Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 62
Heiðrun fyrir björgun
úr sjávarháska 2015
Kæru áheyrendur.
Nú á sjómannadegi mun Sjómannadagsráð Ólafsvíkur heiðra fyrir
björgun úr sjávarháska
Ég vil biðja áhöfnina á Ólafi Bjarnasyni SH að koma hérá pallinn til
mín. Einnig bið ég Þórð Almar Björnsson sjómann að koma hér upp.
Um kl 17.00 þriðjudaginn 19. maí sl fékk skipstjórinn á Ólafi
Bjarnasyni SH kall frá Landhelgisgæslunni og var hann beðinn
um að fylgjast með trillubátnum Herkúlesi SH þar sem skipverjinn
Þórður Almar Björnsson ætti í erfiðleikum vegna leka á bátnum.
Herkúles var þá staddur uppi á Brúninni nánar tiltekið austan Snaga.
Er Ólafur Bjarnason kemur á staðinn sem upp var gefinn sást
enginn bátur aðeins dót á reki. Stuttu seinna sjá þeir kassa utan af
gúmmíbát í sjónum og fuglager þar um kring og er þeir koma nær
sjá þeir að Þórður Almar hangir í kssanum. Ná þeir að leggja að
honum þráttfyrir NA kalda og geta síðan dregið Þórð upp úr sjónum
og ná honum um borð. Mátti það ekki tæpara standa því Þórður
Almar var orðinn mjög þrekaður enda búinn að berjast um í sjónum
í talsverðan tíma en hann náði ekki að komast í björgunargalla.
Að þessu sögðu vill Þórður Almar að sjálfsögðu þakka áhöfninni
á Ólafi Bjarnasyni SH þessa frækilegu björgun og ekki síst fyrir mjög
góða aðhlynningu um borð í Ólafi Bjarnasyni.
Ég mun nú afhenda Magnúsi Jónassyni skipstjóra fyrir hönd
áhafnarinnar skjöld til að hafa um borð í bátnum þar sem fram koma
þakkirtil áhafnarinnar frá Sjómannadagsráði Ólafsvíkur.
Þess má líka geta hér að í mars árið 1989 bjargaði áhöfnin á
Ólafi Bjarnasyni SH 7 mönnum af Sæborginni SH er hún sökk hér
á Breiðafirði.
Pétur Steinar Jóhannsson
Spurningar til sjómannskvenna
Nafn og starf: Irma Dögg
Toftum, stuðningsfulltrúi í
Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Hefur þú farið á sjó og á
hvaða bát? Já , á Agli SH og
Norrænu.
Varstu sjóveik? Já, mikið.
Hlustar þú á óskalagaþátt
sjómanna? Nei.
Vildir þú fara í rallý með
manninum þfnum? Já.
Hver aetti að keyra? Ég.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Vikings.
Ertu búin að sjá Mamma mia?
Nei, ekki enn.
Hvernig væri draumafríið
þitt? Með fjölskyldunni á Costa
del Kjós.
Hver er munurinn á báti og
skipi? Skip er stærra og bátur
er minni.
Ertu á facebook eða tvitter
og hvað áttu marga vini?
Fésinu og á 358 vini.
Hver er uppáhaldsliturinn
þinn? Bleikurog rauður.
Gefur maðurinn þinn þér blóm á
konudaginn? Það kom einu sinni fyrir.
I hvað starfi væri maðurinn þinn ef hann
væri ekki sjómaður? Rafvirki.
Hvert er uppáhalds lagið þitt? Dreams með
Cranberries.
Hver er aðal kosturinn að eiga sjómann? Þú
átt alltaf fisk.
En ókosturinn? Vinnutíminn.
Færðu koss frá bóndanum áður en hann fer
á sjóinn? Neibb.
Mottóið er: Lifðu lífinu lifandi.
60