Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Blaðsíða 59
Á myndinni er Ester Úranía Friðþjófsdóttir en hún var heiðruð á sjómannadaginn á Hetlissandi. Með henni eru börnin frá vinstri, Elvar Guðvin, Jóhann Rúnar, Guðbjörg Huldís, Helena Sólbrá, Snædís
Elísa, Dagrún Sólrún og Baldur Freyr.
góðan vinahóp, var á fullu í fótboltanum á Egilsstöðum, nýkomin
í meistaraflokk fannst mér eins og lífið framundan væri búið. Það
fyrsta sem að ég sagði var, „hvar er Hellissandur"? Ég hafði ekki
hugmynd um hvar hann væri enda ekki heyrt um Hellissand áður.
Pabbi, mamma og Helga Eir systir fóru vestur í apríl en ég fór í
september þegar keppnistímabilið í fótboltanum var búið. En 6
mánuðum áður en að við fluttum á Hellissand, höfðum við keypt
hús á Egilsstöðum og gert það upp. Þar bjó ég ásamt Frey frænda
mínum allt sumarið í tómu húsi, aðeins rúm til að sofa í. Þrjóska
stelpan sem ég er ætlaði sko ekki að flytja með á Hellissand, ætlaði
bara að flytja til afa Eiríks sem bjó í húsinu við hliðina á okkur.
Þegar ég kem síðan á Hellissand í september árið 1999 með sorg
í hjarta eftir að hafa kvatt stórfjölskyldu og vini og þurft að hætta
í fótboltanum, tóku krakkarnir í bænum svona rosalega vel á móti
mér.
Sjómannaböllin ógleymanleg
Við tóku góðir tímar og sjórinn og sjómannadagurinn urðu
aftur órjúfanlegur hluti míns lífs. Ég vann í fiski á sumrin með
skólanum og hluti af stemmingunni var að taka þátt í keppnum á
sjómannadaginn. Metnaðurinn var mikill og það var keppt af lífi og
sál, ég vildi bikarinn, fékk hann og mynd af mér í sjómannablaðiðl!
Sjómannaböllin á Hellissandi á þessum árum eru mér líka
ógleymanleg enda náði ég mér í góða tengingu við sjóinn með
honum Örvari mínum og dansa enn á sjómannaballi á Hellissandi
15 árum síðar. Já, nú er litla stúlkan sem steig ölduna forðum
með kókómjólk og prins póló í hendinni sem sagt orðih stór. Hún
er kannski ekki mikill sjómaður stúlkan sú en uppeldi mitt hvort
sem það var þar sem fræið varð til eða þar sem það skaut föstum
fjölskyldurótum gerir það að verkum að ég tel mig vita vel hversu
sjórinn og það sem hann gefur er mikilvægur okkur öllum.
Hér fann ég draumaprinsinn minn
Ég ákaflega stolt yfir því að vera hluti af samhentri og góðri
sjávarútvegsfjölskyldu sem lifir og starfar í þessari mikilvægu
atvinnugrein hér í Snæfellsbæ. Hér fann ég draumastaðinn minn,
barnanna minna og hér fann ég draumaprinsinn minn hann Örvar.
Við sem búum hér í Snæfellsbæ og á íslandi öllu hvort sem er
við sjóinn, í sveit eða í borg gerum okkur öll grein fyrir því hvað
sjómennskan og sjósókn er samofin sögu landsins okkar. Ég hef
sjálf aldrei verið á sjó en ber ómælda virðingu fyrir sjómönnunum
okkar og fjölskyldum þeirra. Á fyrri tímum voru sjóslys tíð en með
nýrri tækni og gjörbreytingu á öryggismálum þá eru þau sem betur
fer orðin mjög fátíð en við megum samt aldrei gleyma okkur eitt
andartak þegar kemur að öryggi og velferð ástvina okkar.
Kæru sjómenn, fjölskyldur og aðrir hátíðargestir, til hamingju
með daginn, til hamingju með sjómannadaginn.
Verkalýðsfélag Snæfellinga
óskar sjómönnum til hamingju með daginn!
Verkalýðsfélag
Snæfellinga
57