Goðasteinn - 01.09.2004, Qupperneq 186
Látnir 2003
Goðasteinn 2004
landa er hún sigldi sumarið 1952 með Gullfossi til Norðurlandanna og Miðjarðar-
hafsins. Annars var hún að mestu bundin sínum reit og alla ævi hélt hún sterkum
tengslum og tryggðaböndum við æskuheimili sitt á Strönd, og var þar tíður gestur
meðan heilsan leyfði.
Síðasta áratuginn átti Kristín við vanheilsu að stríða, en hélt eigi að síður
andlegu þreki sínu og léttri lund. Hún lést eftir fárra stunda legu á Landspítalan-
um í Fossvogi í Reykjavík 21. febrúar 2003, á 80. aldursári. Hún var kvödd frá
Akureyjarkirkju í Landeyjum 8. mars 2003.
Si: Sigurður Jónsson Odda
Lilja Jónsdóttir frá Kálfsstöðum,
Vestur-Landeyjum
Lilja fæddist 8. október 1930 foreldrum sínum á
Kálfsstöðum, hjónunum Jóni Einarssyni frá
Kálfsstöðum og Gróu Brynjólfsdóttur frá Hrauk, nú í
Lindartúni. Hún var næstelst í 6 systkina hópi, þeirra
Guðrúnar Helgu, Brynjólfs, Hönnu, Einars og Guð-
mundar, en hann lést 1992. Foreldrar hennar bjuggu á
Kálfstöðum frá 1927, þegar Jón tók við búi foreldra
sinna með Gróu konu sinni. Lilja tókst ung á við
bústörfin heima og snemma varð hún full ábyrgðar
gagnvart yngri systkinum og þeim störfum heima, sem henni var trúað fyrir.
Lilja kynntist Gísla Konráð Geirssyni frá Gerðum í sömu sveit og hófu þau
sambúð upp úr 1960 og giftu sig 1964. Þau tóku við búi foreldra Gísla að Gerðum
1963, en fluttu síðan að Kálfsstöðum 1965 og tóku við búi foreldra Lilju, eftir að
faðir hennar Jón Einarsson lést 1964. Þau tvö urðu snemma mjög náin og samhent
og unnu saman að öllum bústörfum. Börnin þeirra fæddust, Guðmundur Þorsteinn
1962, Þórunn Anna 1963, Kristrún Hrönn 1965, Jónína Gróa 1966 og Gerður
Þóra 1968. Þegar þau hófu búskap að Kálfsstöðum var nýbúið að byggja upp öll
hús, þannig að tekist var á við ræktun jarðarinnar og stækkun búsins. Þau voru
gestrisin, hjálpsöm við nágranna og ákveðin í að hlúa vel að öllum gróðri og
öllum skepnum. Þau voru sannir dýravinir og kenndu börnum sínum þessa vináttu
og virðingu við öll húsdýrin á heimilinu, sem flest báru sín nöfn og talað var við.
Lilja var sönn húsmóðir hins gamla tíma. Húsmóðir, sem fór fyrst á fætur á
morgnana og gekk síðust til hvíldar á kvöldin. Húsmóðir, sem gætti að öllu,
undirbjó allt, hafði allt til reiðu og gat alltaf úr öllum vanda leyst. Húsmóðir, sem
gekk með bónda sínum til mjalta, gaf kúnurn sínum, talaði við þær og stuðlaði
þannig að hámarksnytjum. Húsmóðir, sem tók svo vel og veitandi á móti gestum.
Húsmóðir, sem stóð einnig að heyskap, rakaði og batt bagga og þegar vélvæð-
-184-