Jólapósturinn - 01.12.1948, Síða 44

Jólapósturinn - 01.12.1948, Síða 44
Gisli Guðmundsson Hrakningar á Winnipegvatni Það hefir ekki þótt heiglum hent, að stunda veiðar á Winnipeg- vatni í Kanada á haustvertíð. Þá er allra veðra von á vatninu, og hafa fílefldir karlmenn oft gugnað við þenna starfa. I eftirfarandi grein bregður Gísli Guðmundsson, tollvörður, upp glöggri mynd af lífinu þarna vestur frá, en hann er þar vel kunnug- ur; var þar um skeið og þekkir af eigin raun það, sem liann lýsir. ETTA er saga um hrakninga og harðfengi tveggja íslendinga, sem þeir lentu í að haustlagi á Winnipeg- vatni. Þessir menn, við skulum kalla þá Magnús og Kristján, voru að veiðum í verstöð á stórri eyju í norðanverðu Winnipegvatni, ásamt nokkrum öðrum fiskimönnum. Gæftir höfðu verið mjög stirðar þetta haust, sífelld rok og straumar svo stríðir, að þá daga, sem gaf, var tæpast unnt að hemja netin í vatninu. En um miðjan október fór tíð- in að stillast og kólna og um leið kom nægur fiskur, svo að nú var ekki slegið slöku við. Þeir félagar voru báðir vík- ingsmenn og eftir því kappsfullir, eink- um þá Kristján, og mátti heita að þeir ynnu nótt með degi og sinntu lítt svefni eða hvíld, enda hver síðastur, áður en ísa tæki að leggja. Svo var það einn morgun, eftir lið- lega viku aflahrotu, að þeir félagar fóru að vitja um net, sem þeir áttu í vatn- inu, við smáeyju, í um 5 km. fjarlægð. Vegna stöðugra næturfrosta var vatnið nú farið að leggja þar sem straumlaust var og grynnra. Þeir félagar lögðu af stað í myrkri, og höfðu með sér nesti: ketbita, dálítið brauð og smjör, sykur og teblöð. Ætlunin var sú, að skreppa í land á eyjunni, er þeir væru búnir að vitja um, og hita sér þar tesopa með bitanum. Veður var stillt og heiðskírt og frjósandi. Sóttist þeim vel róðurinn og voru komnir á netin um birtingu. Skömmu eftir að þeir voru farnir að draga netin, tók að kula á norðan og loftið að korgast, og innan stundar var komið hraglandakafald. Þeir félagar sáu fljótlega, að norðanóveður var í aðsigi og þótti nú ráð sitt óvænkast, þar sem þeir áttu móti veðrinu að sækja heim. En ekki vildu þeir yfirgefa netin í vatn- inu, fyrr en í fulla hnefana, því þeir vissu, sem var, að þau sem þeir skildu eftir, væru þeim töpuð að fullu. Þeir kepptust við af öllum mætti, en veðrið fór síversnandi og fannkoma óx stöð- ugt. Ekki bætti það úr skák, að eyjan var löng og mjó og lá frá suðri til norð- urs, svo að stormurinn náði sér niðri báðum megin við hana. Það leið því 42

x

Jólapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.