Goðasteinn - 01.09.2013, Blaðsíða 193
191
Goðasteinn 2013
Sigríður Ólafsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir fæddist í foreldrahúsum í
Syðstu-Mörk í Vestur Eyjafjallahreppi 26. september
1921. Foreldrar hennar voru þau Halla Guðjónsdóttir
húsfreyja frá Hamragörðum og Ólafur Ólafsson bóndi
frá dalsseli. Þau hjón eignuðust 8 börn og var Sigríður
elst systkinanna en hin eru þessi í aldursröð: Guðjón
f. 1922, Ólafur f. 1924, Sigurveig f. 1925, Sigurjón
f. 1927, d. 1992, Jóhanna Guðbjörg f. 1928, Árni f.
1931 og yngst er Ásta f. 1939.
Sigríður var feikilega dugleg kona frá fyrstu tíð,
áræðin, trú og úthaldssöm, valdi sér fremur erfið útiverk en húshald, hafði unun
af umhirðu dýra og gróðri jarðar en bar minni hug til dauðra hluta og þess hins
fánýta. Hún var dýravinur af Guðs náð, þar sem sauðféð og hestarnir sátu í
öndvegi. Hún þekkti féð, hvern og einn einstakling sem hún umgekkst og hest-
arnir þekktu hana og hlýddu, hafði gaman af útreiðum og fékkst nokkuð við
tamningar.
Sigríður valdi sér þann menntunarkost að fara í Húsmæðraskólann á laug-
arvatni. Að húsmæðramenntun fenginni og allri reynslunni að heiman var Sig-
ríði ekkert að vanbúnaði að takast á við öll þau verkefni sem kynnu að bíða
hennar, sem voru enda af ýmsum toga.
Sigríður var matráðskona ýmissa vinnuflokka víðs vegar um suðurland, en
lengst af, eða í um 20 ár, var hún ráðskona í sláturhúsi Sláturfélags suðurlands
í djúpadal, kannski væri nær að segja að hún hafi verið þar húsmóðir og hús-
bóndi, því slíkrar virðingar naut hún af flestum þeim sem þar störfuðu, enda
reyndist hún því fólki sem góður vinur og besta móðir; ætíð tilbúin til að liðka
til og greiða götu þeirra sem með þurftu, því líf hennar allt einkenndist af ljúfri
lund, jákvæðni, greiðvikni, fórnfýsi og bjartsýni, hún var hvetjandi og hrósyrt í
garð allra þeirra sem vel gerðu og áttu slíkt skilið.
Það var á djúpadalsárunum sem Sigríður kynntist eiginmannsefni sínu,
Bjarna Sigurði Ágústi Ársælssyni bónda og bifreiðastjóra frá Bakkakoti. Bjarni
var fæddur árið 1928 sonur hjónanna Ragnheiðar Guðnadóttur frá Álfhólum
og Ársæls Jónssonar bænda í Eystri-tungu í V.-landeyjum, síðar Bakkakoti.
Bjarni lést árið 2004 eftir stutt en erfið veikindi.
Sigríður og Bjarni stofnuðu sitt fyrsta heimili í gamla húsinu í Bakkakoti þar
sem fyrir bjuggu Jón bróðir hans og Ragnheiður móðir þeirra bræðra.
Sigríður var orðin 44 ára gömul þegar augasteinn þeirra og einkadóttir fædd-
ist 15. september 1965. Henni var gefið nafn Höllu móðurömmu sinnar, konu
sem Sigríður hafði mikla ást á enda var dóttirin þeim hjónum mikil Guðs gjöf.