Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 41

Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 41
Endurminningar um Paganini Úr endurminningum Karólínu liauer, leikkonu í Berlín. r T^G kynntist frægasta fiðluleikara þeirra tíma, er Nicolo Paganini kom til Berlínar. Hann var um fjörutíu og fimm ára gamall er hann kom til Berlín- ar frá Vínarborg í febrúarlok 1829. Það voru hinar undarlegustu sögur sem gengu um hann áður en hann kom. Fólk- ið kallaði hann illan anda, galdramann eða töframann og hélt að hann stæði í sambandi við djöfulinn. Sagt var að hann hefði selt sig djöflinum fyrir fullt og allt með því að drýgja morð og í stað- inn hefði hann fengið undrafiðlu, sem hægt væri að knýja úr undrahljóð, sem engri heiðarlegri mannshönd hefði nokk- urn tíma tekizt áður að framleiða með fiðluboga. Aðrir sögðu að hann hefði drepið konu sína og að andvörp hennar og stun- ur héldu áfram að hljóma stöðugt frá fiðlunni í eyrum hans, til þess að refsa honum hér á jörð. Þannig yrði hann að friðþægja fyrir afbrot sitt. Enn aðrir vissu ,,fyrir víst“, frá Vín- arblöðum og bréfum, ,,að hann hafði drýgt morð. Það var alveg víst. En hann hafði ekki myrt konu sína, því að hann hafði aldrei verið kvæntur, heldur keppi- naut, sem ástmey hans hafði sýnt vin- arhót. Og fyrir þennan glæp hafði hann orðið að líða í sex ár í dimmri neðan- jarðardýflissu í Genúa, án þess að sjá framan í nokkurn mann allan þann tíma. Fyrir þrábeiðni hans fékk hann að halda fiðlu sinni og henni trúði hann fyrir raunum sínum. En hver strengurinn af öðrum brast, án þess að honum væri unnt að laga þá, unz ekkert var orðið eftir nema G-strengurinn. Þannig lærði hann að leika á einn streng og fram- leiða hina undarlegustu tóna. Það var sagt, að hann gæti með þessum eina streng mjálmað eins og köttur eða rif- izt eins og gömul kerling, en líka sungið eins og fugl, hringt eins og silfurbjalla og grátið eins og hjarta manns, svo að jafnvel hinn harðsvíraðasti hlustandi kæmist við og gréti heitum tárum.“ Svo mikið var víst, að Berlín var í æsingi, þegar von var á Nicolo Paganini og mjög skrítnar myndir birtust af hon- um í búðargluggunum. Á þeim stóð „Der Unerreichbare“ (hinn óviðjafnanlegi). En forvitni listamannanna fékk enga útrás á æfingunum, því að Paganini lék ekki á æfingunum, heldur lét sér nægja, að stilla tíma sinn eftir þeim. Loksins, þann 4. marz 1829, var fyrsti konsertinn haldinn, og allt ríkasta fólk- ið í Berlín, sem hafði efni á að borga þrefalt miðaverð, streymdi inn í kon- sertsal konunglega leikhússins. Ég varð að leika á sama tíma í sama húsi, Irene, í gömlum gamanleik eftir Beck, „Cha- meleon“, og auðvitað var húsið hálf- tómt. Eftir fyrsta þáttinn komu leikararnir saman, og umtalsefni okkar var náttúr- lega töframaðurinn Paganini, sem hafði tælt alla leikhúsgesti frá okkur. Og við öfunduðum þá, sem nú fengu að hlusta á hann. Leiksviðsmálarinn, Grepius, kom þá allt í einu hlaupandi til okkar, með and- 39

x

Jólapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.