Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 38

Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 38
Amma segir jólasogu Það var komið að jólum. Engill Drott- ins var á ferðalagi meðal mannanna, en þó viðkomustaðirnir væru margir, voru þeir samt fleiri hjá börnunum heldur en hjá fullorðna fólkinu. Nú skuluð þið heyra, börnin góð, hvernig honum gekk hjá þremur fyrstu börnunum, sem hann hitti á ferðalagi sínu. Það fyrsta var 10 ára gamall drengur, er Áskell hét. Eng- illinn segir við hann, að hann viti sjálf- sagt, að nú komi jólin bráðum og hann langi auðvitað, eins og önnur börn, til að fá jólagjafir. Nú spyr hann Áskel, hvort hann vilji heldur sjálfur fá jóla- glaðning eða láta aðra fá hann. „Ekki þarf ég að vera lengi að hugsa mig um það; ég vil bara fá jólaglaðning sjálfur. Mig hefir lengi langað til að eignast dúkkuleikhús. Heldurðu, að það væri hægt?“ ,,Já,“ svaraði engillinn, ,,þú skalt fá dúkkuleikhús." Næst hitti engillinn litla telpu, sem hét Ása. Hún var 11 ára. Engillinn spyr hana sömu spurningar og Áskel. Litla telpan hugsaði sig um stundarkorn, en sagði svo: „Helzt vildi ég, að við mamma gætum báðar fengið jólagjafir." „Þér skal verða að ósk þinni, Ása mín,“ sagði engillinn, og hélt áfram ferð sinni. Nú hitti engillinn þriðja barn- ið. Það var svolítill drenghnokki, aðeins 8 ára gamall og hét Ármann. Hann var veiklulegur og illa til fara og var auðséð að hann var fátækur. Þegar engillinn spurði hann sömu spurningar og fyrr, svaraði Ármann: „Ég er nú ekki vanur að fá mikið í jólagjöf, og ég hugsa ekki mikið um það. En mikið væri gaman að geta glatt aðra með því að gefa þeim jólagjafir". „Þessi ósk þín verður á- reiðanlega uppfyllt, Ármann minn,“ sagði engillinn og brosti. — Jólin komu og Áskell fékk dúkkuleikhúsið, eins og engillinn hafði lofað honum, og var það bæði stórt og fallegt. Áskell var alveg í sjöunda himni og fór strax að leika sér að dúkkuleikhúsinu. Leiksviðið lýsti hann upp með því að kveikja á nokkrum jólakertum. Síðan fór hann að láta dúkkurnar leika, og svo upptekinn var hann af því, að hann tók ekkert eftir því þegar eitt kertið valt um koll og kveikti í leikhúsinu og brann það til kaldra kola. Áskell fór að háorga, því að nú var sú jólagleðin búin. Nú er að segja frá Ásu. Á jólakvöldið kemur pabbi hennar inn til þeirra mæðgn- anna og segir þeim að jólagjöfin, sem hann ætli að gefa þeim sé svo stór að hún komist ekki inn í húsið, svo að þær verði að koma út og sjá hana. Þær létu ekki á sér standa en hlupu strax út. Og hvað haldið þið að hafi beðið þeirra fyrir utan? Það var ljómandi fallegur vagn, með 2 hvítum hestum fyrir. Þær urðu auðvitað alveg himinlifandi yfir þessari dásamlegu gjöf og þökkuðu pabba Ásu kærlega fyrir hana. „Nú getið þið far- ið í ökuferð, hvenær sem ykkur langar til“, segir pabbi Ásu. „Ég vil fara strax á mörgun“, segir Ása. „Og það skuluð þið bara gera,“ segir pabbi hennar. Á jóladag lögðu þær svo af stað í öku- 36

x

Jólapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.