Jólapósturinn - 01.12.1948, Síða 14

Jólapósturinn - 01.12.1948, Síða 14
 JÖLAPÓSTURINN i ifr i þykja það skrítið, ef t. d. sami mað- urinn ætti Tímann og Morgunblaðið eða Þjóðviljann og Vísi. En í stærstu borg- unum í Arizona og Wyoming er það sami maðurinn á hvorum stað, sem á bæði Republikana- og Demokratablaðið. Aðalatriðið er að ná peningunum frá auglýsendum og áskrifendum, þá er hægt að gera alla ánægða, sérstaklega útgefandann, enda er hann venjulega sá sem er ánægðastur með blaðið. Stærsta útbreiðslu hafa viku- og mán- aðartímaritin Life, Readers Digest og Saturday Evening Post, sem hvort um sig hefir a.m.k. 2 millj. áskrifenda. Þetta eru óskapleg fyrirtæki, sem taka inn miklar fjárhæðir. Ein heilsíðuauglýsing í Life kostar t. d. $ 18.000, og er rifizt um að fá að koma auglýsingum í blað- ið. Enn meiri peningar eru teknir fyrir útvarpsauglýsingar. Þar verða menn að gefa gott prógram, t. d. leigja hljóm- sveit fyrir $ 20.000 og borga útvarp- inu aðra $ 20.000 í tilbót, fyrir að fá að segja nokkur orð með prógramminu, sem iðulega er ekkert annað en að þetta firma gefi prógrammið. Fyrir okkur, sem komum héðan, og raunar fyrir alla Evrópumenn, er eftir- tektarvert að sjá, hvernig að heita má hvert einasta blað í Ameríku tekur af- stöðu til kommúnista og kommúnisma. Blað eins og New Republic, sem Henry Wallace hefir nýlega tekið að sér og skarar langt fram úr flestum öðrum Gleðileg jól! Regnboginn, Laugavegi 74. blöðum um frjálslyndi, má heita að sé alveg einstætt að því leyti, að sýna þess- ari stefnu umburðarlyndi, þótt Wallace geti ekki talizt kommúnisti. 1 fjölda blaða er ekki minnzt á kommúnista nema af hatri og fyrirlitningu. En þess ber að gæta, að amerísk blöð eru eng- an veginn mælikvarði á skoðanir fólks- ins, eins og víða annarsstaðar. Sannleik- urinn er sá, að fólkið þekkir það vel blöð sín, að það tekur yfirleitt sáralít- ið mark á því, sem þau segja. Og sem dæmi þess, hve lítið vald þeirra er raun- verulega yfir fólkinu er það, að Roose- velt forseta tókst hvað eftir annað að vinna kosningar á móti meiri hluta allra amerískra blaða. Hann talaði í útvarp- ið og fólkið þurfti ekki annað en heyra hans notalega málróm til að vera með honum. Spítalar. Amerískir spítalar eru, eins og annað, bæði beztir og verstir. Vandfundin munu vera betri og fullkomnari sjúkrahús en þau beztu í New York, Boston, Chi- cago, Cleveland og St. Louis. En í menn- ingarlöndum mun líka vera leitun á jafn- lélegum og aumum, ég vil segja ómögu- legum geðveikrahælum og sumstaðar í Ameríku og það jafnvel í ríkjum eins og Ohio og Illinois, sem annars standa menningarlega hátt. Það er farið að tala um það sem reginhneyksli, hvernig á- standið sé í mörgum amerískum geð- Gleðileg jól! Jámvöruverzlun Jes Zimsen h.f. é * 12

x

Jólapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.