Goðasteinn - 01.09.2013, Blaðsíða 181
179
Goðasteinn 2013
6 börn, Margrét Helga f. 1945, gift ingimundi Vilhjálmssyni, þau eiga 5 börn,
Vilborg Alda f. 1949, var gift Gísla Eysteinssyni, þau eiga þrjú börn, Barbara f.
1951, gift Erni Þór Hlíðdal, þau eiga 4 börn og yngst er Sigrún Margrét f. 1958,
í sambúð með Árna Þorgilssyni, þau eiga einn son. Barnabörnin eru 19, barna-
barnabörnin 31 og eitt barna-barna-barnabarn. Afkomendur Hvítanesshjónanna
eru samtals 56.
Sem áður getur tóku þau Jón og Ásta við búsforráðum í Hvítanesi af for-
eldrum Jóns árið 1945, en gömlu hjónin bjuggu í skjóli þeirra elliárin sín allt
til dauðadags. Þar nutu þau meðan lifðu hlýju og umhyggju ungu hjónanna og
dætranna.
Í vinnufjarveru Jóns annaðist Ásta öll bústörfin, inni sem úti, ásamt dætrum
sínum og tengaforeldrum meðan kraftar þeirra síðastnefndu entust. Árið 1967
réðust þau í byggingu nýs íbúðarhúss sem kannski var ekki vanþröf á fyrir svo
stóra fjölskyldu og af útsjónarsemi sinni dró Jón gamla húsið af grunni sínum
niður á tún svo fjölskyldan hefði þak yfir höfuðið meðan á byggingu þess nýja
stóð.
Að ýmsu leyti voru Hvítaneshjónin máttarstólpar félags- og sönglífs sveitar-
innar meðfram daglegum önnum við búskap og uppeldi dætra sinna. Þau sungu
í um 40 ár í kirkjukór Akureyjarkirkju sem hér og nú skal þakkað. Jón sinnti
búnaðarfélags- og sveitarstjórnarmálum um hríð meðan Ásta sinnti störfum og
skyldum í Kvenfélaginu Bergþóru.
Árið 1988 tók Vilborg dóttir þeirra við Hvítanesbúinu ásamt Gísla, þáver-
andi eiginmanni sínum. Við þær breytingar jókst tími þeirra Jóns og Ástu til
tómstundaiðkunar til muna og samstíga sem fyrr einhentu þau sér í félags- og
sönglíf héraðsins og eldri borgara. Þau tóku virkan þátt í félagi eldri borgara í
Rangárvallasýslu og sungu í Hringnum, kór eldri borgara allt þar til í desember
2011, spiluðu félagsvist fram á vorið 2012, fóru á golfvöllinn og stunduðu
pútt með félögum sínum þar sem þau unnu til margra verðlauna bæði sem par
og einstaklingar. Jafnframt hafði Jón mjög gaman af því að spila billjard. Þau
stunduðu mikið ferðalög bæði innan lands og utan og fóru víða um land með
vinum og ættingjum. Ásta heillaðist mjög af ósnortinni náttúru, fegurð fjalla og
jökla en fegurðina sá Jón frekar í búsældarlegum sveitum.
Jón og Ásta dvöldu á dvalarheimilinu lundi á Hellu frá því í október s.l. og
létust þar í desember með þriggja daga millibili.
Útför frá Breiðabólsstaðakirkju 5. janúar 2013.
Sr. Önundur Björnsson