Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Side 30
Afkomendurnir orðnir sextíu og tveir
Aldís segir að þeim hafi alla tíð liðið vel á Hellissandi. Það var gott
að ala þar upp börn og alltaf nóg að gera. Þrjú barna þeirra fóru í
gagnfræðaskóla á Norðfirði og voru hjá mömmu hennarog pabba
og kynntust því afa sínum og ömmu og það fannst henni gott. Pabbi
hennar kom ekki oft vestur eða tvisvar sinnum og því hafi hin börnin
farið á mis við samveru við afa sinn og ömmu. Áhugamálin þeirra
Steina eftir að börnin fóru að heiman voru ferðalög bæði erlendis
og heima. Það var mjög gaman og áttu þau allan búnað frá tjaldi
og upp í húsbíl undir það síðasta. Aðalsteinn lést fyrir tveimur árum
84 ára gamall. Afkomendur Aldísar og Aðalsteins eru alls sextíu og
tveir og þau hjón eru því sannarlega búin að leggja sitt af mörkum
til samfélagsins.
Það má ekki svíkja loforð
er bara úrvalsfólk segir hún. Þá hefur hún verið í fleiri stjórnum og
ráðum m.a. í sóknarnefnd en hún ann vel kirkjunni sinni. Það er búið
að vera afar áhugavert að koma á myndarlegt heimili Aldísar og
sjá á veggjum myndir af börnunum hennar og fjölskyldu og einnig
málverk sem ein dóttirin hefur málað. Það var líka áhugavert að
ræða við þessa lífsreyndu og hugrökku konu sem upplifað hefur
ýmsa hluti á ævinni. Öll málin sem hafa komið upp hjá henni lítur
hún á sem verkefni en ekki vandamál. Það er augljóst að það hlítur
að hafa verið mikið átak og álag fyrir Aldísi aðeins fimmtán ára
nýkomin úr mikilli aðgerð að ákveða það að fara vestur á stað sem
hún vissi ekkert um né hvar var. En hún stóðst það allt saman og
gott betur. „Það má ekki svíkja loforð" eins og hún sagði við móður
sína er hún var að fara vestur. En dvölin á Hellissandi varð talsvert
lengri en hana grunaði í byrjun. Bestu þakkir til Aldísar og gangi
henni og fjölskyldu allt í haginn.
Aldís sem er ákveðin, glaðleg og flott kona hefur mikla ánægju
af að fylgjast með fjölskyldunni sinni og aðstoðar hana eins og hún
getur. Hún er mjög virk í félagi eldri borgara í Snæfellsbæ og þar
Viðtal: Pétur Steinar Jóhannsson
Á 75 ára afmæli Aðalsteins og i efri röð eru frá vinstri: Sólveig Jóna, Þór, Dís, Stefán Guðni, Rut, Aðalsteinn Örn, Svanur. í fremri röð eru frá vinstri: Ásdís Björg, Aldís, Aðalsteinn og Heiðbrá.
Fasteignasalan Valhöll
VALHÖLL
|F A STEIGNASALAÍ
Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.
Komið til heimamanna
og við munum aðstoða ykkur við kaup og sölu á fasteignum - mikil reynsla
Fasteignasalan VALHÖLL Síðumúla 27 - s: 588 - 4477 - fax: 588 - 4479 - E.mail: bardur@valholl.is
28