Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Síða 34
mín. Hann heilsar mér glaðhlakkalegur og fer að lýsa því hvað allt
hafi gengið vel síðan el Capitan hafi breytt festingunum þeirra. Þeir
hafi getað veitt miklu meira en áður og því selt meira en áður því
eftirspurnin var mikil eftir skelfiskinum. Svo spyr hann mig hvenær
el Capitan komi afturtil Costa del Sol? Ég segi honum að ég vitað
það með tveggja vikna fyrirvara og skuli segja honum frá því. Þegar
að því kemur að Kristmundur og Adda koma út þá fer pabbinn
inn á hótelið og fær upplýsingar um það hvaða íbúð Kristmundur
og frú fái. Á þessum tíma var fólkið að heiman oftast komið út um
miðnætti að spænskum tíma.
íbúðin full af mat og drykk
Þegar þau hjón koma svo í íbúðina um nóttina þá er hún ekki bara
full af blómum heldur var líka ískápurinn fullur af mat og drykkjum,
skinku, brauði og allskonar ávöxtum og vínum. Hann var nánast
fullur af þessu. Svo um morguninn er þau fara á ströndina og ætla
að fá sér bæði bekk og sólhlíf að þá var búið að taka það frá fyrir
þau og búið að borga út tímabilið fyrir el Capitan. Svo í hádeginu
þennan dag var Kristmundi og Öddu boðið út að borða á góðum
veitingastað og líka er þau fóru heim, þá var mikil kveðjuveisla.
Svona var þetta sumar eftir sumar hjá þeim hjónum. Ég sá það
líka á fjölskyldunni sem átti þessa báta hve miklu þetta breytti fyrir
í góðra vina hópi frá vinstri: Helga Lárusdóttir, Kristmundur, Marta Kristjánsdóttir, Bjarni Ólafsson
og Leó Guðbrandsson
þau. Þau stækkuðu bátana, löguðu húsin sín, keyptu sér bíla og
fleira sem kom þeim vel eftir að Kristmundur komst í veiðarfærin
þeirra. Þetta gjörbreytti þeirra högum en fjölskyldan taldi alveg um
þrjátíu manns. Kristmundur var alveg dýrkaður af allri fjölskyldunni
og hann var ekki að mikla sig að því að aðstoða þessa vini sína á
Cost del Sol. Ef hann gat hjálpað til að þá gerði hann það. Svona
var Kristmundur," segir Sigurdór Sigurdórsson fararstjóri að lokum
og minnist þeirra hjóna með mikilli hlýju.
Já, svona var Kristmundur, flottur og fínn kall og þannig þekktum
við hann líka í Ólafsvík. Þeir urðu góðir vinir Kristmundur og
Sigurdór og eiginkonur þeirra eftir þessa góðu og löngu samveru
á ströndinni. Einhverju sinni kom Sigurdór vestur og tók viðtal við
Kristmund en þá var hann í hlutverki blaðamanns í þeirri ferð og úr
varð skemmtilegt viðtal.
Sjómannadagsblaðið vill að endingu þakka Sigurdóri fyrir þessa
skemmtilegu frásögn.
Samantekið: Pétur Steinar Jóhannsson
Lagt af stað í úlfaldareiðtúr, Guðjón og Kristmundur.
Myndir með greininni eru úr safni Laufeyjar Kristmundsdóttur.
Spurningar til sjómannskvenna
Nafn og starf: Regína Ösp
Ásgeirsdóttir, ég er skólaliði og
vinn á bókasafni GSNB.
Hefur þú farið á sjó
og á hvaða bát?
Sjómannadagssiglingu á Agli
SH.
Varstu sjóveik? Nei.
Hlustar þú á óskalagaþátt
sjómanna? Nei.
Vildir þú fara í rallý með
manninum þínum? Já, ég væri
alveg til í það.
Hver ætti að keyra? Ég auðvitað.
Ertu búin að sjá Mamma mia?
Nei.
Hvernig væri draumafríið
þitt? Mig langar rosalega að
fara einn daginn í heimsreisu.
Hver er munurinn á báti og
skipi? Skip er stærra og bátur
er minni.
Ertu á facebook eða tvitter
og hvað áttu marga vini? Ég
er á facebook og á nokkra vini
þar.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? [ augnablikinu er
það Chicago med.
Hver er uppáhaldsliturinn
þinn? Fjólublár.
Gefur maðurinn þinn þér blóm á
konudaginn? Já.
I hvað starfi væri maðurinn þinn ef hann
væri ekki sjómaður? [ einhverju sem tengist
sjávarútvegi.
Hvert er uppáhalds lagið þitt? Adele er í
sérlegu uppáhaldi hjá mér þessa dagana.
Hver er aðal kosturinn að eiga sjómann?
Kosturinn er að hann er á dagróðra báti og
hann kemur alltaf heim á kvöldin.
En ókosturinn? Hann missir af ýmsum
viðburðum sem eru yfir daginn hjá barninu.
Færðu koss frá bóndanum áður en hann fer
á sjóinn? Já.
Mottóið er: Komdu fram við aðra eins og þú
vilt að aðrir komi fram við þig og brostu framan
í heiminn og heimurinn brosir við þér.
32