Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Page 33
Kristmundur Halldórsson
Við öll sem eldri erum hér í Snæfellsbæ
þekktum að sjálfsögðu Kristmund Hall-
dórsson skipstjóra á Matthildi SH 167.
Hann fæddist 13. ágúst 1928 og var næst-
elstur af níu systkinum sem komust á legg.
Hann byrjaði sína sjómennsku þrettán ára með
föður sínum Halldóri Jónssyni á Víkingi SH og
hann byrjaði skipstjórn sína 1951 á Mumma SH
sem hann átti sjálfur. Kristmundur var mikill
sómamaður, fiskinn og gott að vera með honum
á bát en það er rómur þeirra manna sem voru
með honum á sjó. Kristmundur lést árið 1997
en hann og kona hans Laufey Eyvindsdóttir
eignuðust níu börn, sex stráka og þrjár stúlkur
og fyrir átti Laufey einn strák. Það hefur verið
mikið að gera á stóru heimili eins og nærri má
geta fyrir utan vinnuna sem þau bæðu stunduðu. Þá var gott að
geta tekið sér ærlegt frí og það gerðu þau. í fjölmörg ár fóru þau
tvö á Costa del Sol og nutu sólarinnar og ávallt í þrjár vikur og
alltaf voru þau á sama hótelinu en það var El Remo.
Þá er komið að tilurð þessarar greinar. í þessum fríum
fylgdist Kristmundur stundum með sjómönnum sem stunduðu
skelfiskveiðar fyrir utan lítið fiskimannaþorp sem heitir Chariuela á
strönd Costa del Sol, sem er við hliðina á hótelinu þeirra. Einu sinni
skoðaði Kristmundur festingar í plógana í þessum litlu bátum og sá
strax að þær voru ekki réttar. Þetta átti eftir að verða sögulegt.
Til að fá þessa sögu rétta hafði Sjómannadagsblaðið samband við
fararstjóra ferðaskrifstofunnar Útsýnar á þessum árum en það
var Sigurdór Sigurdórsson sem var þar ásamt konu sinni Sigrúnu
Gissurardóttur. Sigurdór starfaði einnig lengi vel sem blaðamaður.
Hann var ein tíu ár fararstjóri Útsýnar í fjóra mánuði á hverju sumri
og einnig var hann þjóðþekktur söngvari og hver man ekki eftir
laginu Þórsmerkurljóð en hann var þá í hljómsveit Svavars Gests.
Sigurdór og þau hjón Kristmundur og Laufey kynntust vel á þessum
árum og urðu góðir vinir. En gefum Sigurdóri orðið:
El capitan frá íslandi
Jæja, ég hitti svo á aðalmanninn en það var
faðir tveggja sona en hann var með þá með sér
í útgerðinni en þeir áttu þrjá báta eins og áður
sagði. Ég segi honum að hjá mér sé staddur í
sólarferð El capitan skipstjóri frá íslandi. Hann
langi til að kíkja á festingarnar í bátunum því
hann sé viss um að þær séu ekki á réttum stað í
plógunum. Hann segir að það geti varla passað
því að bæði faðir hans og jafnvel afi hans hafi
verið með tógin fest á sama stað og hann er
með nú. Ég sagði skipstjóranum að ég vissi
ekkert um þetta en el Capitan hafi bara sagt
mér þetta og vildi láta þig vita. Hann segir
þá að það sé allt í lagi að Kristmundur komi
og líti á veiðarfærin. Ég segi Kristmundi þetta
og seinnipart dags fer hann um borð í bátana og breytir því sem
hann vildi og þeir fara út um nóttina og Kristmundur er með einum
bátnum. Það sem að var að mati Kristmundar var að plógurinn
sat ekki nógu vel á botninum til að skelinn færi inn í hann heldur
hoppaði hann yfir skelina. Kristmundur hafði góða reynslu sjálfur
af skelveiðum í Breiðafirði og vissi því vel hvað hann var að segja.
Góður afli
Það er ekkert með það að þeir fá góðan afla. Einn báturinn var
með tólf fötur og annar með fimmtán fötur frá því að vera með tvær
eða þrjár fötur. Það var allt á endum og þetta spurðist út meðal
annara sjómanna. El Capitan varð að breyta hjá þeim líka og þetta
gjörbreytti hag sjómannanna sem réru frá þessari frægu Costa
del Sol strönd.
Þessum feðgum vegnaði mjög vel eftir þetta og urðu efnaðir á
spænskan mælikvarða. Eftir þetta dáðu þeir Kristmund mikið og eitt
sinn tóku þeir á leigu veitingastað og héldu honum stóra og mikla
veislu. Svo er það næsta sumar er Kristmundur og Adda komu út,
en ég og konan mín voru þá komin út áður, að pabbinn kemur til
El capitan
„Þau hjón Kristmundur og Laufey komu öll þessi ár sem við
vorum á Costa del Sol en við byrjuðum 1977. Þau voru alltaf á sama
hóteli og alltaf á sama stað á ströndinni við hótelið. Þau fóru aldrei í
neinar ferðir bara slöppuðu af í sólinni og höfðu það gott.
Einn daginn kom hann til mín og segir mér frá þremur bátum
sem lágu í fjörunni við hótelið Santa Clara en það var ca 300
metra frá El Remo. Þetta voru bátar sem voru á skelfiskveiðum
og drógu á eftir sér skelplóg. Skelin var svo seld til veitingahúsa
á Chariuelaströndinni. Kristmundur sagði mér að festingarnar í
bátunum í plógana væru ekki réttar. Hann spyr hvort ég vilji koma
honum í samband við eigendur bátanna því hann langi til að segja
þeim til með festingar á tóginu í plógana. Ég segi Kidda að það
skuli ég gera en bátarnir voru að fara út svona um kl. þrjú og fjögur
á nóttinni og ég kannist við eigendur þeirra. Svo komu þeir í land á
milli kl. tíu og ellefu á morgnana. Hann spyr mig hvort ég viti hvað
þeir eru að fá í hverjum róðri og ég segi að þeir séu að fá um tvær
til þrjár fötur í róðri.
Irish coffee og koníak tekið eftir góða máltíð: Frá vinstri er Kristmundur, Guðjón Bjarnason, Laufey
Eyvindsdóttir kona Kristmundar og Kristín Jónsdóttir kona Guðjóns.
31