Jólapósturinn - 01.12.1948, Side 64

Jólapósturinn - 01.12.1948, Side 64
k . k JÓLAPÖSTURINN ~k k ~k Mýtt happdrættis Ríkisstjórnin hefur ákveðið að nota nú þegar heimild laga nr. 82, 13. nóv. 1948 til lántöku handa ríkissjóði. Býður ríkissjóður út í því skyni 15 milljón króna innanríkislán í formi handhafaskuldabréfa, sem öll inn- leysast eftir 15 ár frá útgáfudegi bréfanna. Lán þetta er með sama sniði og hið fyrra happdrættislán ríkissjóðs. Er hvert skuldabréf að upphæð 100 krónur og sama gerð og á eldri bréf- unum að öðru leyti en því, að liturinn er annar og þessi nýju bréf eru merkt „skuldabréf B“. Hið nýja happdrættislán er boðið út í þeim sama tilgangi og hið fyrra happdrættislán: Að afla fjár til greiðslu lausaskulda vegna ýmissa mikil- vægra framkvæmda ríkisins og stuðla að aukinni sparifjársöfnun. Með því að kaupa hin nýju happdrættisskuldabréf, fáið þér enn þrjá- tíu sinnum tækifæri til þess að hljóta háa happdrættisvinninga, alger- lega áhættulaust. Þeir, sem eiga bréf í báðum flokkum happdrættislánsins, fá fjórum sinnum á ári hverju í fimmtán ár að vera með í happdrætti um marga og stóra vinninga, en fá síðan allt framlag sitt endurgreitt. Það er því naumast hægt að safna sér sparifé á skynsamlegri hátt en að kaupa happdrættisskuldabréf ríkissjóðs. Utdráttur bréfa í B-flokki happdrætislánsins fer fram 15. jan. og 15. júlí ár hvert, í fyrsta sinn 15. janúar 1949. 62

x

Jólapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólapósturinn
https://timarit.is/publication/1985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.