Jólapósturinn - 01.12.1948, Blaðsíða 62
k k k
JÓLAPÖSTURINN
k k k
ar, svo að ekki sést nema höfuð, hend-
ur og fætur. Lítið er að sögn um bak-
tjaldamakk meðal þeirra, en hinsvegar
eru þær ekki lengi að hafa skipti á maka,
ef þeim fellur ekki lengur við þann, sem
þær eru giftar í það og það skiptið.
Þegar kona hefir gert karlmanni það
skiljanlegt, að hún hafi hug á að gift-
ast honum, velja þau samningamenn,
sem ganga frá öllum atriðum víðvikj-
andi vígslunni. Þegar þeim undirbúningi
er lokið, heldur brúðguminn væntanlegi
af stað til heimilis brúðarinnar með öll-
um ættingjum sínum. Brúðurin og fjöl-
skylda hennar bíða utan dyra og full-
trúi brúðgumans selur hann nú í hend-
ur móðurbróður brúðarinnar, Þessu
næst bera fulltrúar beggja aðila fram
krukkur með hrísbjór, hellt er úr báð-
um krukkunum í eitt ílát og blönduna
drekka „hin hamingjusömu". Þá eru
þrír fiskar lagðir á jörðina, aldraður
maður þylur einhverja bæn yfir þeim
og stekkur bjór á þá. Næst eru fisk-
arnir hengdir upp í heimili móður brúð-
arinnar, þar sem þeir eiga að vera hjón-
unum ungu til blessunar og loks er svíni
slátrað, ef um efnafólk er að ræða, ann-
ars alifugli.
Tveim eða þrem dögum síðar kemur
brúðurin, móðir hennar og systur, ef
einhverjar eru, í heimsókn til móður
brúðgumans, en hjónin búa síðan hjá
móður brúðarinnar, unz þeim fæðast
börn eða þau telja, að nú geti þau stað-
ið á eigin fótum. Þá eru fiskarnir þrír
teknir niður og hengdir upp á ný í hinu
nýja heimili hjónanna.
Skilnaður hjóna er mjög algengur
meðal Khasi-anna og ekki talið nein
hneisa fyrir hjón að skilja, ef bæði eru
sammála um nauðsyn þess eða telja
skilnað æskilegan. Kemur þá hvor aðili
með fimm smáskeljar, sem notaðar eru
sem gjaldmiðill Khasi-anna, og afhend-
ir konan manninum sínar skeljar, en
hann leggur þær við sínar, og afhend-
ir konunni þær allar að því búnu. Hún
réttir honum þær aftur, en hann fleygir
þeim á jörðina. Þessi athöfn fer fram
í votta viðurvist, og er kynning um
skilnaðinn hefir verið lesin á markaðs- <
torginu, eru hjónin laus og liðug. Kon-
an situr um kyrrt hjá móður sinni, hafi
hún ekki verið flutt þaðan, ella flytur
hún heim til hennar með öll börnin, en
þau fylgja henni í næsta hjónaband,
því að ekkert þykir athugavert við það,
að hún hafi átt börn og eru þau ekki
næstu giftingu til trafala.
Khasi-ættbálkurinn tignar látna for-
feður eða öllu heldur formæður, og er
kona sú, sem talin er formóðir hans,
einn æðsti guð hans. Auk þess tigna
Khasi-arnir steina, sem eru einkenni-
legir að lögun, og loks slöngur, sem
þeir telja einskonar verndara hinna
ýmsu ætta.
Víða í Austurlöndum er það siður,
að konurnar verða að vinna baki brotnu,
Gleðileg jóll Gleðileg jól!
Sölufélag garðyrkjumanna. Afgreiðsla Laxfoss.
60