Jólapósturinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Jólapósturinn - 01.12.1948, Qupperneq 51

Jólapósturinn - 01.12.1948, Qupperneq 51
Það var ekki um að villast Eftir Billy Rose IVrÚ eru þeir að koma með Volpin ”1 ” inn í salinn,“ sagði fréttaritari Lundúnablaðsins Express. Nærri allir íbúar í smáborginni Villeroi höfðu ruðzt inn í réttarsalinn. Hinn ákærði settist í fangastúkuna og hvíldi smágerðar, feitlagnar hendurnar á handriðinu. Þegar hann tók eftir því, að fólk starði á þær, leitaðist hann við að fela þær í kjöltu sinni. „Hvað í ósköpunum hafa allar þessar konur séð í fari þessa manns?" hugs- aði fréttaritarinn fyrir eitt Parísar- blaðanna upphátt. Hann fékk ekki svar við þessum hug- leiðingum sínum, því að dómarinn tók til máls. „Sækjandinn lauk máli sínu í gær. Verjandi málsins getur því hafið ræðu sína.“ Jafnvel dómarinn laut fram í sæti sínu, þegar Philippe Durand reis á fæt- ur. Hver maður í réttarsalnum einblíndi á málfærslumanninn, sem komið hafði alla leið frá höfuðborginni Briissel, til þess að verja Henri Volpin. Þetta var hinn nafntogaði glæpamálasérfræðing- ur, sem svikið hafði gálgann sjötíu og einu sinni í sjötíu og þremur málum, þessi sköllótti, vambsíði, lágvaxni karl, sem hafði ekki látið pressa fötin sín í langan tíma. „Sá er ekki mikill fyrir mann að sjá,“ mælti réttarþjónninn við skrifar- ann. „Sjáðu hvað hann er dæmalaust illa til fara,“ hvíslaði einn Briisselfrétta- ritarinn til sessunautar síns. „Þegar hann gegnir störfum í Brússel, er hann ævinlega mjög vel klæddur.“ „Virðulegu kviðdómendur,“ tók Dur- and til máls. Honum lá ekki hátt róm- ur. „Henri Volpin er ákærður fyrir að hafa myrt tólf konur. I heila viku hefi ég nú hlýtt á ákærandann, er hann hefur verið að reyna að herða snöruna að hálsi skjólstæðings míns. Ykkur leikur vafalaust hugur á að vita, hvers vegna ég yfirheyrði ekki vitnin í málinu, spurði þau í þaula og reyndi að flækja þau. Ykkur þykir á- reiðanlega furðulegt, að ég skyldi ekki reyna að rugla konuna, sem er svo sannfærð um, að Volpin hafi verið maðurinn, sem hún sá í tuttugu metra fjarlægð um niðdimma nótt. Ég lét þessi freistandi tækifæri framhjá mér fara, af því að löng ævi við störf í réttarsölum hefur kennt mér, að skap- ferli hins ákærða og skapferli þeirra, sem vitni bera í málum, eru mun mikil- vægari en sú staðreynd, að einhver klukka er fimm mínútum of sein eða of fljót. Nú verð ég líka að biðja yður að hafa hugfast, að ekki hefur enn tekizt að leiða fram eða benda á nokkurn mann, sem verið hefur sjónarvottur að morð- um þeim, sem skjólstæðingur minn er talinn hafa gerzt sekur um. Enginn hefur lagt fram svo mikið sem eina 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Jólapósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.