Jólapósturinn - 01.12.1948, Blaðsíða 13
'k -k 'k
JÓLAPÓSTURINN
dagsútgáfan er 250 síður), fer ekkert
verulega út fyrir New York ríki. Balti-
more Sun og St. Louis Post Dispatch
koma nokkurnveginn jafnfætis, sem
framúrskarandi vönduð blöð, en þau eru
ekki mikið útbreidd utan síns ríkis.
I stað útbreiðslu einstakra blaða koma
einstakir vel þekktir blaðamenn, sem
selja greinar sínar mörgum blöðum í
einu, eða réttara sagt ákveðinni frétta-
stofu eða syndikati, sem símar daglega
dálkinn til allra þeirra blaða, sem vilja
og hafa efni á að kaupa hann. Walter
Winchell t. d. er sagður taka inn á 3.
hundrað þúsund dollara á ári fyrir sína
dálka, og vitanlegt er, að frú Roosevelt
hafði yfir $ 5000 á mánuði í vasapen-
inga fyrir að skrifa nokkrar línur á
dag fyrir eina fréttastofu. Þannig get-
ur maður lesið sömu greinarnar eftir
sama höfundinn hvort sem maður er í
Los Angeles og les Los Angeles Times
eða Daily Mirror í New York.
Blöðin eru, eins og eðlilegt er, góður
og ef til vill bezti, mælikvarðinn fyrir
menningu landsins. Og það kemur greini-
lega fram á amerísku blöðunum. Það
bezta er það bezta, sem til er í heimin-
um og það lélegasta er svo lélegt, að
maður verður iðulega steinhissa, að slíkt
skuli vera til í landi sem vill heita menn-
ingarland. Ég býst við því, að ef menn
sem kunnugir eru blaðakosti heimsins,
væru látnir greiða atkvæði um hvaða
blað væri bezta blað heimsins, að New
Gleðileg jól!
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen,
Erlendur Pétursson.
York Times mundi fá einna flest at-
kvæði, ef ekki langflest. St. Louis Post
Dispatch mundi fá einna flest atkvæðin
fyrir hreinskilni og kjark til að þora að
birta það, sem önnur blöð þora ekki, af
hræðslu við auðmenn og auðhringa. Það
taldi t. d. ekki alls fyrir löngu upp f jölda
húsa og sýndi myndir af mörgum, sem
öll voru auð og yfirgefin, en þar sem
fram komu 100 atkvæði úr hverju við
nýafstaðnar kosningar, þannig að um
45.000 atkvæði höfðu verið fölsuð í St.
Louis einni.
En svo eru líka til svo dæmalaust
léleg blöð, jafnvel í stórborgum, eins
og til skamms tíma í Denver, Col., að
við þekkjum ekki neitt líkt hér, og það
þótt ekki sé unnt að segja, að blaða-
mennska sé á háu stigi á voru landi.
Sum blöðin eru bara skrítin, eins og
t. d. Mormónablaðið í Salt Lake City,
sem neitar öllum auglýsingum um á-
fengi, tóbak og kaffi, af því að Mor-
mónakirkjan gefur blaðið út. Hins veg-
ar er blaðið fullt af ættartölum og ætt-
artöluauglýsingum, því að hvergi 1 heim-
inum, meira að segja að íslandi með-
töldu, mun vera lagt eins mikið upp úr
ættartölum eins og meðal Mormónanna,
sem allir vilja vera skyldir Jóseph Smith
og Brigham Young.
Evrópumönnum þykir það skrítið, að
í mörgum borgum á sami maðurinn tvö
eða fleiri blöð, sem standa á öndverð-
um meiði í stjórnmálum. O.kkur mundi
Gleðileg jól!
Þvottamiðstöðinn.
11