Goðasteinn - 01.09.2013, Blaðsíða 120
118
Goðasteinn 2013
um fylgdi segulbandasafn (6 kassettur með um 90 stemmum hver með kvæð-
arödd gömlu meistaranna). Félagarnir gátu leikið lögin á segulbands- eða kass-
ettutæki sín. Þetta var sá sjóður sem eg fekk í hendur, þegar eg gekk í félagið
1989. Formaður kvæðalaganefndar Magnea Halldórsdóttir frá Vindheimum í
Ölfusi, kona félaga okkar Gríms lárussonar frá Grímstungu, sá um að afrita
lögin á kassettur og afhenda þær nýjum félögum. Þessar 500 stemmur ná yfir
mestan hluta af hljóðritasafni iðunnar. Þegar kvæðalögin höfðu verið nótusett
og hljóðrituð var unnt að hefja skipulega kennslu og sjálfsnám fyrir þá, sem
áhuga höfðu. Á þessum tíma var eg mikið á ferðum um landið og hafði í bíln-
um mínu tæki til hlusta aftur og aftur á kassetturnar og kvað ótruflaður, með-
an ég var á keyrslu. Þetta varð til þess að á stuttum tíma hafði eg lært um 50
stemmur þannig að ég gat kveðið þær fyrir aðra. Kvæðalagaæfingar voru einu
sinni í mánuði allan veturinn og auk þess fundur, þar sem kveðið var það sem
æft hafði verið og ýmislegt annað var til skemmtunar og fróðleiks á fundunum.
Eftir að bókin Silfurplötur iðunnar kom út er stuðst við hana. Kvæðalögin eru
spiluð af geisladiskunum og menn líkja eftir þeim. Vanur kvæðamaður leiðir
kveðskapinn. Margir eiga bókina, aðrir fá ljósrit af stemmunni, sem verið er að
æfa. Skálda, vísnaskipið okkar, sigldi á milli borða og fiskaði nýjar vísur. Gert
var að þessum afla Skáldu í fundarlok með því að kveða vísurnar.
Bragarhættir, rímnahættir
Þekktar stemmur skipta hundruðum. Þær eru flestar í fornum tóntegundum
ýmist í dúr eða moll og hver stemma er sniðin að ákveðnum bragarhætti. Brag-
arháttunum má skipta í þrjá grunnflokka: ferskeytta (4 ljóðlínur), braghenta
(3 ljóðlínur) og afhenta. (2 ljóðlínur) og fjölmörg afbrigði af hverjum þeirra.
Afbrigðin hafa verið talin á þriðja þúsund. Allar vísur, sem ortar eru undir
kvæðalaga- eða rímnalagaháttum eru með svokallaða ljóðstafi þ.e. stuðla og
höfuðstafi, sem er séríslenskt fyrirbrigði og svo er rímið með ýmsu móti t.d.
víxlrím, innrím, samhent, þar sem allar ljóðlínur ríma saman og stafhent þar
sem tvær og tvær ljóðlínur ríma saman. talað er um að dýrt sé kveðið, þegar
listin við bragagjörðina er mikil og vekur aðdáun. Sumar vísur má fara með
aftur á bak sem áfram. Þær kallast sléttubönd. Best þykir, ef merking vísunnar
snýst algjörlega við, þegar farið er með sléttubönd aftur á bak. Hér er dæmi
um sléttubönd þar sem lofi er hlaðið á mann: