Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 15

Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 15
-k k 4r JÓLAPÓSTURINN k ~k k > veikrahælum. Lélég læknishjálp, ófull- nægjandi eða jafnvel engin, og sum- staðar ógurlegur sóðaskapur og trassa- skapur, sem kemur allavega illa niður á sjúklingunum. Hinsvegar er það til, að hitta fyrir- myndarspítala í smáþorpum. Það er ekk- ert merkilegt að sjá fyrirmyndarspítala í stórborgunum, en margir reka upp stór augu, sem koma til lítils þorps í Penn- sylvaníu, sem heitir Dansville, á stærð við Akureyri (7000 íbúar) og sjá þar einhvern bezta og fullkomnasta spítala sem til er í Ameríku. Ástæðan er sú, að þarna bjó auðkýfingur, sem gaf marg- ar milljónir dollara til að reisa spítala, sem hann heimtaði að yrði fullkomn- asti spítali í Ameríku og setti jafnframt það skilyrði, að við hann skyldu jafnan vinna beztu læknar Ameríku og ekki horft í að leggja fram það fé, sem það kostaði að ráða þá til spítalans. Ég skal ekki fullyrða, að öllum þessum ströngu skilyrðum hafi verið fullnægt, en víst er um það, að þessi spítali þykir skara fram úr flestum öðrum og læknar sem þarna vinna hafa betri vinnuskilyrði en víðast hvar annarsstaðar, enda er svo mikil aðsókn að þessum spítala, bæði af læknum og sjúklingum, að mér kæmi ekki á óvart þótt meira heyrðist frá þessu sjúkrahúsi áður en margir ára- tugir líða. Mayo-spítalinn í Rochester er líka til orðinn í smábæ, sem hefir vax- ið upp í kring um sjúkrahúsið og er raunverulega ekkert annað en umgerð um það. Ég hitti marga góða menn vestra, sem of langt yrði upp að telja. Gam- all kunningi minn frá París, dr. Muc- kenfusz, er nú forstöðumaður fyrir bak- teriologisku laboratorium New York- borgar, sem sér um allt sem við kem- ur heilsuvernd borgarbúa á bakterio- logisku sviði. í New York kom upp undarleg pest haustið 1946, sem virtist vera nýr sjúk- dómur, sem enginn botnaði í.. Mucken- fusz, sem er frægur bakteriolog, fór í þetta með sína menn, en þrátt fyrir alla leit og tilraunir gátu þeir ekki leyst gát- una. Hann sneri sér þá til dr. Armstrong í Washington, sem Muckenfusz segir að sé mesti og reyndasti bakteriolog Banda- ríkjanna, og bað hann um aðstoð. Muc- kenfusz sagði mér frá því, hve fljótur Armstrong hefði verið að átta sig á hvað um var að ræða. Hann sagði, að Armstrong hefði með nokkrum spurn- ingum komizt svo nærri lausninni, að eftir urðu aðeins tekniskir hlutir. Hann fékk upplýsingar um hvar sjúkdóms- tilfellin hefðu komið fyrir og þegar hon- um var sýnt, að þau hefðu öll verið í einni ,,blokk“, eins og Ameríkumenn kalla það, þ. e. í einni húsasamsteypu á milli tveggja gatna, sagði hann strax að þessi veiki hluti að berast með mús- um. ,,Af hverju ekki með rottum,“ sagð- ist Muckenfusz hafa spurt. ,,Af því að Gleðileg jól! Gleðileg jól! Málarinn, Bankastræti. Verksmiðjan Merkúr h.f. 13

x

Jólapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.