Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2016, Side 93
Myllurnar 50 km frá landi
Einnig var ég nýlega í Þýskalandi þar sem verið er að reisa 97stk
af 6MW myllum (582MW) sem nægir til að sjá um það bil 412.400
þýskum heimilum fyrir raforku. Þar sem myllurnar geta staðið allt
að 50km frá landi, þá þurfum við sem störfum þarna úti að búa á
Norðursjónum. Til þess eru notuð hótelskip og eru þetta yfirleitt
eldri bílferjur sem hafa verið endurgerðar fyrir þessar aðstæður.
Þá þarf að flytja okkur með minni bátum á milli hótelskips og
vindmylla og eru til þess notaðir svokallaðir CTV eða Crew Transfer
Vessel. Þetta eru yfirleitt 12 manna bátar sem geta lagst bæði að
vindmyllunum og að hótelskipinu, en ef ölduhæð fer yfir tvo metra
er yfirleitt ekki hægt fyrir mannskapinn að fara af Transfer bátnum
og yfir á vindmylluna og í rauninni er það bannað vegna hættu.
Þegar svo er, er engin vinna þann daginn og eru þeir dagar kallaðir
vinddagar og ef ölduhæðin hækkar enn meira leitar hótelskipið
einnig í var eða siglir í höfn.
100 metrar og 200 tonn
Það þekkist einnig að það sé búið um borð á prammanum sem
reisir myllurnar svokallað Jack Up Ship. Þar skiptir ölduhæðin ekki
mestu máli þar sem pramminn er langt yfir sjávarmáli og tjakkaður
upp með stórum fótum sem ná niður á hafsbotn.
Við hífingar á svona stórum hlutum eins og turnum vindmyllanna
er ekki hægt að hífa ef vindhraðinn fer yfir 15 metra á sekúndu.
Turnarnir í dag eru fluttir og hífðir í heilu lagi og eru þeir hundrað
metra háir og vega yfir 200 tonn. Eins og gefur að skilja eru veturnir
dýrir í þessum bransa þar sem veður í Norðursjónum eru ekki
alltaf eftir óskum. Til að mynda hljómar vinnutíminn minn uppá
14 daga úti og er svo 14 daga heima og það hefur komið fyrir að
á þessum 14 dögum sem ég er úti þá hef ég haft einn vinnudag.
Þrátt fyrir marga daga án vinnu eru aðstæður eins og best verður
á kosið. Öll þjónusta er um borð á hótelskipunum, þar er matur
allan sólarhringinn, bíósalur, líkamsræktarsalur, káetunum er
| | 1
mmm
Myllutumarnir eru 100 m háir og 200 tonn að þyngd. Starfsmennirnir agnarsmáir miðað við
turnana. TP, eða Transition Piece er sá hluti sem sjálfur vindmylluturninn stendur á, og þar sem við
lendum „transfer" bátnum til að komast á myllunna.
Skemmtilegt sjónarhorn yfir einn vindmyllugarðinn. Myndin er tekin ofan af 3.6 MW Siemens
vindmyllu, Meerwind Helgoland í Þýskalandi.
haldið hreinum, þvotturinn þveginn af okkur og yfirleitt höfum við
internet sem er mikill lúxus miðað við fyrri ár þar sem samskipti við
fjölskylduna á þessum slóðum voru af skornum skammti.
Sjóveiki
Ég hefði aldrei trúað því að ég ætti eftir að verja svona miklum
tíma úti á sjó, þarsem ég hef alltaf verið sjóveikur/bílveikur og sem
barn gat ég ekki verið farþegi í bíl eða um borð í bát öðruvísi en
að verða sjóveikur. Mér er minnisstæð ein ferð til Reykjavíkur með
pabba um borð í Skálavík SH-208. Þetta var stuttu eftir nýsmíði
Skálavíkur frá Póllandi. Ég man eftir mér og Benna frænda en
við vorum svakalega spenntir með VHS myndbönd og fleira þar
sem við ætluðum aldeilis að hafa það gott í nýja bátnum á leið til
Reykjavíkur. Það passaði, að um leið og komið var úr höfn byrjaði
sjóveikin. Það varð úr að ég eyddi nóttinni á klósettgólfinu alla
leið suður með höfuðið ofan í skálinni. Þau voru líka hissa foreldrar
mínir þegar ég tilkynnti þeim hvaða starf ég hafði ráðið mig í, það
gleymist nú seint hversu drengurinn þeirra var alltaf bílveikur og
sjóveikur, sama hversu stutt var farið.
Áþyrluíland
Það kemur þó fyrir að ég verð aðeins veikur, en ekkert í líkingu við
fyrri tíð, myrkur og langur tími í litlum bátum er verstur. Við þurfum
stundum að bíða við vindmyllurnar eftir öðrum tæknimönnum, þar
sem við erum kannski búnir á undan og eða að sigla í land við
mannaskipti. Það er misjafnt hversu langt hótelskipið er frá landi og
hvernig við erum fluttir. Stundum siglir hótelskipið í höfn, stundum
er okkur ''skutlað" á CTV bátunum og eða okkur er flogið með þyrlu
sem er að sjálfsögðu þægilegast og fljótlegast. Siglingartíminn í
land getur varað frá einum til allt að fjórum klukkustundum.
Nóg að gera framundan
Atvinnulega séð, lítur framtíðin vel út í vindmyllubransanum.
Plön næstu ára eru mjög stór við að auka raforkuframleiðslu með
vindmyllum og eru þær nær allar reistar offshore, að minnsta kosti
hér á evrópusvæðinu, einnig verða myllurnar sífellt stærri.
Siemens er að byrja að reisa 7MW myllur, Vestas er að reisa fyrstu
8MW myllurnar og spurst hefur út að Siemens sé með 10MW myllu
á teikniborðinu. Bæði þessi fyrirtæki eru með höfuðstöðvar sínar í
Danmörku. Ég ætla ekki að láta þetta verða lengra og sendi kveðjur
okkar frá Aarhus til allra í Snæfellsbæ.
Sjómenn og fjölskyldur. Eigið þið gleðilegan sjómannadag
Lúðvík Rúnarsson
91