Jólapósturinn - 01.12.1948, Síða 18

Jólapósturinn - 01.12.1948, Síða 18
•fc fc: ~fc JÓLAPÓSTURINN ~fc ir fc- veru allar hendur og öll hjól í Svíþjóð í gang fyrir Rússa. Ameríkumenn litu á það sem miður vinsamlegt' framferði gagnvart þeim, því að meðal þeirra er nú vart um annað meira talað en væntanlega styrjöld við Rússland. Er þó auðsætt, að ef til þeirra óskapa skyldi koma, þá eig- um við von á þungum búsifjum og er hart að láta skeika að sköpuðu, hversu vanmáttugir sem við erum, án þess að reyna nokkuð að klóra í bakk- ann. Enginn er þó svo aumur, að hann geti ekki átt sér einhverja bjargarvon, ef vit og vilji leggjast á eitt að ráða fram úr vandanum. Hvað sem öllum skoðanamismun í stjórnmálum líður, þá ættu allir að geta sameinast um tilraunir til að vernda líf landsmanna og tilveru þjóðarinnar. Útlitið í alþjóðamálum er óneitanlega mjög uggvænlegt og hörmulegt að sjá alla þá sundrung og flokkadrætti, sem standa í vegi fyrir nauðsynlegum fram- kvæmdum til að hjálpa sveltandi og sjúku fólki. Manni finnst að pólitískur skoðanamismunur eigi lítið erindi inn í mannúðlega hjálparstarfsemi þar sem öll töf kostar þjáningar og mannslíf. f þessu sambandi dettur mér í hug saga sem ég heyrði Alexander herfor- ingja, sem nú er landstjóri í Canada, segja fyrir nokkurum mánuðum í Gleðileg jól! Sverrir Bernhöft h.f. samkvæmi vestanhafs. Þessi maður hefur vitanlega haft mikið með stjórn- málamenn af öllum flokkum að gera og mér fannst lífsreynzla hans koma vel fram í sögunni, sem ég ætla að enda orð mín á. Sagan er á þessa leið: Maður nokkur, sem átti ungan son, var einn heima með honum að kveldi dags, og af því að hann langaði til að Vera í næði fyrir stráknum, þá tók hann stórt kort af allri jörðinni, reif það í sundur í marga smáparta, sem hann fékk sveininum, og sagði honum að fara með allt saman inn í næstu stofu og dunda þar við að líma kortið saman upp á blað, þannig að rétt kæmi út. Hann ætlaðist til að þetta myndi endast honum fram eftir kvöldinu. Svo settist faðirinn niður með sína bók. En friðurinn varð ekki langur, því að naumast var hálftími liðinn er dreng- urinn kom inn til föður síns og leggur fyrir hann kortið, sem hann hafði lokið við að líma saman og skeikaði engu í samsetningunni. Faðirinn var alveg hissa og spurði hvernig pilturinn hefði getað komið þessu svona fljótt saman. „Jú, pabbi minn,“ sagði sveinninn. „Ég tók eftir því að aftan á kortinu var mynd af manni, og ég hugsaði mér, að ef ég gæti fengið manninn eins og hann á að vera, þá mundi heimurinn koma rétt út hjá mér.“ • Gleðileg jól! Efnalaugin Olæsir. 4 i 16

x

Jólapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.