Goðasteinn - 01.09.2004, Side 65

Goðasteinn - 01.09.2004, Side 65
Goðasteinn 2004 Kristín hvatar för sinni vestur yfir mýrarnar, hún á framundan langa för. í Úlfs- staðahverfinu hittir hún mann að störfum úti við og biður hann að reiða sig yfir Affallið. Sjálfsagt er að verða við þeirri beiðni en manninum þykir ferð vinnu- konunnar á prestssetrinu nokkuð einkennileg og spyr hvort hún sé að fara eitthvað langt. Hann fær lítil svör og þegar þau kveðjast á vesturbakka Affallsins hugsar hann með sér að að líklega sé eitthvað til í þessum sögum sem hann hat'i heyrt frá Krossi. Þunginn sem Kristín ber tefur ferð hennar ekki að ráði og hún rekur sig léttstíg eftir rimum og bölum Út-Landeyjanna. Hún fylgir að mestu reiðgötum ferða- manna sem liggja víðast út með fjörunni, styttir sér aðeins leið þegar göturnar krækja fyrir blautar mýrar. þungfærar klyfjahestum, en sæmilega færar léttstígri vinnukonu. Hún er orðin heimavön í Landeyjum, stiklar á þúfum, stekkur stöku sinnum yfir rásir og gengur berfætt þegar bleytan virðist ætla að verða sauð- skinnsskónum ofurefli. Það er svalt í veðri og kaldsamt berum fótum og Kristín hryllir sig aðeins þegar hún sest niður og þerrar fæturna vandlega með rýju úr pokanum sínum áður en hún fer í sokkana eftir að hafa öslað berfætt yfir breiða keldu. Og kuldinn hverfur undra fljótt úr fótunum, aldrei líður göngumanni betur en þegar hann er nýstiginn upp úr ísköldu vatni, hefur dregið þurra og hreina sokka á fætur sér og finnur þægilegan yl færast upp í líkamann. Sumstaðar eru vötnin sem falla til sjávar ófær gangandi manni og Kristín verður að fá flutning á hesti eða báti. En henni miðar undra fljótt, önnur vinnu- kona á Krossi hafði stungið að henni harðfisksbita, flatkökusneið og smjörklípu áður en hún hélt af stað og hún stansar stöku sinnum, fær sér bita og heldur svo endurnærð áfram, uns hún að lokum er komin út í Háfshverfi. Þar spyr hún um næstu bæi fyrir utan Þjórsá og gleðst þegar hún hefur áttað sig nokkuð á hvað þeir heita og hvar hvern sé að finna. Hún er ákveðin í að komast alla leið þetta kvöld. Húsbóndinn hafði skipað henni að fara út úr sýslunni og fara strax og því ætlar hún að hlýða. Hún harðneitar því gistingu austan ár og vinnumaður frá Háfshól fylgir henni út að Þjórsá og kallar á ferju frá Selparti, undrandi á hvað þessi ein- mana kona, sem í þokkabót sýnist ófrísk er ákveðin í að komast út í Flóa strax um kvöldið. „Þetta er Selpartur“, segir hann og bendir til bæjar skamman spöl frá ánni, „þú ferð nú ekki lengra en þangað í kvöld“. En Kristín svarar því engu og þegar hún hefur kvatt ferjumanninn á vesturbakkanum tekur hún þegar á rás og heldur áfram framhjá Selparti. Henni hafði verið sagt f Háfshverfinu að þaðan væri ekki langt til bæjarins sem hún leitaði. Þetta ár höfðu ung hjón, Markús Björnsson og Halla Þorgilsdóttir flust frá Rauðnefsstöðum á Rangárvöllum og hafið búskap í Skógsnesi í Gaulverja- bæjarhreppi. Markús var Arnesingur en Halla dóttir Þorgils bónda á Rauðnefs- -63-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.