Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Qupperneq 4

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Qupperneq 4
Kæru lesendur Á þessu ári eru 74 ár frá því að fyrst var byrjað að halda upp á sjómannadaginn í Ólafsvík. Það var árið 1942 samkvæmt því sem Guðni Sumarliðason skrifaði í fyrsta Sjómannadagsblaðið í Ólafsvík sem kom út 1987. Hann segir líka að næstu ár á eftir hafi hátíðarhöldin legið niðri sum árin þar til 1951. Frá því ári hafa ekki fallið niður hátíðarhöld sjómannadagsins í Ólafsvík. Á Hellissandi er samkvæmt grein eftir Sæmund Kristjánsson í síðasta sjómannadagsblaði farið að ræða um hátíðarhöld þar árið 1943 og ári seinna voru kosnir menn til að sjá um framkvæmdina og hafa þau ekki fallið niður síðan. Þátttaka í hátíðarhöldunum var mjög góð í langan tíma. Á árunum á milli 1965 og 1995 var hérmikill fjöldi báta og mörg öflug fiskvinnslufyrirtæki og fjöldi fólks að vinna í þeim. Margar sveitir frá vertíðarbátunum voru að keppa í hinum ýmsu greinum svo sem kappróðri, boðhlaupi og reipitogi og fleiri greinum. Þá tóku kvennasveitir frá fyrirtækjunum líka mikinn þátt í sjómannadeginum og það kom reyndar fyrir að þær voru fleiri en karlasveitirnar. Þetta gerði það að verkum að fjöldi fólks kom til að horfa á og fylgjast með keppnisgreinunum og því mikið fjör á bryggjunni. Síðustu árin hefur orðið talsverð breyting á þessu og skipshöfnum hefur fækkað sem hafa tekið þátt og færri hafa komið til að horfa á. Allir sjá að breytinga er þörf til að auka þátttökuna. Breytingar Á síðasta ári var ákveðið eftir talsverðar umræður að hafa eitt sjómannahóf fyrir alla sjómenn í Snæfellsbæ á Klifi í Ólafsvík á laugardagskvöldi fyrir sjómannadag. Sjómannahófið tókst með afbrigðum vel og voru allir mjög ánægðir sem mættu, en það voru um 400 manns, og voru allir sammála um að sama fyrirkomulag verði framvegis. Af þessum ástæðum sem að framan eru taldar þá hefur verið ákveðið að sameina hinar hefðbundnu keppnisgreinar sem hafa farið fram í Ólafsvík og í Rifi og hafa þær á laugardegi og byrja fyrsta árið í Rifi. Þær skipshafnir og aðrir sem að þessu standa ætla að gera sitt til að allir hafi gaman af því sem fram fer með góðri skipulagningu. Vonandi verður góð þátttaka hjá skipshöfnum og fyrirtækjum, framhaldið veltur á góðri þátttöku. Efni Sjómannadagsblaðsins að þessu sinni er meðal annars viðtal við Hermann Magnússon sjómann í Ólafsvík og konu hans Svanhildi Pálsdóttur en hann er 70 ára á þessu ári og hafa þau Útgefendur: Viðtöl: Sjómannadagsráðin Ólafsvík og Hellissandi Pétur Steinar Jóhannsson Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Forsíðumynd: Pétur Steinar Jóhannsson Skálholt 13, 355 Ólafsvík, Pétur Steinar Jóhannsson sími: 436 1015, 893 4718 Umbrot og prentun: e-mail: psj@simnet.is Steinprent ehf. Ólafsvík Auglýsingar: Jóhann Pétursson Ritnefnd: Hrafn Arnarson Pétur Steinar Jóhannsson Pétur Steinar Jóhannsson Björn E. Jónasson Jónas Gunnarsson Próförk: Jóhann Rúnar Kristinsson Atli Alexandersson bæði frá mörgu skemmtilegu að segja. Þá er viðtal við heiðurskonuna Aldísi Stefánsdóttur um það sem á daga hennar hefur drifið en hún flutti á Hellissand árið 1949 frá Norðfirði aðeins fimmtán ára gömul og var ráðin þar á heimili í vist. Þá er Gísli Kristjánsson fv. skipstjóri í Grundarfirði tekinn tali og hefur hann frá mjög mörgu að segja. Hann var bæði á síðutogurunum og seinna á bátum og hann ber þetta saman á sinn „kómíska" hátt. Stórfróðleg grein er eftir Egil Þórðarsson fv. loftskeytamann en hann byrjaði sinn feril á skuttogaranum Guðsteini HF. Þar segir hann frá hinu þýðingarmikla starfi þeirra um borð í skipunum sem glögglega kom í Ijós er togarinn Elliði sökk á Breiðafirði árið 1962. Þá er skemmtileg umfjöllun um Kristmund Halldórsson skipstjóra frá Ólafsvík en í sumarfríum fór hann í ein sautján skipti til Costa del Sol. Hann gerði meira þar en að stunda sólina því hann kenndi skelveiðimönnum á ströndinni að nota veiðarfærin rétt sem varð þess valdandi að afkoman þeirra batnaði til mikilla muna. Að auki erfjöldi mynda og frásagna sem lesendur hafa vonandi gaman af. Þá vil ég þakka öllum þeim sem gerðu útgáfuna mögulega með kveðjum og auglýsingum í blaðinu. Ég óska svo öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar á sjómannadaginn. Pétur Steinar Jóhannsson 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.