð- og taugalæknisins Viktor Frankl.  Það var hann sem lýsti svo vel „sunnudagsblámanum“ (e. sunday blues). Þetta sérkennilega fyrirbæri sem margir upplifa á sunnudögum og einkennist af tómleika, einhvers konar tilgangsleysi og hálfgerðum leiðindum. Í bók sinni um leitina að tilgangi lífsins lýsir Frankl vist sinni í útrýmingarbúðum Nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Hann færir rök fyrir því að við munum aldrei geta forðast þjáningar alfarið en við getum kosið að takast á við þær og lifað áfram með nýjan tilgang. Frankl telur að tilgang lífsins megi finna í öllum okkar athöfnum. Lífið hefur alltaf tilgang, jafnvel í hörmungum og dauða. Ég hef eiginlega bara opnað þessa bók einu sinni en las hana þá í einum rykk enda er hún ekki löng. Þótt hún sé í miklu uppáhaldi og hafi haft mikil áhrif á mig hef ég varla þorað að opna hana aftur, svo átakanleg fannst mér hún vera. Ég er þó nokkuð viss um að einhvern sunnudaginn mun ég dusta af henni rykið og manna mig upp í að lesa hana aftur. The Strategy of Preventive Medicine (Sir Geoffrey Rose, prófessor í faraldsfræði við London School of Hygiene and Tropical Medicine) Ég las hana fyrst í námi mínu í faraldsfræði við sama skóla árið 1999. Þetta er bók sem er allt að því opinberun að lesa vegna þess hve vel höfundi tókst ætlunarverk sitt. Textinn er einstaklega lipur og  höfundur setur í auðskiljanlegt samhengi nauðsyn þess að leita víðar að ástæðum veikinda hvers einstaklings en í nærumhverfi hans, tengir saman hvernig áhætta einstaklinga tengist fjölskyldu þeirra, samfélagi og ríkjandi áhættuþáttum og sjúkdómum á þeim tíma sem þeir eru uppi. Myndefni er aðgengilegt og formáli til fyrirmyndar. Þetta er stutt og auðlesin bók með stóran titil um lýðheilsu og forvarnir í læknisfræði, bók sem ég hef alltaf innan seilingar og hef mælt með oftar en ég hef tölu á. Thinking fast and slow (Daniel Kahneman) Kahneman tekst með aðdáunarverðum hætti að sýna með tilraunum og dæmum hversu líkleg við erum til að hrapa að ályktunum út frá ófullnægjandi forsendum. Þessi bók er einstaklega mikilvæg lesning hér á landi í kjölfar bankahrunsins með öllum þeim fjölmörgu álitaefnum sem enn eru uppi og hefur ekki fækkað eftir birtingu Panama-skjalanna í vor. Eins og höfundur segir í inngangi: „...it is much easier, as well as far more enjoyable, to identify and label the mistakes of others than to recognize our own“. Kahneman fjallar ítarlega um hugsanaskekkjur sem rannsóknir sýna að eru mjög algengar í tilteknum aðstæðum. Að lestri loknum er erfitt að andmæla því að það er mannlegt að skjátlast  – errare humanum est – og því fyrr sem við áttum okkur á því, því betra; ekki síst ef það innsæi verður til þess að við getum fremur gengist við mistökum okkar og lært af þeim. Thrive: The Power of Psychological Therapy (Richard Layard, hagfræðingur og David Clark, sálfræðingur) Höfundar lýsa í stuttu máli með skýrum dæmum og gögnum hversu þungt sálræn vandamál og geðraskanir vega á lífsgöngunni. Engu að síður sé hvarvetna mun minna fé varið til meðferðar þeirra en líkamlegra kvilla þótt hver króna sem sett er í gagnreynda meðferð helstu lyndisraskana og kvíðaraskana skili sér tvöfalt til baka. Einstaklega læsileg bók sem allir ættu að lesa. Engilbert Sigurðsson geðlæknir „That is part of the beauty of all literature. You discover that your longings are universal longings, that you’re not lonely and isolated from anyone. You belong.“ F. Scott Fitzgerald
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.