Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Blaðsíða 60
Sjómannadagurinn á Hellissandi 2015
Báturinn til vinstri er greinilega á undan. Ljósm: JRK.
Sjómannadagurinn 2015 var haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ
helgina 5.-7. júní. Dagskrá hófst á laugardegi með sameiginlegri
dorgveiðikeppni á vegum Sjósnæ og síðan voru grillaðar
pulsur á eftir. Skemmtidagskrá byrjaði svo venju samkvæmt
við Rifshöfn kl 12:30 og var mæting góð. Veður var fínt norðan
andvari, hálfskýjað og sáust sólarglætur stöku sinnum. Keppt var
í þrautarkeppni, róðrarkeppni, reiptogi og brettahlaupi og kíkti
svo þyrla landhelgisgæslunnar við og var hún til sýnis gestum og
gangandi. Guðbjartur SH, Særif SH og Tryggvi Eðvarðs SH sáu
um dagskrá helgarinnar og bauð gestum upp á fiskisúpu og
fleira sem vakti mikla lukku. Örvar SH sá um skemmtisiglinguna
og endaði svo laugardagurinn með sameiginlegu sjómannahófi
sjómannadagsráðanna í Snæfellsbæ þar sem Jón Kristinn á
Hrauninu sá um matinn, Björn Bragi var veislustjóri, Alda Dís og
Mummi komu fram og hljómsveitin Á móti sól hélt svo uppi stuðinu
fram á rauða nótt, tókst þessi sameining hófanna með eindæmum
vel og er þetta vonandi einhvað sem komið er til að vera í náinni
framtíð.
Sunnudagurinn byrjaði með sjómannamessu, að henni lokinni var
lagðurblómakransaðminnismerki látinnasjómanna. Hátíðardagskrá
hófst svo í sjómannagarðinum kl 13:00, Erla Guðlaugsdóttir
flutti hátíðarræðuna og Ester Úranía Friðþjófsdóttir var heiðruð
sjómannsfrú. Leikhópurinn Lotta varsvo með leiksýningu ÍTröðinni.
Kaffisala slysavarnadeildanna Helgu Bárðardóttur og Sumargjöf
var að venju til staðar í slysavamahúsinu Von og kíkti Leikhópurinn
Lotta í heimsókn. Leiksýningin Saga Guðríðar Clausen var sýnd í
Frystiklefanum og endaði svo dagskráin með sameiginlegri grillveislu
í húsakynnum FMÍ í Ólafsvík og voru þar einnig hoppukastalar
fyrir yngri kynslóðina sem vöktu mikla lukku. Sjómannadagsráð
þakkar öllum styrktaraðilum og þeim sem komu að og hjálpuðu til.
F.h. Sjómannadagsráðs Hellissands,
Atli Már Gunnarsson
Flekahlaupið er alltaf vinsælt. Ljósm: JRK.