Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 59

Jólapósturinn - 01.12.1948, Page 59
JÖLAPÓSTURINN Hrakningar á Winnipegvatni. Framhald af bls. 44. Þvínæst ætluðu þeir að sjóða sér fisk þó að ekkert væri saltið, en þá henti þá hrapallegt slys. Spýtan, sem ílátið hékk á yfir eldinum, brotnaði og vatnið helltist ofan í eldinn og drap hann. Þeir reyndu með öllu móti að lífga hann við en árangurslaust. Þá fyrst var ástandið orðið ískyggilegt, eldurinn dauður og sama sem enginn matur og alveg óvíst hvenær þeir kæmust til byggða. Magnúsi sem var yngri og ekki eins harður af sér, féll allur ketill í eld og vildi hann helst skríða inn í skýlið aftur og láta þar fyrirberast. En Kristján hafði áður komist í hann krappan og var nú ekki alveg á því að leggja árar í bát. Hann fór nú að hugsa ráð þeirra en því meir sem hann hugsaði, því óvænlegra fannst honum það. En að lokum datt honum ráð í hug. Um 10 km. sunnar í vatninu var stór eyja og byggð á henni. Austan- vert á þeirri eyju skagaði fram langur tangi. Við endann á honum var mjög að- djúpt og straumur mikill og því líklegt að vatn væri autt við hann eða rétt upp að honum. Ef þeim tækist að koma bátnum yfir ísinn við eyjuna og út í ál- inn, en það var á að giska 700—800 metrar þá var ekki ólíklegt að hægt væri að klöngrast á land þarna við tang- ann. Hann sagði nú Magnúsi frá þess- ari hugmynd sinni, tók hann henni dauf- lega í fyrstu en við fortölur Kristjáns lét hann þó til leiðast að reyna þetta. Það eina sem gerði þessa ráðagerð mögu- lega var að þeir höfðu vind og straum með sér. Þeir hófust strax handa því komið var fram að hádegi og eftir engu að bíða nema myrkri. Þeir hentu öllu lauslegu úr bátnum og brutu af hon- um klakann og snjóinn frá deginum áður. Veðrið var heldur vægara, en frost mikið. Isinn var afar ógreiðfær, allur eitt samanbarið krapahjarn. Það vildi þeim til láns, að kjölur bátsins var járnsleginn og rann hann því heldur greiðar á ísnum. Ferðin sóttist mjög seint, og eftir því sem utar dró, varð ísinn ótraustari. Báturinn var líka það þungur í drætti, að þeir urðu að hvíla sig oft. Er þeir áttu ófarna tæpa 100 metra út í álinn, brotnaði ísinn undan bátnum og lá við sjálft, að þeir færu sömu leið. Nú var eina ráðið, að brjóta bátnum braut út úr ísnum. Eftir f jögra stunda látlaust strit, komust þeir loks út í álinn og var Magnús þá alveg að gefast upp. En nú var ekki til setunn- ar boðið, eftir því eftir tvær stundir myndi dagur af lofti og ekki árennilegt að reyna að ná landi við tangann í myrkri. Kristján settist undir árar og lofaði Magnúsi að hvíla sig um stund. Hann gaf Magnúsi það, sem eftir var af nestinu, því hann var orðinn að- þrengdur af hungri. Róðurinn sóttist Gleðileg jól! Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Timburverzlun Árna Jónssonar. Bræðurnir Ormson. 57

x

Jólapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.