Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Blaðsíða 5
Sr. Karl V. Matthíasson #
Hugvekja
Dagur sjómanna - sjómannadagurinn var í
barnæsku minni einn mesti hátíðardagur, sem
um gat, næst á eftir aðfangadeginum sjálfum.
Og enn er svo víða um land, þó önnur hátíð sem
kölluð er „hátíð hafsins" sé haldin daginn áður.
Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíð-
legur hér á landi þann 6. júní árið 1938 bæði
á Isafirði og í Reykjavík. Þessi dagur var þá
minningardagur um íslenska sjómenn og á
honum hefur virðing íslensku þjóðarinnar fyrir
sjómönnum sínum jafnan komið vel í Ijós.
Við getum hugsað til allra þeirra sem hafa
farist við störf sín á sjó. Við vitum að það er
ógrynni manna. Við höfum séð á bak hundruðum
sjómanna, sem hafa skilið eftir sig ófyllt skörð,
manna sem hafa fallið nánast bótalaust frá
barnmörgum fjölskyldum og í beinu framhaldi
af þessu verður okkur hugsað til eiginkvennanna þeirra hvernig þær
máttu svo berjast fyrir afkomu sinni og barnanna. íslenskir sjómenn
síðustu aldar eru sú stétt sem hvað stærstan þátt áttu í því að leggja
grunnin að því velferðarkerfi sem við búum nú við og fórn þeirra var
líka mikil fórn sem við munum seint fá fullþakkað og skilið.
Sjómenn eru heiðraðir á sjómannadegi og augu manna beinast
nú að hinum miklu hættum sem sjómenn glímdu við í gegnum
aldirnar fram á okkar daga. Öryggismál sjómanna hljóta því einnig
að skipa sinn sess á degi sjómanna. Sem betur fer hefur manntjón
minnkað stórlega hin síðari ár og skipssköðum
fækkað. Ánægjulegt er að útgerðarmenn hafa
sýnt öryggis málum aukinn áhuga hin síðari ár.
Fækkun sjóslysa er einkum fyrir að þakka
betri öryggisgæslu og tilkomu betri skipa
og öryggistækja allt frá flotbúningi til
björgunarþyrlu, samt er alltaf full ástæða til
að bæta öryggisþættina, læra af reynslunni og
þeim mistökum sem átt hafa sér stað. Hvað
má betur fara og hvernig er best staðið að því
að laga það? í þessu sambandi hljótum við
að spyrja okkur hvort ekki sé kominn tími til
að endurskoða fyrirkomulag strandveiðanna,
sem sumir kalla fyrirkomulag kappveiðanna og
breyta því til öruggara horfs.
Sumarið 1975 naut ég þess að fá skipsrúm
hjá Þráni Sigtryggssyni skipstjóra á Hrönn SH
149. Það var gott sumar, ég var matsveinn á einum og kvart til að
byrja með og þegar ég hætti að sjóða kolann og hafa fjölbreyttari
matseðil þá hækkaði hluturinn í einn og hálfan.
Alltaf fæ ég góða tilfinningu þegar ég kem í þetta góða
sjávarpláss sem Ólafsvík er. Leita þá á mig minningar liðins tíma
og margar aðrar sem tengjast góðum skipsfélögum og öðrum
sjómönnum. Því miður hafa grimmar greipar hafsins hrifið suma
þeirra og á þessum degi fyllumst við lotningu og þökk fyrir þá. Guð
blessi minningu þeirra allra.
Efnisyfirlit
4 Ávarp sjávarútvegsráðherra
Gunnar Bragi Sveinssonn
7 Viðtal við Hermann Magnússon
Pétur Steinar Jóhannsson
14 Myndir af lífinu á bryggjunni
Pétur Steinar Jóhannsson
16 Síldveiðar á Víkingi ÍS 106
Björn Jónsson
20 Á v/s Tý í Miðjarðarhafi
Baldur Ragnar Guðjónsson
23 Viðtal við Aldísi Stefánsdóttur
Pétur Steinar Jóhannsson
31 Kristmundur Halldórsson „El capitan"
Samantekt: Pétur Steinar Jóhannsson
34 Myndir frá sjómannadegi í Ólafsvík
Þröstur Albertsson
37 Hvað gerðu loftskeytamenn?
Egill Þórðarson
43 Ræða á sjómannadegi í Ólafsvík 2015
Sigurður Arnfjörð
46 Myndir úr Grundarfirði 2015
Sverrir Karlsson og Tómas Freyr Kristjánsson
47 Viðtal við Gísla Kristjánsson
Pétur Steinar Jóhannsson
52 í Ólafsvík
Ljóð eftir Gunnar Björgvin Jónsson
55 Léttir SH 175 sekkur
Pétur Steinar Jóhannsson
56 Sjómannadagsræða á Hellissandi 2015
Erla Gunnlaugsdóttir
58 Sjómannadagurinn á Hellissandi 2015
Atli Már Gunnarsson
60 Heiðrun fyrir björgun úr sjávarháska
2015
Pétur Steinar Jóhannsson
62 Myndir teknar á sjó
Guðlaugur Albertsson
64 Viðtal við Svan Tómasson
Pétur Steinar Jóhannsson
68 Fiskmarkaður Snæfellsbæjar opnaður
Pétur Steinar Jóhannsson
70 Breyting á bátaflotanum í Snæfellsbæ
2015
Þórður Björnsson
72 Myndir frá sjómannadegi í Stykkishólmi
2015
Gestur Hólm
74 Minni sjómanna, flutt á sjómannahófi f
Klifi 2015
Gyða Hlín og Lára Jóna
76 Myndir frá Sjómannahófi í Klifi 2015
Þröstur Albertsson
79 Viðtal við Margeir Jóhannesson
Pétur Steinar Jóhannsson
80 Æskuminningar frá Ólafsvík
Valdimar Elíasson
82 Myndir frá Marokkó
Lúðvík Ver Smárason
84 Myndir af trillukörlum
Pétur Steinar Jóhannsson
87 Viðtal við Kristinn Ó. Jónsson
Pétur Steinar Jóhannsson
90 Vinnustaðurinn minn - Norðursjór
Lúðvík Rúnarsson
3