Jólapósturinn - 01.12.1948, Blaðsíða 53
JÖLAPÓSTURINN
~k -k 'k
haldarans. Stúlkan hefur ekki sézt
síðan. Hinum ágæta sækjanda hefur
ekki tekizt að finna neinn, sem hafi séð
þau ganga inn í hús Volpins, en hins-
vegar lagði hann fram sem sönnunar-
gagn háhælaðan skó, sem fundizt
hafði í svefnherbergi Volpins. Kona
gestgjafans heldur því fram, að þetta
sé annar skór ókunnu stúlkunnar.
Viku síðar sá dyravörðurinn í kvik-
myndahúsinu, hvar Volpin settist við
hliðina á Molreaux-stúlkunni með mál-
uðu varirnar. Ekkjan frú Préjean, sem
er nágranni Volpins, segist hafa heyrt
kvenmannshlátur í húsi Volpins þetta
kveld. Hún vinnur eið að því, að það
hafi verið hlátur Molreaux-stúlkunnar.
Stúlka þessi hefur hinsvegar ekki sézt
síðan og saksóknarinn leggur mikla á-
herzlu á grænan skó, sem fannst í drag-
kistu skjólstæðings míns.
Næst hlýdduð þér á framburð um
Louise Rhon, kennslukonu frá Saint-
Vith. Skólastjórinn skýrði yður frá því,
að ungfrú Rohn hafi sagt lausri stöðu
sinni til þess að flytjast til Villeroi til
þess að giftast þar bókhaldara, Volpin
að nafni. Ekillinn vinnur eið að því,
að hann hafi ekið konunni og farangri
hennar heim til hins ákærða. Saksókn-
ari sýndi yður brúnan götuskó, sem
fannst í kjallaranum hjá Volpin, og
systir kennslukonunnar kom frá Saint-
Vith og kvaðst þekkja skóinn.
Þér hafið heyrt nákvæman framburð
Gleðileg jól!
Verzlunin Höfn, Vesturgötu 12.
varðandi hvarf annarra kvenna, sem
horfið hafa undir sömu eða svipuðum
kringumstæðum.
Þegar Moya, fimmtán ára gömul
dóttir Benois læknis, hvarf, handtók
lögreglan Henri Volpin. Hafði sézt til
hins ákærða, þar sem hann var að
kaupa ilmvatnsglas handa henni í lyfja-
búðinni. Leit, sem síðar var fram-
kvæmd í híbýlum Volpins, leiddi í ljós,
að þar var f jöldi kvenskóa.
Þetta eru sönnunargögnin, sem lögð
hafa verið fram gegn Henri Volpin.
Hann er ef til vill ekki af því tagi
manna, sem þér munduð vilja telja
meðal vina yðar, en þér eruð ekki
hingað komnir til þess að dæma um
kosti hans sem gests í húsi yðar. Þér
eruð hingað komnir til þess að kveða
upp úrskurð um, hvort hann eigi að
halda lífi eða vera sviftur því.
Hafið það hugfast, að ekkert mælir
svo fyrir í belgískum lögum, að dauða-
sök sé að safna kvenskóm. Samkvæmt
lögum Belgíu megið þér ekki dæma
Henri Volpin til dauða, nema þér séuð
sannfærðir um — nema enginn efi kom-
ist að — um að hann hafi framið
morð!“
Faðir Moyu, telpunnar fimmtán ára
gömlu, spratt á fætur: „Á því er alls
enginn efi!“
„Heiðruðu kviðdómendur,“ hélt Dur-
and áfram máli sínu, „ef þið sannfær-
ist um, að ekki hafi tekizt að sanna á-
Gleðileg jól!
Verzlunin Gimli.
51